Verðbólgan byrjuð að lækka – Mælist 9,7 prósent

Tólf mán­aða verð­bólga lækk­aði milli mán­aða úr 9,9 í 9,7 pró­sent. Þetta er í fyrsta sinn frá sumr­inu 2021 sem verð­bólgan lækkar milli mán­aða.

Síð­ast­liðna tólf mán­uði hefur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 9,7 pró­sent. Það þýðir að verð­bólgan nú er minni en hún mæld­ist í júlí, þegar hún mæld­ist 9,9 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri til­kynn­ingu frá Hagstofu Íslands um vísi­tölu neyslu­verðs sem birt var í dag.

Þetta er í fyrsta sinn síðan í júní 2021 sem tólf mán­aða verð­bólga lækkar milli mán­aða.

Vísi­talan hækk­aði þó í ágúst, alls um 0,29 pró­sent frá fyrra mán­uði. Sum­ar­út­sölum er að ljúka og hækk­aði verð á fötum og skóm um 3,5 pró­sent og verð á hús­gögnum og heim­il­is­bún­aði hækk­aði um 6,4 pró­sent.

Kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði hækk­aði um 0,9 pró­sent verð á flug­far­gjöldum til útlanda lækk­aði um 8,7 pró­sent og verð á bens­íni og olíum lækk­aði um 3,9 pró­sent.

[adspot]Seðla­banki Íslands hefur hækkað stýri­vexti nokkuð skarpt und­an­farið til að reyna að vinna gegn verð­bólgu. Þeir eru nú komnir í 5,5 pró­sent en voru 0,75 pró­sent í maí í fyrra. Í Pen­inga­málum Seðla­bank­ans, sem birt voru í síð­ustu viku, kom­fram að bank­inn reiknar með því að verð­bólgan verði komin í 10,8 pró­sent fyrir árs­lok.

Verð­bólgu­horfur fari auk þess versn­andi vegna tölu­vert kröft­ugri vaxtar á inn­lendri eft­ir­spurn en búist var við í vor og hæg­ari hjöðnun á verð­hækk­unum á hús­næð­is­verði, en það er enn að hækka þótt hægt hafi á. Þar skipta miklar vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans og þrengri lána­skil­yrði sem hann hefur sett lyk­il­máli. Það er erf­ið­ara, og minna eft­ir­sókn­ar­vert, að taka hús­næð­is­lán nú en fyrir nokkrum mán­uðum síð­an.

[links]Helsti drif­kraftur verð­bólg­unnar hefur nefni­lega verið gríð­ar­leg hækkun á hús­næð­is­verði, en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur það hækkað um 25,5 pró­sent á einu ári.

Það er þó margt annað sem hefur hækk­að. Verð á almennri þjón­ustu hefur hækkað um 8,5 pró­sent á einu ári, og vega miklar hækk­anir á flug­gjöldum þar þyngst. Inn­lendar vörur hafa hækkað um 8,7 pró­sent á sama tíma, en þar vegur verð­hækkun á mat­vöru þyngst. Elds­neyt­is­verð hækk­aði líka skarpt á fyrri hluta árs­ins, eða alls um 41 pró­sent milli ára. Það hefur þó tekið að lækka und­an­farnar vik­ur. Það hefur hrá­vöru­verð á alþjóða­mörk­uðum líka gert.

Á sama tíma hækk­aði launa­vísi­talan um 8,4 pró­sent, eða minna en ofan­greindir útgjalda­lið­ir. Á manna­máli þýðir það að ef fólk ætl­aði að eyða því sama, eða meira, og það gerði fyrir ári þá þarf það annað hvort að ganga á sparnað eða fá eyðsl­una lán­aða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár