Rétt slapp úr landi og heim til sín

Hrafn­kell Lárusson var staddur í Reykja­vík þegar til­kynnt var að Póllandi yrði lokað. Hann brást skjótt við og náði að bóka flug­far til Varsjár þar sem hann á heima. Litlu mátti muna að Hrafn­kell hefði ekki náð út og hefði þá þurft að búa í ferða­tösku um ótil­greindan tíma.

Rétt slapp úr landi og heim til sín
Slapp til Póllands áður en landa­mærin lok­uðu Hrafn­kell mátti bregð­ast við með hraði. Mynd: HÍ/Björn Gíslason

Á meðan íslenska utan­rík­is­þjón­ustan hvatti Íslend­inga sem staddir voru erlendis til að halda heim vegna óvissu sem útbreiðsla COVID-19 kór­óna­víruss­ins hefur valdið gerðu sumir þver­öf­ugt. Hrafn­kell Lárusson býr í Varsjá í Póllandi og er um þessar mundir á loka­stigum í skrifum á dokt­ors­rit­gerð sinni í sagn­fræði frá Háskóla Íslands. Hrafn­kell var staddur hér á landi í síð­ustu viku þegar pólsk yfir­völd ákváðu með litlum fyr­ir­vara að loka landa­mærum Póllands og mátti hann hafa sig allan við til að kom­ast úr landi og heim til sín í Varsjá.

Hrafn­kell hefur að mestu dvalið ytra síð­ast­liðin tvö ár. „Í lok árs 2017 stóð ég frammi fyrir því að þurfa að finna mér nýtt hús­næði á Íslandi og mér reikn­að­ist til að á bil­inu 80 til 90 pró­sent ráð­stöf­un­ar­tekna minna hefðu farið í húsa­leigu, hefði ég fundið mér hæfi­legt hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ég var að mestu búinn með gagna­öflun og gat því tekið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár