Óvænt uppákoma í myndbandi sem hvetur almenning til að vera heima

Margt helsta tón­list­ar­fólk lands­ins syngur í mynd­bandi til að letja fólk frá ferða­lögum.

Hópur íslenskra tón­list­ar­manna syngur úr fjar­lægð inn á mynd­band til að hvetja Íslend­inga til að ferð­ast inn­an­húss yfir pásk­ana. Margir þekktir tón­list­ar­menn koma fram í mynd­band­inu, en þar er einnig óvænt inn­koma.

Meðal söngv­ara eru Helgi Björns, Jón Jónsson og  Salka Sól Eyfeld. Um er að ræða nýja útsend­ingu og nýjan texta við lagið „Góða ferð“, sem Stefán Hilm­ars­son og Eyjólfur Krist­jáns­son áunnu vin­sældir með útsetn­ingu sinni árið 2006, en áður hafði það náð vin­sældum í flutn­ingi BG og Ingi­bjargar.

Halldór Gunnar Pálsson, for­sprakki Fjalla­bræðra, hélt utan um flutn­ing­inn og hófst vinnan við mynd­bandið 2. apríl síð­ast­lið­inn.

Í frétta­til­kynn­ingu vegna útgáfu lags­ins og mynd­bands­ins segir að mik­il­vægt sé að „hlýði Víði“, en þar er vísað til Víðis Reyn­is­sonar yfir­lög­reglu­þjóns, sem hefur beðið fólk að forð­ast ferða­lög um pásk­ana til að minnka álag á heil­brigð­is­kerfið á hátindi COVID-19 far­ald­urs­ins.

„Íslend­ingar hafa staðið sig frá­bær­lega vel í bar­átt­unni við COVID-19 sjúk­dóm­inn, en þetta er lang­hlaup og enn er a.m.k. mán­uður eftir af stríð­inu. Núna þegar farið er að hægj­ast á virkum smitum er og Páskar eru í nánd er gríð­ar­lega mik­il­vægt að lands­menn haldi vöku sinni og haldi áfram að hlýða Víði!“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

„Til þess að hamra heim þessi skila­boð og leggja mál­efn­inu lið hefur hópur stór­popp­ara, ásamt þremur leynig­estum, sent frá sér mynd­band af lag­inu „Ferðumst inn­an­húss“. Lagið er betur þekkt á Íslandi sem „Góða ferð“ en er núna flutt við nýjan texta eftir Leif Geir Haf­steins­son.

„Allir þeir sem komu að lag­inu gáfu vinnu sína með glöðu geði“

Allir þeir sem komu að lag­inu gáfu vinnu sína með glöðu geði, allt til að leggja mik­il­vægu mál­efni lið og styðja við frá­bæra vinnu heil­brigð­is­yf­ir­valda og þeirra Þórólfs Guðna­sonar sótt­varn­ar­læknis, Ölmu D. Möller Land­læknis og Víðis Reyn­is­sonar, yfir­lög­reglu­þjóni.“

Textinn við lagið, sem hér er með­fylgj­andi, var sam­inn 28. til 29. mars og upp­haf­lega fluttur af Leifi Geir og syni hans, Krist­jáni Steini, til birt­ingar á Facebook-vegg þess fyrr­nefnda.

„Lagið og flutn­ing­ur­inn vakti nokkra athygli, var deilt víða og voru skrif­aðar nokkrar fréttir á vef­miðlum um upp­á­kom­una. Í kjöl­farið kvikn­aði sú hug­mynd hjá Leifi Geir að gera mynd­band af lag­inu í anda „We are the world“, safna saman stór­popp­urum Íslands og leynig­est­unum þremur og fá þá til að taka höndum saman við að hamra heim skila­boðin: „Hlýðum Víði“ og „Ferðumst inn­an­húss“ núna fyrir pásk­ana. Fyrsta sím­tal Leifs Geirs var fimmtu­dag­inn 2. apríl við Halldór Gunnar Pálsson, Fjalla­bróður, sem tók bolt­ann á lofti og þá var ekki aftur snúið. Síðan hafa þeir félagar lagt nótt við dag, með aðstoð alls þessa frá­bæra fólks sem lagði hönd á plóg, við að púsla öllu saman þ.a. næð­ist að koma lag­inu út í dag,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Hér má sjá flutn­ing Leifs Geirs og sonar hans, Krist­jáns Steins.

Til stuðn­ings almanna­vörnumLeifur Geir samdi texta og flutti lagið með Krist­jáni Steini, syni sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár