Gæti kostað allt að 1,8 milljarða að breyta skipulagi ráðuneyta

Áætlaður við­bót­ar­kostn­aður af breyttri skipan ráðu­neyta gæti numið 1.800 millj­ónum króna, segir fjár­mála­ráð­herra. Þar af munu 172 millj­ónir króna fara í tvo nýja aðstoð­ar­menn ráð­herra.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Breytt skipan ráðu­neyta í nýrri rík­is­stjórn gæti kostað rík­is­sjóð allt að 1,77 millj­örðum króna á þessu kjör­tíma­bili. Kostn­að­ur­inn fer aðal­lega í fjölgun starfa sem fylgir breyttu skipu­lagi, þar á meðal rit­ara, bíl­stjóra og aðstoð­ar­manna nýrra ráð­herra. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, sem birt­ist á vef Alþingis í dag.

Fyr­ir­spurn Helgu var í nokkrum liðum, en í þeim fyrsta var spurt um árlegan við­bót­ar­kostnað rík­is­sjóðs við að fjölga ráð­herrum um tvo, líkt og rík­is­stjórnin hefur gert. Samkvæmt Svari Bjarna er áætl­aður heild­ar­launa­kostn­aður vegna þess 13 millj­ónir króna fyrir hvern ráð­herra, en honum fylgja tveir aðstoð­ar­menn sem kosta 43 millj­ónir króna árlega, auk rit­ara sem kosta 11 millj­ónir króna og bíl­stjóra sem kosta 14 millj­ónir króna.

Til við­bótar er einnig kostn­aður fólgin í stofnun tveggja nýrra ráðu­neyta, þar sem ráðu­neyt­is­stjórum og almennum starfs­mönnum þeirra muni fjölga, auk þess sem annar rekstr­ar­kostn­aður og leiga á hús­næði fellur til. Svo er einnig tal­inn með kostn­aður við 30 millj­óna kaup á bún­aði og tækjum fyrir bæði ráðu­neytin og 40 millj­óna króna auka­fjár­heim­ild vegna óvissu. Samtals nemur heild­ar­fjár­heim­ildin 450 millj­ónum króna.

Helga spurði einnig hvernig kostn­að­ur­inn skipt­ist upp í launa­kostnað og annan kostnað vegna breyt­inga á skrif­stofu­hús­næði. Samkvæmt svari Bjarna er stærsti hlut­inn, eða um 84 pró­sent, vegna fjölg­unar starfa, en við­bót­ar­kostn­aður vegna breyt­inga á hús­næði er tal­inn vera tak­mark­aður þar sem þegar var hafin vinna við að færa starf­semi Stjórn­ar­ráðs­ins yfir í nýtt hús­næði.

Bjarni áætl­aði að upp­safn­aður við­bót­ar­kostn­aður fyrir allt kjör­tíma­bilið í heild sinni myndi nema 1,77 millj­örðum króna, en bætti þó við að kostn­að­ur­inn gæti orðið nokkru hærri ef nýta þurfti svig­rúm fyrir óvissu í áætl­un­inni. Á móti vegi að Stjórn­ar­ráðið hygð­ist ráð­ast í end­ur­skipu­lagn­ingu á fyr­ir­komu­lagi stoð­þjón­ustu ráð­herra, en sam­kvæmt honum gæti slík breyt­ing leitt til auk­ins hag­ræðis í rekstri, sem ekki sé tekið til­lit til í þessum tölum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár