Munu ekki breyta verðtryggingarfrumvarpi

Frumvarp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra um skref til afnáms verð­trygg­ingar var kynnt við gerð kjara­samn­inga fyrir rúmu ári en hefur ekki verið lagt fram á Alþingi. Athuga­semdir aðila vinnu­mark­að­ar­ins og fræði­manna verða ekki teknar inn í frum­varpið.

Munu ekki breyta verðtryggingarfrumvarpi
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur Loforð voru gefin um skref til afnám verð­trygg­ingar í tengslum við lífs­kjara­samn­ing­inn í apríl 2019. Mynd: Heiða Helgadóttir

Laga­frum­varp um skref til afnáms verð­trygg­ingar mun ekki taka breyt­ingum eftir sam­ráðs­ferli frá því síð­asta sumar. Rúmt ár er síðan frum­varpið var kynnt í tengslum við kjara­samn­inga, en það hefur ekki enn verið lagt fram á Alþingi.

Frum­varpið, sem kemur frá Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra felur í sér þrjár breyt­ingar á veit­ingu verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána. Óheimilt verður að veita þau til lengri tíma en 25 ára, nema ef lán­tak­endur eru ungt eða tekju­lágt fólk sem ætti í erf­ið­leikum með aukna greiðslu­byrði sem fylgir styttri láns­tíma. Þá er lág­marks­tími slíkra lána lengdur úr fimm í tíu ár og þannig komið í veg fyrir að þau séu veitt til ann­ars en kaupa á hús­næði. Loks verður vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis lögð til grund­vallar nýjum lánum sem verða veitt.

Í yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar um „mark­viss skref til afnáms verð­trygg­ingar“ frá 3. apríl 2019 segir að breyt­ing­arnar hafi átt að eiga sér stað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár