„Aftur ver fjármálaráðherra Íslands titilinn um dýrustu bjórkrús í Evrópu“

Áfeng­is­gjald og dýrasta bjór­krús í Evrópu voru til umræðu á Alþingi í dag. Þing­maður Við­reisnar spurði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hvar ystu mörk Sjálf­stæð­is­flokks­ins í skatta­hækk­unum liggja.

Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar, spurði fjármála- og efnahagsráðherra hvar ystu mörk Sjálfstæðisflokksins í skattahækkunum liggja.
Þorbjörg Sigríður Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar, spurði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hvar ystu mörk Sjálf­stæð­is­flokks­ins í skatta­hækk­unum liggja. Mynd: Eyþór Árnason

„Áfeng­is­skattar á Íslandi eru þeir hæstu í Evrópu og þótt víðar væri leitað. Bjórinn á Íslandi er fyrir vikið sá dýr­asti í Evrópu og þótt víðar væri leitað,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag, áður en hún vís­aði í orð Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem hann lét falla um áfeng­is­gjöld fyrir nokkru.

„Það er mín skoðun að við séum komin algjör­lega út í ystu mörk á skatt­lagn­ingu, þá er ég ein­fald­lega að vísa til þess að við erum lík­lega með eina dýr­ustu bjór­krús í Evrópu. Mér finnst ekki endi­lega að það eigi að vera þannig,“ sagði Bjarni.

Þorbjörg Sigríður sagði þetta hörð orð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um eigin skatta­stefnu. „Og sami fjár­mála­ráð­herra leggur núna fram fjár­laga­frum­varp þar sem þetta áfeng­is­gjald, hans sjálfs, hækkar um heil 7,7 pró­sent. Það kom þá kannski bara í ljós að fjár­mála­ráð­herra fann að hann var ekki kom­inn að ystu mörkum, þessum ystu mörkum skatt­lagn­ingar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eða fann ein­hver ný ystu mörk í þeim efnum,“ sagði Þorbjörg á þingi í dag.

Í fjár­laga­frum­varp­inu er gert ráð fyrir því að hækka allskyns neyslu­skatta, skatta sem launa­fólk greiðir í rík­is­sjóð, á næsta ári. Þetta eru til að mynda áfeng­is-, tóbaks-, bens­ín-, olíu-, kolefn­is-, og kíló­metra­gjald. Alls er lagt til að áfengis- og tóbaks­gjaldið hækki um 7,7 pró­sent milli ára.

[links]Þá ætlar rík­is­sjóður að auka tekjur um 700 millj­ónir króna á næsta ári með því að draga úr afslætti í toll­frjálsum versl­unum þannig að áfeng­is­gs­gjaldið í þeim fari úr tíu í 25 pró­sent og tóbaks­gjaldið úr 40 í 50 pró­sent. Þetta mun fyrst og síð­ast hafa áhrif á frí­höfn­ina í Leifs­stöð þar sem ferða­menn hafa hingað til getað keypt ódýr­ara áfengi og tóbak en ann­ars­staðar á land­in­u.

Þorbjörg sagði þessar hækk­anir þó ekki koma á óvart þar sem rík­is­stjórnin hafi litið á það sem skyn­sam­lega aðgerð að hækka áfeng­is­gjöld í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum þegar „veit­inga­húsin reru líf­róður vegna sam­komu­tak­mark­ana í heims­far­aldri“ og gera róð­ur­inn þannig þyngri.

Allir sem flytja inn eða fram­­­­leiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu ber að greiða áfeng­is­­­­gjald. Einnig þeir sem flytja áfengi með sér eða fá það sent erlendis frá, til eigin nota. Áfeng­is­­­­gjald er greitt af neyslu­hæfu áfengi sem í er meira en 2,25 pró­­­­sent af vín­­­­anda að rúm­­­­máli. Þessu gjaldi er velt út í verð­lag og því hækkar það útsölu­verð til neyt­enda.

Tekjur vegna áfeng­is­gjalds­ins á næsta ári eru áætl­­aðar um 25,5 millj­­arðar króna sem er 1,7 hærra en áætlað er fyrir 2022. Tekjur rík­­is­­sjóðs af áfeng­is­gjaldi hafa því hækkað um 37 pró­­sent frá 2018, eða í krónum talið eða um 6,9 millj­­arða króna.

Hækkanir ekki í takt við markmið um að halda verðbólgu í skefjum

Þorbjörg Sigríður benti á að Félag atvinnu­rek­enda, auk fjölda ann­arra sam­taka, hafa gagn­rýnt hækkun á áfeng­is­gjaldi sem og fleiri gjöldum.

„Félag atvinnu­rek­enda nefnir að engri rík­is­stjórn eða lög­gjaf­ar­sam­kundu í þeim löndum sem Ísland ber sig saman við detti í hug að ganga jafn langt,“ sagði Þorbjörg Sigríður.

Ferða­þjón­ustan og hags­muna­verðir hennar hafa einnig gagn­rýnt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp á ýmsan hátt og telja hækkun gjalda á áfengi, tóbak og elds­neyti muni draga úr getu Íslands til að keppa um ferða­menn. Hærra verð í frí­höfn­inni muni leiða af sér að ferða­menn kaupi áfengi frekar á brott­far­ar­flug­völlum, taki það með í hand­far­angri og þyngi vél­arnar.

Þorbjörg Sigríður sagði að hækk­an­irnar muni hafa áhrif á verð­lag og verð­bólgu og ganga á engan hátt í takt við mark­mið fjár­mála­ráð­herr­ans sjálfs um að halda verð­bólgu í skefjum.

„Hæsta áfeng­is­verð Evrópu hækkar enn. Aftur ver fjár­mála­ráð­herra Íslands tit­il­inn um dýr­ustu bjór­krús í Evrópu. Og spurn­ingin sem þá stendur eftir hlýtur að vera: Hvar liggja eig­in­lega þessi ystu mörk Sjálf­stæð­is­flokks­ins í skatta­hækk­unum?“ spurði Þorbjörg Sigríður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár