Fleiri bíða eftir hjúkrunarrýmum og bíða lengur

Biðlistar eftir hjúkr­un­ar­rýmum hafa lengst und­an­far­inn ára­tug og mark­mið stjórn­valda um bið­tíma hafa ekki náðst. Opnun nýrra hjúkr­un­ar­rýma á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur létt á stöð­unni.

Fleiri bíða eftir hjúkrunarrýmum og bíða lengur
Aldraðir Biðlistar eftir hjúkr­un­ar­rýmum hafa lengst und­an­far­inn ára­tug. Mynd: Shutterstock

Stjórn­völd hafa ekki náð mark­miði sínu um að stytta biðlista eftir rýmum á hjúkr­un­ar­heim­ilum það sem af er ári. Biðlistar hafa lengst veru­lega und­an­far­inn ára­tug.

Þetta kemur fram í grein­ar­gerð emb­ættis land­læknis um stöðu á biðlistum eftir hjúkr­un­ar­rýmum. Fjölgun á biðlistum frá upp­hafi árs 2011 til 2020 nemur 76 pró­sentum þegar til­lit hefur verið tekið til mann­fjölda. Árið 2011 var með­al­fjöldi þeirra sem biðu í hverjum árs­fjórð­ungi 158, en á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020 voru að með­al­tali 366 á biðlista.

977 manns flutt­ust var­an­lega á hjúkr­un­ar­heim­ili á síð­asta ári. Af þeim biðu 54 pró­sent skemur en 90 daga eftir hjúkr­un­ar­rými. Á fyrsta árs­fjórð­ungi biðu 60 pró­sent skemur en 90 daga, en mark­mið stjórn­valda fyrir árið 2020 er að 65 pró­sent fái rými innan þeirra tíma­marka.

Þetta er tölu­verð breyt­ing frá árinu 2011 þegar 82 pró­sent þeirra sem fengu hjúkr­un­ar­rými biðu skemur en 90 daga. Þróunin hefur þó verið í rétta átt frá síð­asta ári að mati emb­ætt­is­ins. „Opnun nýrra hjúkr­un­ar­rýma á árinu 2019 og snemma árs 2020 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu virð­ist hafa haft jákvæð áhrif á bið, en eftir stöðuga fjölgun á biðlistum hafa þeir nú styst og bið­tími einnig,“ segir í til­kynn­ingu emb­ættis land­læknis.

Alls er áætlað að opna 568 ný rými á lands­vísu til árs­ins 2023. „Mik­il­vægt er að þessi rými verði opnuð til að stytta bið­tíma enn frekar og koma í veg fyrir að ein­stak­lingar þurfi að dvelja lang­dvölum á bráða­sjúkra­húsi á meðan beðið er eftir rými,“ segir í grein­ar­gerð­inni. „Eins og fjallað var um í árs­upp­gjöri emb­ætt­is­ins 2018 varð­andi bið eftir hjúkr­un­ar­rými hefur bið aldr­aðra á bráða­sjúkra­húsi nei­kvæð áhrif á heilsu þeirra, færni og lífs­gæði. Þá er með­höndlun fólks á röngu þjón­ustu­stigi léleg nýt­ing á fjár­magni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár