80. spurningaþraut: Bandaríkjaforsetar og frambjóðendur

80. spurningaþraut: Bandaríkjaforsetar og frambjóðendur

Allar spurn­ing­arnar snú­ast um sama efnið, eins og venju­lega þegar tala spurn­inga­þraut­ar­innar endar á núll. Nú eru það Banda­ríkja­for­setar og fram­bjóð­endur sem málið snýst um.

Auka­spurn­ingar: Á mynd­inni hér að ofan sver einn Banda­ríkja­for­seti emb­ætt­is­eið sinn við frekar óvenju­legar aðstæður. Hver er sá?

Á neðri mynd­inni má sjá Banda­ríkja­for­seta einn heilsa her­manni, sem síðar varð for­seta­efni sjálfur. Hvað heita þessir tveir menn?

En hér eru almennu spurn­ing­arnar:

1.   Hver var for­seta­efni Repúblik­ana gegn Barack Obama árið 2012?

2.   Hvaða Banda­ríkja­for­seti sagði: „Herra Gor­bat­sjov, rífðu niður þennan múr“?

3.   Hver hefur verið Banda­ríkja­for­seti lengst allra?

4.   Hver er fyrsta konan sem var for­seta­efni ann­ars stóru flokk­anna í Banda­ríkj­unum?

5.   Hversu margir Banda­ríkja­for­setar hafa verið myrtir í emb­ætti?

6.   Einn Banda­ríkja­for­seti fædd­ist í tíu þús­und manna smábæ sem heitir Hope í Arkansas árið 1946. Hver er hann?

7.   Faðir Obama for­seta fædd­ist og dó í Afr­íku­landi einu. Hvaða land er það?

8.   Einn Banda­ríkja­for­seti hafði ekki ensku að móð­ur­máli. Hver var hann?

9.   Vegna kjör­manna­kerf­is­ins í banda­rískum stjórn­málum náði Donald Trump kjöri 2016 þótt hann fengi færri atkvæði en mót­fram­bjóð­andi hans. Það gerð­ist einnig árið 2000 þegar George W. Bush varð for­seti þótt hann fengi færri atkvæði en ... ja, hver?

10.   Eitt af því sem gerð­ist á 19. öld­inni var að Jón Ólafsson rit­stjóri fór í heim­sókn til Banda­ríkj­anna og lenti þar á fyll­eríi með Banda­ríkja­for­seta. Hvað hét sá for­seti?

Hér eru þá svörin:

1.   Romney.

2.   Reagan.

3.   Franklin D. Roosevelt.

4.   Hillary Clinton.

5.   Fjórir.

6.   Bill Clinton.

7.   Keníu.

8.   Van Buren, for­seti 1837-1841. Hann var af hol­lenskum ættum og hol­lenska var töluð á æsku­heim­ili hans í New York-ríki.

9.   Gore.

10.   Grant.

Á efri mynd­inni sver Lyndon B. Johnson emb­ætt­is­eið.

Á neðri mynd­inni heilsar Nixon for­seti John McCain, sem var for­seta­efni Repúblik­ana 2008.

Hér eru spurn­ingar frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár