Aldursfordómar að kenna elli hirðdömu um kynþáttafordóma

Hirðdama á níræð­is­aldri hefur sagt skilið við bresku hirð­ina eftir að hafa látið rasísk ummæli falla um for­mann góð­gerð­ar­sam­taka í mót­töku í Buckingham-höll. Þetta er síður en svo í fyrsta skipti sem kyn­þátta­for­dómar varpa skugga á kon­ungs­fjöl­skyld­una.

Elísabet Englandsdrottning og hirðdaman Susan Hussey voru nánar vinkonur og samstarfskonur.
Elísabet Eng­lands­drottn­ing og hirð­daman Susan Hussey voru nánar vin­konur og sam­starfs­konur. Mynd: Twitter

Ngozi Fulani, yfir­maður góð­gerð­ar­sam­taka, var meðal 300 gesta í góð­gerð­ar­boði Camillu Eng­lands­drottn­ingar í vik­unni þar sem til­efnið var her­ferð þar sem barist er gegn heim­il­is­of­beldi sem Camilla stendur fyrir.

Susan Hussey, 83 ára hirð­dama og ein sex guð­mæðra Vil­hjálms prins, spurði Fulani, sem er svört, ítrekað hvaðan hún „raun­veru­lega“ væri. Fulani lýsir sam­tal­inu við Hussey eins og yfir­heyrslu og segir sam­ræð­urnar, ef svo má kalla, and­legt ofbeldi.

„Þetta var eins og yfir­heyrsla. Ætli ég geti ekki aðeins útskýrt þetta svona: hún spurði ítrekað: Hvaðan ertu? Hvaðan er fólkið þitt?“ segir Fulani.

Hún lýsir samtalinu á þessa leið í samtali við BBC:

Hussey: Hvaðan ertu?

Fulani: Sistah Space (góð­gerð­ar­sam­tökin sem hún stýrir)

Hussey: Nei, hvaðan ertu?

Fulani: Við erum með aðstöðu í Hackney.

Hussey: Nei, hvaðan frá Afríku ertu?

Fulani: Ég veit það ekki, það eru ekki til gögn um það.

Hussey: Jæja, þú hlýtur að vita hvaðan þú ert, ég dvaldi um tíma í Frakk­landi. Hvaðan ert þú?

Fulani: Héðan, frá Bret­landi.

Hussey: Nei, en af hvaða þjóð­erni ertu?

Fulani: Ég er fædd og upp­alin í Bret­landi.

Hussey: Nei en, hvaðan ertu í raun og veru, hvaðan kemur fólkið þitt?

Fulani: Fólkið mitt, frú mín, hvað meinar þú?

Hussey: Ó það er greini­legt að það verður áskorun að fá þig til að segja mér hvaðan þú ert. Hvenær komstu hingað fyrst?

Fulani: Frú! Ég er breskur rík­is­borg­ari, for­eldrar mínir komu hingað á 6. ára­tugnum þegar…

Hussey: Ó ég vissi að við kæm­umst þangað á end­anum, þú ert frá kar­ab­ísku eyj­unum!

Fulani: Nei frú, arf­leifð mín er afrísk, ég á ættir að rekja til Karí­ba­hafs­ins og rík­is­fang mitt er breskt.

Hussey: Ó svo þú ert frá…

Getur konungsfjölskyldan endurspeglað fjölbreytileika bresks samfélags?

Hussey baðst síðar afsök­unar á orðum sínum og í til­kynn­ingu frá kon­ungs­höll­inni segir að kyn­þátta­for­dómar megi hvergi þríf­ast. Hussey var vikið úr bresku hirð­inni og er athæfi hennar metið óásætt­an­legt.

Aldur hirð­döm­unnar hefur verið dreg­inn inn í umræð­una og heyrst hafa raddir þess efnis að sýna þurfi skiln­ing að Hussey sé ein­fald­lega af annarri kyn­slóð. Fulani gefur lítið fyrir þær skýr­ingar.

„Þetta er að mínu mati óvirð­ing og í raun ald­urs­for­dómar,“ segir Fulani, sem furðar sig á að svona fram­koma eigi sér stað á við­burði þar sem til­efnið er að vernda konur gegn hvers konar ofbeldi.

„Þó svo að þetta sé ekki lík­am­legt ofbeldi, þá er þetta ofbeldi.“

Atvikið hefur vakið upp spurn­ingar hvort breska kon­ungs­fjöl­skyldan geti end­ur­speglað fjöl­breyti­leika bresks nútíma­sam­fé­lags og dregur upp stífa mynd af Buckingham-höll.

[links]Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kyn­þátta­for­dómar varpa skugga á bresku kon­ungs­fjöl­skyld­una, síður en svo. Í við­tali við Opruh Winfrey greindu Harry og Meghan frá því að kyn­þátta­for­dómar innan kon­ungs­hall­ar­innar hefðu haft áhrif á ákvörðun þeirra um að segja skilið við kon­ung­un­legar skyldur sínar og flytja til Kanada, og síðar Banda­ríkj­anna.

Í við­tal­inu kemur fram að þegar Meg­han sagði frá kyn­þátta­for­dómum sem hún og ófætt barn hennar hefðu orðið fyrir frá fólki í fjöl­skyld­unni var því hins vegar mætt með þrúg­andi þögn klukku­stundum sam­an. Og ekki stakt orð barst frá höll­inni í tvo sól­ar­hringa um þá höfnun og það afskipta­leysi sem Meg­han upp­lifði, örvingluð og ótta­sleg­in, er hún bað um aðstoð vegna yfir­þyrm­andi van­líð­un­ar.

Kon­ungs­höllin virð­ist hafa lært eitt­hvað af þessu, það að leið að minnsta kosti ekki langur tími þar til greint var frá því að Hussey væri ekki lengur hluti af bresku hirð­inni, sem hún var þó í rúm 50 ár.

Náin vinkona Elísabetar drottningar en ekki í náðinni hjá Díönu

Susan Kathar­ine Hussey, bar­ó­nessa af Norður Bradley, er 83 ára og ein guð­mæðra Vil­hjálms Breta­prins. Hussey og Elísabet Eng­lands­drottn­ing voru mjög nánar.

Hussey kom stutt­lega fyrir í nýj­ustu þátta­röð­inni af The Crown þar sem ljósi er varpað á náið sam­band hennar og Elísa­betar heit­innar Eng­lands­drottn­ingar. Hussey hefur starfað sem hirð­dama kon­ungs­fjöl­skyld­unnar frá 1960, þegar Elísabet eign­að­ist sitt þriðja barn, Andrew prins.

[adspot]Hlutverk hirð­dama er alla jafna sinnt af auð­ugum hefð­ar­frúm sem eru ekki greidd laun fyrir en að fá stöðu hirð­dömu þykir afar virð­ing­ar­vert hlut­verk.

Í fyrstu fólst starf hennar einna helst í að aðstoða við að svara bréfum en varð fljótt hluti af innsta hring drottn­ingar og aðstoð­aði nýja nýgræð­inga innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar að aðlag­ast líf­inu í höll­inni, þar á meðal Díönu prinsessu og Meghan Markle. Samkvæmt höf­undi bók­ar­innar The Windsor Knot, Christopher Wilson, þar sem fjallað er um líf Díönu í höll­inni, kunni hún illa við hirð­döm­una Susan.

Hussey og Elísabet voru mjög nánar og fylgdi Hussey henni til að mynda í jarð­ar­för Fil­ippusar í apríl í fyrra og vék ekki frá henni.

Kon­ungs­höllin til­kynnti nýlega að Hussey og aðrar hirð­dömu sem aðstoð­uðu Elísa­betu drottn­ingu í hennar störfum myndu nú aðstoða Karl kon­ung við ýmsa við­burði og verða nú titl­aðar „dömur hirð­ar­innar“ (e. Ladies of the household).

Hussey hefur nú sagt sig frá því starfi og beðist afsök­unar á því að hafa end­ur­tekið spurt Fulani hvaðan hún væri í raun og veru.

Í til­kynn­ingu frá kon­ungs­höll­inni segir að atvikið sé álitið mjög alvar­legt og verði „rann­sakað í þaula“. Það felst meðal ann­ars í því að bjóða Fulani aftur í höll­ina til að ræða hennar upp­lifun, ef hún óskar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár