Fullkomnasta sláturskip í heimi notað til að minnka laxadauðann hjá Arnarlaxi

Norska slát­ur­skipið The Norwegian Gannet er á leið­inni til Íslands frá Danmörku. Hjálpar Arn­ar­laxi að slátra upp úr kvíum félags­ins í Arn­ar­firði þar sem erf­iðar aðstæður hafa valdið laxa­dauða. Laxinn verður fluttur beint af landi brott og í pökk­un­ar­verk­smiðju á Norður-Jótlandi.

Fullkomnasta sláturskip í heimi notað til að minnka laxadauðann hjá Arnarlaxi
Full­komn­asta slát­ur­skip í heimi The Norwegian Gannet er á leið­inni til lands­ins til að aðstoða Arnarlax við að slátra upp úr eld­iskví­unum í Arn­ar­firði þar sem erf­iðar aðstæður hafa valdið tals­verðum laxa­dauða.

Eitt þekktasta og full­komn­asta slát­ur­skip í heimi, The Norwegian Gannet, er á leið­inni til lands­ins til að aðstoða stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki lands­ins, Arnarlax, við að slátra upp úr eld­iskvíum fyr­ir­tæk­is­ins í Arn­ar­firði. Vont veður og erf­iðar aðstæður í Arn­ar­firði hafa valdið Arn­ar­laxi tjóni síð­ustu daga þar sem fyr­ir­tækið hefur ekki getað slátrað sjálft upp úr fimm eld­iskvíum sem fyr­ir­tækið rekur í firð­inum þar sem er að finna 4 þús­und tonn af eld­is­laxi í slát­ur­stærð, 6- 9 kíló, á að giska 450 til 650 þús­und laxar. 

Tals­verður laxa­dauði hefur verið í kvíum Arnarlax í Arn­ar­firði, sér­stak­lega einni kví, þar sem veðrið sem gengið hefur yfir veldur því meðal ann­ars að lax­arnir nudd­ast upp við sjó­kví­arnir, sár byrja að mynd­ast á þeim sem aftur eykur lík­urnar á fiski­sjúk­dómum sem drepið geta lax­ana.

Stundin greindi frá þessu í gær og sagði Gísli Jónsson, dýra­læknir fiski­sjúk­dóma hjá Mat­væla­stofnun, að von væri á skipi frá Danmörku í dag til að slátra upp úr kví­unum. „Það er von á skipi á morgun frá Danmörku til að hjálpa til við slátrun.“ Þetta er The Norwegian Gannet. 

„Slát­ur­skipið er engu líkt, engu, hvar sem leitað er“ 

 Arnarlax er því í kapp­hlaupi við tím­ann að bjarga þeim verð­mætum sem er að finna í eld­iskví­unum svo hægt sé að forð­ast frek­ari laxa­dauða og selja lax­inn til mann­eldis en ekki í dýra­fóður, meðal ann­ars, líkt og gert er við lax­inn sem drepst í kví­unum. 

Skipið sagt engu líkt

Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, hafði ekki svarað spurn­ingum sem Stundin sendi honum þegar fréttin var birt heldur vís­aði í frétt um komu skips­ins á heima­síðu Arnarlax þar sem meðal ann­ars segir: „Að auki er slát­ur­skipið Norwegian Gannet á leið til lands­ins til að aðstoða við slátrun en um er að ræða eitt full­komn­asta slát­ur­skip í heimi.“

Skipið er í eigu norskra aðila, eins og nafnið ber með sér, og eru lýs­ing­arnar á því þannig að það sé ein­stakt í heim­inum. Lýs­ing­arnar eru á köflum háfleygar. Á vef­síð­unni Salmon Business segir meðal ann­ars um skipið: „Slát­ur­skipið er engu líkt, engu, hvar sem leitað er.“ 

Laxinn fer beint af landi brott

Notkun Arnarlax á slát­ur­skip­inu þýðir að eld­is­lax­inn sem starfs­menn skips­ins munu slátra verður fluttur beint úr landi í The Norwegian Gannet. 

Í skip­inu er hægt að slátra 160 þús­und tonnum af eld­is­laxi á ári, sem er rúm­lega fimm­föld árs­fram­leiðsla á eld­is­laxi á Íslandi árið 2019. Skipið getur flutt 1.000 tonn af eld­is­laxi í einu. 

Laxinn er fluttur til bæj­ar­ins Hirts­hals á Norður-Jótlandi í Danmörku þar sem eig­andi skips­ins, norska fyr­ir­tækið Hav Line, á og rekur sína eigin pökk­un­ar­verk­smiðju. Eins og segir á heima­síð­unni Salmon Business þá felur notkun skips­ins það í sér að ekki þarf að fara með lax­inn í land þar sem sjó­kví­arnar sem hann slátrar upp úr eru. „Í þessu felst að skipa­fé­lagið Hav Line, eig­andi The Norwegian Gannet, sleppi við þá erf­ið­leika sem fel­ast í lok­uðum og eða hættu­legum vegum.“ 

Erfiðar sam­göngur á Íslandi, og til og frá Íslandi, eru meðal þeirra aðstæðna sem Arnarlax hefur nefnt sem hindr­anir fyrir frek­ari upp­gangi lax­eldis á Íslandi. Notkun skipa eins og The Norwegian Gannet kemur eyðir þessu til­tekna vanda­máli en felur líka í sér að sjó­kvía­eldið skapar ekki eins mikla atvinnu fyrir fólk í landi þar sem slátrun og önnur vinnsla á lax­inum og flutn­ingur á honum er á ann­arra höndum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár