Víðir: „Við ætlum að vera heima hjá okkur um páskana“

Óform­legt sam­göngu­bann er komið á fyrir pásk­ana, til að forð­ast slys. Ekki verður eft­ir­lit með ferðum fólks.

Víðir: „Við ætlum að vera heima hjá okkur um páskana“
Af blaða­manna­fundi Almanna­varnir halda dag­lega blaða­manna­fundi klukkan 14. Mynd: Lögreglan

„Við ætlum að vera heima hjá okkur um pásk­ana. Njóta tím­ans með fjöl­skyld­unni. Við ætlum ekki að fara í ferða­lög,“ sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra, á blaða­manna­fundi almanna­varna í dag.

Víðir vill með þessu beina þeim til­mælum til þjóð­ar­innar að sleppa ferða­lögum um pásk­ana, til þess að minnka lík­urnar á því að slys verði, sem geti leitt til álags á gjör­gæslu. Þá vilja almanna­varnir forð­ast álagstoppa hjá heil­brigð­is­kerf­inu þar sem það er veikast fyrir, úti á landi.

Fram kom á fund­inum að ekki yrði fram­fylgt þessu óform­lega ferða­banni með eft­ir­liti. Ferða­frelsið er þannig skert óform­lega í for­varn­ar­skyni.

Almanna­varnir hafa ekki fyr­ir­skipað að samn­ingum um orlofs­leigu sum­ar­bú­staða verði slitið. Hins vegar kom fram á fund­inum að þeir full­trúar orlofs­leigu­að­ila sem hefðu haft sam­band við almanna­varnir og spurt hvort slíta ætti leigu­samn­ing­unum, hefðu verið beðnir um að gera það.

Átakið „Hlýði Víði“ hefur verið í gangi á sam­fé­lags­miðlum, eftir að Víðir gagn­rýndi fólk fyrir skað­lega hegðun á blaða­manna­fundi.

Víðir hvatti einnig almenn­ing í dag til þess að dreifa búð­ar­ferðum.

„Líka að hvetja fólk til að versla snemma um pásk­ana. Það er hætt við því, ef allir bíða með það fram á síð­ustu stundu, að það verði örtröð. Og eins og við vitum þá er tak­mark­aður fjöldi inn í hverja búð, og það mun valda því að fólk þarf þá að standa úti. Þannig að, verið tíma­lega að versla.“

Fram kom á blaða­manna­fund­inum að sam­komum­bann yrði fram­lengt út apr­íl­mánuð, en áður hafði það átt að standa fram að páskum.

1.220 stað­fest smit hafa nú fund­ist á Íslandi og eru þar af 41 á sjúkra­húsi og 12 á gjör­gæslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár