Ríkið kaupir hluta nýrra höfuðstöðva Landsbankans á 6 milljarða króna

Íslenska ríkið mun festa kaup á hluta af nýjum höf­uð­stöðvum Lands­bank­ans fyrir 6 millj­arða króna. Þar á að koma fyrir utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, auk þess sem hluta rým­is­ins á að nýta undir sýn­ingar Lista­safns Íslands.

Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrarsviðs Landsbankans, Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra við undirritun samningsins.
Hreiðar Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála og rekstr­ar­sviðs Lands­bank­ans, Lilja Björk Ein­ars­dóttir banka­stjóri, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við und­ir­ritun samn­ings­ins. Mynd: Stjórnarráðið

Íslenska ríkið er búið að und­ir­rita samn­ing um kaup á svo­nefndu Norð­ur­húsi við Aust­ur­bakka, en um er að ræða tæp­lega 6 þús­und fer­metra hluta af hús­inu sem Lands­bank­inn hefur verið að byggja undir nýjar höf­uð­stöðvar sínar við Aust­ur­höfn. Frá þessu er sagt í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Kaup­verðið er um 6 millj­arðar króna fyrir full­frá­gengið hús­næði, og verður það keypt fyrir sér­staka við­bót­ararð­greiðslu frá Lands­bank­anum til rík­is­sjóðs, sem þegar hefur verið innt af hendi.

Utanríkisráðuneytið og Listasafn Íslands í húsið

„Fyr­ir­hugað er að starf­semi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins verði komið fyrir í bygg­ing­unni, ásamt því að nýta hluta hennar undir sýn­ingar- og menn­ing­ar­tengda starf­semi á vegum Lista­safns Íslands og er þá eink­an­lega horft til sam­tíma­listar,“ segir í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

[adspot]

Í henni segir einnig að hús­næð­is­kostur Stjórn­ar­ráðs­ins sé háður miklum ann­mörkum og að hús­næði ráðu­neyt­anna sé sund­ur­leitt, á mörgum stöðum og í mörgum til­fellum úrelt.[links]

„Fyrir liggur að utan­rík­is­ráðu­neytið mun næsta haust missa stóran hluta hús­næðis síns sem það hefur haft á leigu. Með flutn­ingi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í Norð­ur­hús Aust­ur­bakka verður starf­sem­inni komið fyrir á einum stað í sveigj­an­legu og nútíma­legu hús­næði sem verður nýtt með hag­kvæmum hætti,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­anna.

Var hitamál í ríkisstjórninni

Kjarninn sagði frá því í júlí­mán­uði að til­laga hefði verið lögð fram á rík­is­stjórn­ar­fundum um að kaupa hluta húss­ins á sex millj­arða króna í sumar, en að and­staða hefði verið við kaupin á meðal ein­hverra ráð­herra, þar sem kaup­verðið þætti ekki for­svar­an­legt á sama tíma og rík­is­sjóður boð­aði aðhalds­að­gerðir.

Heim­ildir Kjarnans hermdu að þetta hefði verið mikið hita­mál innan rík­is­stjórn­ar­innar, og að aðrir ráð­herrar hefðu sótt það fast að húsið yrði keypt undir starf­semi þeirra ráðu­neyta, en það voru þær Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir ráð­herra háskóla-, nýsköp­unar og iðn­aðar.

Einungis utan­rík­is­ráðu­neytið mun hins vegar verða fært í húsa­kynnin við Aust­ur­höfn, sem áður segir.

Upp­stokk­unin á hús­næði stjórn­ar­ráðs­ins á rætur sínar að rekja til þess að sitj­andi rík­is­stjórn ákvað að fjölga ráð­herrum um tvo þegar Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur end­ur­nýj­uðu stjórn­ar­sam­starf sitt í fyrra­haust. Þá þurfti að koma fleiri ráðu­neytum fyr­ir.

Sam­kvæmt svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi fyrr á þessu ári var áætlað að breytt skipan ráðu­neyta gæti kostað rík­is­sjóð allt að 1,77 millj­­örðum króna á þessu kjör­­tíma­bili. Kostn­að­­ur­inn færi aðal­­­lega í fjölgun starfa sem fylgi breyttu skipu­lagi, þar á meðal rit­­ara, bíl­­stjóra og aðstoð­­ar­­manna nýrra ráð­herra. Þar var því ekki tekið inn í dæmið mögu­legur við­bót­ar­hús­næð­is­kostn­að­ur.

Ætla einnig að kaupa gamla Landsbankahúsið

Einnig er greint frá því í til­kynn­ingu stjórn­valda að ákveðið hafi verið að ganga til samn­inga um kaup á gamla Lands­banka­hús­inu við Aust­ur­stræti.

„Sú bygg­ing er eitt af helstu kenni­leitum borg­ar­innar og menn­ing­ar­sögu­lega verð­mæt sem slík. Það telst því álit­legur kostur að bygg­ing­unni verði fundið verð­ugt hlut­verk í íslensku sam­fé­lagi, t.a.m. undir starf­semi dóm­stóla en end­ur­skipu­leggja þarf hús­næð­is­mál þeirra til lengri tíma,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár