GusGus gefur tuttugu miða á tónleika eftir faraldurinn

Lesendur Stund­ar­innar geta tekið þátt í útdrátt­ar­leik og fengið gef­ins miða á tón­leika GusGus sem haldnir verða þegar lífið heldur áfram eftir far­ald­ur­inn.

GusGus á sviði Uppselt er á tvenna tónleika GusGus sem haldnir verða næsta haust, en bætt hefur verið við þriðju tónleikunum og verða 20 miðar gefnir á Stundinni

Nú þegar upp­selt er á tvenna tón­leika GusGus í nóv­em­ber næst­kom­andi hefur hljóm­sveitin ákveðið að gefa tutt­ugu miða á þriðju tón­leik­ana í Eld­borg­ar­sal Hörpu, í sam­starfi við Stundina.

Um er að ræða 25 ára afmæl­is­tón­leika GusGus sem haldnir verða 6. til 7. nóv­em­ber næst­kom­andi. Með þessu er ætl­unin að leiða huga fólks að því að lífið heldur áfram sinn vana­gang eftir að COVID-19 far­aldr­inum slotar og sam­komu­banni verður aflétt.

Þátttaka í útdrátt­ar­leiknum krefst þess að skrá nafn sitt í ummælum hér fyrir neðan frétt­ina og til­greina þar hvaða lag með GusGus er í upp­á­haldi hjá við­kom­andi, ásamt því að deila frétt­inni. 

Dregið verður í leiknum á Páskadag, sunnu­dag­inn 12. apríl. Sem fyrr segir er upp­selt á tvenna tón­leika hljóm­sveit­ar­innar. Ákveðið var að bæta við þriðju tón­leik­unum og hefst miða­sala á þá fimmtu­dag­inn 2. apríl.

Á tón­leik­unum munu fyrri með­limir GusGus einnig koma fram til að flytja mörg af vin­sæl­ustu og bestu lögum hljóm­sveit­ar­innar í gegnum árin.

Fram koma, ásamt GusGus: Daníel Ágúst Har­alds­son, Emiliana Torrini, John Grant, Högni Egilsson, Magnús Jónsson og Pres­ident Bongo.

GusGus hélt áður tón­leika í Eld­borg­ar­salnum fyrir ári síðan, við góðar við­tökur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár