81. spurningaþraut: Glæpamaður, fyrsta kvikmyndin, Andrésína Önd og fleira

81. spurningaþraut: Glæpamaður, fyrsta kvikmyndin, Andrésína Önd og fleira

Á mynd­inni hér að ofan má sjá æsku­mynd af konu einni, sem náði ein­hverjum besta árangri sem nokkur kona hefur náð í hennar fagi. Fyrri auka­spurn­ingin er: Hver er þessi kona?

Seinni auka­spurn­ingin: Á mynd­inni hér að neðan má sjá nokkra sig­ur­sæla her­menn eftir það sem var - frá þeirra sjón­ar­miði - alveg ein­stak­lega og óvenju­lega vel heppnað stríð. Hvaða stríð skyldi það nú hafa verið?

En hér eru aðal­spurn­ing­arnar:

1.   Fyrir rétt tæpu ári dó maður nokkur í fang­elsi í Banda­ríkj­unum. Hann var sak­aður um umfangs­mik­inn níð­ings­hátt í garð ungra stúlka. Maðurinn á að hafa framið sjálfs­morð en margar grunar að yfir­stétt­ar­glæponar, sem hann útveg­aði tán­ings­stúlkur, hafi látið drepa hann. Hvað hét þessi and­styggi­legi glæpa­maður og níð­ingur?

2.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Úkraínu?

3.   Hvað er ummál Jarð­ar­innar? Hér má skeika 5.000 kíló­metrum til eða frá.

4.   Elsta kvik­myndin sem varð­veist hefur kall­ast Roundhay Garden Scene og er frá árinu 1888. Franskur upp­finn­inga­maður tók mynd­ina í skemmti­garði í Leeds og þar sjá nokkrar mann­eskjur á rölti um garð­inn. En hversu löng er Roundhay Garden Scene? Aðeins má skeika 1 sek­úndu til eða frá.

5.   Íslensk fyr­ir­sæta og kaup­sýslu­kona hefur haslað sér völl í Búlgaríu. Hvað heitir hún? Hér duga fornöfn hennar?

6.   Í Andr­és­blöð­unum greinir oft frá til­raunum Andrésar til að stíga í væng­inn við Andr­é­sínu nokkra. Andr­é­sína heitir hún alla vega í íslensku útgáf­unni af Andr­és­blöð­unum og líka þeirri dönsku. En hvað heitir Andr­é­sína á ensku, tungu­máli Walts Disneys?

7.   Árið 2009 kom fram ný stjórn­mála­hreyf­ing sem nefnd­ist Borg­ara­hreyf­ingin og síðan Hreyf­ingin. Einn af þing­mönnum Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar var ljóð­skáld sem síðan átti mik­inn þátt í að efla hreyf­ingu Pírata og sat á þingi fyrir þá. Hvert er nafn þing­manns­ins?

8.   Hvað hét afkasta­mesti þjóð­sagna­safn­ari Íslands á 19. öld?

9.   Marshall Mathers heitir maður nokkur, en fáir þekkja hann reyndar undir því nafni, heldur er hann heims­frægur undir gælu­nafni sínu. Gælu­nafnið er reyndar dregið af hinu fulla nafni hans á vissan hátt. Hvað kall­ast mað­ur­inn?

10.   Út í hvaða haf fellur Rín­ar­fljót?

Svörin eru þessi:

1.   Jeffrey Epstein.

2.   Kíev.

3.   40.000 kíló­metrar, svo rétt telst vera allt frá 35.000-45.000 km.

4.   Mynd­bút­ur­inn er 2 sek­úndur, svo rétt er 1-3 sek­únda. Hér er hann sýndur hægt:

5.   Ásdís Rán.

6.   Daisy.

7.   Birgitta Jóns­dóttir.

8.   Jón Árnason.

9.  Eminem - það er að segja „M'n'M“

10.   Norð­ur­sjó.

Hér er þrautin frá í gær; lauf­léttar spurn­ingar um Banda­ríkja­for­seta.

En svörin við auka­spurn­ing­unum eru þessi:

Kona er Katherine Hepburn leik­kona.

Stríðið var sex daga stríð Ísraels gegn nágrönnum sínum árið 1967.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár