Katrín býður þingmönnum að minnast brunans á Þingvöllum 1970

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra býður þing­mönnum til minn­ing­ar­at­hafnar vegna 50 ára frá elds­voð­anum á Þing­völlum sem tók líf þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, konu hans og dótt­ur­sonar.

Katrín býður þingmönnum að minnast brunans á Þingvöllum 1970
Bjarni Bene­dikts­son og Katrín Jak­obs­dóttir For­sæt­is­ráð­herra býður þing­mönnum að minn­ast elds­voð­ans á Þing­völlum sem tók líf þriggja.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra bauð í dag þing­mönnum á minn­ing­ar­at­höfn um elds­voð­ann á Þing­völlum árið 1970 sem tók líf þriggja.

„Þann 10. júlí nk. verða 50 ár liðin frá því að þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, og kona hans, Sigríður Björns­dóttir, og ungur dótt­ur­sonur þeirra lét­ust í elds­voða að Þing­völlum er svo­nefnt Kon­ungs­hús brann,“ segir í tölvu­pósti frá rit­ara ráð­herra til þing­manna. „Minn­ing­ar­steinn um þennan atburð var reistur þar sem húsið stóð árið 1971. Efnt var til stuttrar minn­ing­ar­at­hafnar um elds­voð­ann og frá­fall for­sæt­is­ráð­herra­hjón­anna og dótt­ur­sonar þeirra árið 1995 þegar 25 ár voru liðin frá atburð­inum.“

Bjarni hafði verið for­sæt­is­ráð­herra um sjö ára skeið þegar harm­leik­ur­inn átti sér stað, en áður var hann rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins. „For­sæt­is­ráð­herra Katrín Jak­obs­dóttir, býður yður hér með að vera við minn­ing­ar­at­höfn í til­efni fram­an­greindra tíma­móta,“ segir í póst­inum til þing­manna. „Athöfnin mun fara fram á Þing­völlum við minn­ing­ar­stein­inn þann 10. júlí nk. og hefst hún kl. 15.00. Að athöfn lok­inni verður boðið upp á kaffi­veit­ingar í Ráð­herra­bú­staðnum á Þing­völlum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár