Stuðningur við Vinstri græn hefur helmingast frá kosningum

Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra nýtur aðeins 8,5% fylgis í nýrri könnun, sem er það minnsta í fjögur ár.

Stuðningur við Vinstri græn hefur helmingast frá kosningum
Katrín Jak­obs­dóttir Formaður Vinstri grænna varð for­sæt­is­ráð­herra en hefur misst helm­ing­inn af kjör­fylgi flokks­ins. Mynd: Pressphotos.biz

Fylgi Vinstri grænna (VG) mælist minna en það hefur gert síð­ustu fjögur árin í nýj­ustu skoð­ana­könnun MMR.

8,5% aðspurðra sögð­ust ætla að kjósa flokk Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í könn­un­inni sem gerð var dag­ana 10. til 23. sept­em­ber, niður úr 9,6% í könnun sem kynnt var í byrjun sept­em­ber­mán­aðar. 

Vinstri græn eru sá flokkur sem tapað hefur lang­mestum stuðn­ingi frá alþing­is­kosn­ing­unum 2017 þegar flokk­ur­inn fékk 16,9% fylgi, eða 8,4 pró­sentu­stigum, sem nemur tapi á um helm­ingi kosn­inga­fylg­is­ins.

Fylgi Vinstri grænna mæld­ist síð­ast lægra í mars 2016, þá 7,8%, þegar Píratar mæld­ust með 37% fylgi, en þar áður þarf að leita aftur til loka rík­is­stjórn­ar­tíðar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, 9. apríl 2013, til að finna minni stuðn­ing við VG.

Þess ber að geta að VG mæld­ist með 12,6% fylgi í annarri könnun, Þjóð­ar­púlsi Gallups, í lok ágúst.

Sá flokkur sem bætir mestu við sig frá kosn­ingum, miðað við könn­un­ina sem kynnt var í dag, eru Píratar, sem nú mæl­ast næst stærsti flokkur lands­ins. Þeir fengu 9,2% fylgi í kosn­ingum en mæl­ast nú með 15% fylgi, tæp­lega 6 pró­sentu­stigum meira en kosn­inga­fylgi og hlut­falls­lega 63% meiri stuðn­ing en 2017.

Stuðn­ingur við Sam­fylk­ing­una fellur um tvö pró­sentu­stig á milli kann­ana en Mið­flokk­ur­inn bætir við sig 2,8 pró­sentu­stigum og nýtur sama stuðn­ings og í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum.

Flestir, eða 25,6%, styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn, sem er 0,4 pró­sentu­stigum ofar kjör­fylgi. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur mælist 51% og er það mun meiri stuðn­ingur en við síð­ustu fjórar rík­is­stjórnir þar á undan.

Tveir þing­menn VG hafa sagt sig úr flokknum eftir að stofnað var til rík­is­stjórn­ar­sam­starfs með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. Í síð­ustu viku til­kynnti Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir um úrsögn sína eftir fund með for­mann­inum, Katrínu Jak­obs­dóttur.

Næstu alþing­is­kosn­ingar verða haldnar eftir rétt rúmt ár, eða 25. sept­em­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár