„Við viljum fá fleiri á flug með okkur“

Þær Sigríður Þor­geirs­dóttir heim­spek­ingur og Katrín Ólína lista­maður hafa báðar átt far­sælan feril hvor á sínu sviði. Í nýja vefrit­inu Smáspeki, eða Minisophy, leiða þær saman reynslu sína og þekk­ingu á nýstár­legan hátt. Í því má finna mynd­mál, örtexta og æfingar til að virkja hugsun og vekja vit­und.

„Við viljum fá fleiri á flug með okkur“
Sigríður og Katrín Ólína Þær hafa báðar fetað ótroðnar slóðir í sínum störfum í gegnum tíð­ina. Þær sam­eina krafta sína í vefrit­inu Smáspeki og vilja með því hjálpa öðrum að efla sjálfa sig. Mynd: Minisophy / Katrín Ólína

Vefritið Smáspeki sam­anstendur af mynd­máli, örtextum og æfingum sem þær Sigríður Þor­geirs­dóttir heim­speki­pró­fessor og Katrín Ólína, vöru­hönn­uður og graf­ískur lista­maður, hafa sett saman í því mark­miði að virkja hugsun og vekja vit­und. „Okkur finnst heim­speki svo skemmti­leg og allir geta fíló­só­ferað. Við vildum fá fleiri á flug með okkur og þannig kom Smá­spekin til. Við köllum það Minisophy á ensku en nafnið vísar til philosophia, eða heim­speki sem ástar á visku. Þetta er Smáspeki forms­ins vegna því textar og myndir eru á smáu formi,“ útskýrir Katrín Ólína, sem segir það heil­mikla kúnst að kjarna spurn­ingu eða álita­mál á meit­l­aðan og skilj­an­legan hátt. Þær vinni þó mark­visst með smá­formið, þar sem fólk hafi lít­inn tíma og áunna skerta athygl­is­gáfu. Því sé lag að miðla efni í stuttu máli. Smá­spek­ina má bæði lesa á íslensku og ensku og henni er safnað saman eftir þemum á vef­síð­unni www.minisophy.com. Þá er hún jafn­framt bæði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár