Fyrrverandi heilbrigðisráðherra segir framgöngu Krabbameinsfélagsins siðlausa

Álf­heiður Inga­dóttir, fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, seg­ist ösku­reið yfir „aum­ingja­dómi“ stjórn­enda Krabba­meins­fé­lag­isns. Það sé sið­laust hvernig ábyrgð á mis­tökum við grein­ingar á krabba­meins­sýnum sé varpað á einn starfs­mann og veik­indi hans dregin inn í umræð­una.

Fyrrverandi heilbrigðisráðherra segir framgöngu Krabbameinsfélagsins siðlausa
Öskureið yfir aum­ingja­dómnum Álf­heiður segir fram­göngu stjórn­enda Krabba­meins­fé­lags­ins vera sið­leysi.

Álf­heiður Inga­dóttir, fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, segir fram­göngu for­svars­manna Krabba­meins­fé­lags Íslands sið­lausa. Vísar hún þar til yfir­lýs­inga félags­ins vegna rangrar grein­ingar á sýni konu sem leit­aði til Leit­ar­stöðvar krabba­meins­fé­lags­ins árið 2018. Konan glímir nú við ólækn­andi krabba­mein. Í yfir­lýs­ingu Krabba­meins­fé­lags­ins frá í gær var upp­lýst að starfs­mað­ur­inn sem greindi sýni kon­unnar rang­lega hverði verið í veik­inda­leyfi um tíma. Þá upp­lýsti Ágúst Ingi Ágústs­son, yfir­læknir og sviðs­stjóri leit­ar­sviðs Krabba­meins­fé­lags­ins að sam­starfs­fólk starfs­manns­ins hefði lýst áhyggjum af and­legri heilsu starfs­manns­ins.

Ágúst Ingi var gestur í Kast­ljósi Rík­is­út­varps­ins í gær­kvöldi þar sem hann greindi frá því að farið hefði verið yfir sýni úr 1.800 leg­háls­strokum og í ljós hefði komið að 45 þeirra hefðu verið rang­lega greind, það er að þau sýni sýndu frumu­breyt­ingar. Þó til­tók Ágúst að ekk­ert þeirra sýna væri sam­bæri­leg sýni kon­unnar sem nefnd er hér að framan. Til skoð­unar er að óháður aðili rann­saki 6.000 sýni sem séu til end­ur­skoð­unar hjá félag­inu vegna mis­taka starfs­manns­ins.

Getur ekki fyrirgefið framgönguna

Í yfir­lýs­ingu Krabba­meins­fé­lags­ins er sem fyrr segir til­tekið að starfs­mað­ur­inn sem tók sýnin hafi glímt við veik­indi og væri nú hættur störfum, að eigin ósk. Ágúst sagði að ekki sé vitað til að starfs­mað­ur­inn hafi glímt við þau veik­indi þegar hann var við störf hjá Krabba­meins­fé­lag­inu. Hann hafi hins vegar farið í veik­inda­leyfi en þegar hann hafi snúið til baka hafi ekk­ert bent til ann­ars en að hann væri heill heilsu. Áhyggjur sam­starfs­fólks af and­legri heilsu starfs­manns­ins hefðu komið fram síðar.

„Nú er ég lömuð og ösku­reið yfir aum­ingja­dómnum sem birt­ist í katt­ar­þvotti stjórn­enda KÍ,“

Nú er ég lömuð og ösku­reið yfir aum­ingja­dómnum sem birt­ist í katt­ar­þvotti stjórn­enda KÍ,“ segir Álf­heiður í færslu á Facebook. Hún gagn­rýnir for­svars­menn Krabba­meins­fé­lags­ins harð­lega fyrir að gang­ast ekki við eigin ábyrgð í mál­inu heldur varpa sök á einn fyrr­ver­andi, og því sem næst nafn­greindan, starfs­mann, vegna veik­inda hans. Það sé sér­stak­lega ógeð­fellt og ekki síst vegna þess að til­tekið sé í yfir­lýs­ingu félags­ins að „ekki er hægt að full­yrða að heilsu­brestur starfs­manns­ins hafi stuðlað að því sem gerð­ist.“ Með því sé félagið einnig að forð­ast á taka ábyrgð á þeirri ásökun en í stað þess sé látið liggja í loft­inu að það sé einmitt ástæðan.

Álf­heiður, sem sjálf hefur í tvígang þurft að ganga í gegnum krabba­meins­með­ferð, segir að sér sé annt um Krabba­meins­fé­lagið og hafi stutt við það sem henni var unnt á tíma sínum sem heil­brigð­is­ráð­herra á árunum 2009 til 2010. Hún seg­ist hins vegar ekki geta orða bund­ist núna, enda sé hún ösku­reið og geti ekki fyr­ir­gefið hversu grátt stjórn­endur félags­ins hafi leikið hug­sjónir þeirra sem byggðu upp félagið.

„Það urðu hörmu­leg mis­tök. Það er hægt að kalla þau „mann­leg mis­tök sem alltaf geta orðið.“ En eftir kvöldið í kvöld er ljóst að það er mikil ein­földun,“ skrifar Álf­heiður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár