Af hetju og hrægömmum. Og hýenum.

Ný bók fyrr­verandi upplýsinga­fulltrúa ríkis­stjórnarinnar fjallar um Sigmund Davíð Gunnlaugsson, Bjarna Benediktsson og fleiri áberandi gerendur.

Sigurður Már Jónsson hefur skrifað gagnlega bók, Afnám haftanna – samningar aldarinnar?

Hún er nýjust í röð bóka um samtíma­sagnfræði og Almenna bóka­félagið á hrós skilið fyrir að halda úti slíkri útgáfu.

Sigurður Már Jónsson

Það er einfald­lega alltof lítið skrifað af „blaða­mennsku­bókum“ eða hvað við viljum kalla þær, sennilega af því að útgáfan borgar sig sjaldnast. Undan­tekningar eru stórvirki á borð við Kaupthinking eftir Þórð Snæ Júlíusson, sem varð metsölubók.

Önnur er Ekkert að fela: Á slóð Samherja í Afríku eftir Helga Seljan, Aðalstein Kjartansson og Stefán Aðalstein Drengsson. Hún seldist trúlega mun minna, en er ekki síður mikilvægt framlag til samtíma­sögu.

En Almenna bóka­félagið hefur semsagt haldið úti ritaröð af þessu tagi, sem er alveg til fyrir­myndar.

Bækurnar hafa að vísu verið misgóðar, en allar eru þær skrifaðar út frá mjög ákveðnu sjónar­horni og ber að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár