Kynntu sex aðgerðir til að flýta innritun barna á leikskóla

Borg­ar­ráð Reykja­víkur sam­þykkti í dag aðgerða­á­ætlun í sex liðum, sem ætluð er til þess að flýta inn­ritun barna á leik­skóla. For­eldrar ungra barna hafa sett mik­inn þrýst­ing á borg­ar­full­trúa sökum þess að útgefnar áætl­anir hafa ekki stað­ist.

Alls eru nú 665 börn sem verða 12 mánaða eða eldri þann 1. september á biðlista eftir plássi á leikskólum í Reykjavík.
Alls eru nú 665 börn sem verða 12 mán­aða eða eldri þann 1. sept­em­ber á biðlista eftir plássi á leik­skólum í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór

Borg­ar­ráð Reykja­víkur sam­þykkti í dag sex til­lögur, sem ætlað er að flýta inn­ritun barna á leik­skóla í borg­inni. Skúli Helgason borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður stýri­hóps­ins Brúum bilið kynnti til­lög­urnar á fundi sem fram fór í Ráðhúsi Reykja­víkur.

Í máli hans kom fram að alls stefndi í að ný leik­skóla­pláss í borg­inni yrðu 553 tals­ins á þessu ári og 376 á næsta ári. Samkvæmt því sem Skúli sagði á fund­inum eru um 665 börn, sem verða orðin 12 mán­aða eða eldri þann 1. sept­em­ber, með umsóknir um leik­skóla­pláss í borg­inni – eða á hinum svo­kall­aða biðlista.

Skoða Korpuskóla ef áhugi er hjá foreldrum

Til­lög­urnar sex fel­ast í fyrsta lagi í því að flýta opnun leik­skóla, svo­kall­aðrar Ævin­týra­borgar í Naut­hóls­vík, strax í byrjun sept­em­ber. Skúli sagði að það lægi fyrir að það yrði hægt, eftir sam­töl við alla hlut­að­eig­andi. Aðlögun barna verður flýtt og á að klár­ast á einum mán­uði og kraftur verður settur í að klára hús­næði skól­ans, en fram­kvæmdir við úti­svæði munu ekki klár­ast strax. Útivera barn­anna verður því í nærum­hverfi skól­ans, í Öskju­hlíð­inni, til að byrja með.

Önnur aðgerðin er sú að laust hús­næði í eigu borg­ar­innar verði nýtt til að taka við börnum strax í haust. Meðal ann­ars er hafin könnun á því hvort taka megi við börnum í Korpu­skóla í Graf­ar­vogi. Þar eigi að geta verið pláss fyrir 120-150 börn, að sögn Skúla. Einnig er til skoð­unar að opna tvær deildir til við­bótar á leik­skól­anum Bakka, sem er á svip­uðum slóðum í Graf­ar­vog­inum.

Einnig hefur verið lagt til að skoða hvort hægt sé að nýta hús­næði frí­stunda­heim­ila og annað hús­næði á vegum borg­ar­innar og sam­starfs­að­ila tíma­bundið undir leik­skóla­starf. Skúli sagði að það yrði þá e.t.v. hægt að bjóða börnum að koma inn á frí­stunda­heim­ili fyrri hluta dags. Þessi önnur aðgerð er háð áhuga for­eldra á því að þiggja pláss sem standa til boða, og er einnig með fyr­ir­vara um mönnun.

[adspot]

Þriðja aðgerðin snýr að því að setja upp nýjan leik­skóla með 100 plássum í Fossvogi, í Ævin­týra­borg­ar­hús­næði, á lóð sem er við hlið Rækt­un­ar­stöðvar Reykja­víkur. Skúli sagði að raun­hæfur tímara­mmi í þessum efnum væru 9 mán­uðir, og leik­skóli gæti því verið ris­inn um mitt næsta ár.

Fjórða aðgerðin sem sam­þykkt var er mögu­leg stækkun leik­skól­ans Steina­hlíðar við Suð­ur­lands­braut. Skúli sagði að á leik­skól­anum væru 55 börn í dag, en að vilji hefði verið hjá Barna­vina­fé­lag­inu Sum­ar­gjöf, sem á lóð­ina og hús­næði skól­ans, til að stækka leik­skól­ann. Ekki hefur verið ráð­ist í form­legar við­ræður um stækk­un­ina, en til stendur að gera það.

Í fimmta lagi var sam­þykkt að hækka nið­ur­greiðslu vegna þjón­ustu dag­for­eldra til þess að fjölga dag­for­eldrum, styrkja starfs­grund­völl þeirra og lækka útgjöld for­eldra sem nýta sér þjón­ustu dag­for­eldra. Stofn­styrkir verði hækk­aðir og fleiri leiðir til úrbóta kann­aðar, s.s. hús­næð­is­stuðn­ingur og fræðslu­styrkir.

Sjötta og sein­asta aðgerðin er svo sú að taka verk­lag leik­skóla­inn­rit­unar til skoð­unar. End­ur­skoða á verk­lagið með til­liti til bættrar upp­lýs­inga­gjafar til for­eldra, ein­föld­unar umsókn­ar­fer­ils og meira gagn­sæis. Skúli sagði að draum­ur­inn væri sá að for­eldrar gætu farið inn á vef borg­ar­innar og séð hvar laus pláss stæðu til boða. Hann sagði einnig lyk­il­at­riði að sjálf­stætt starf­andi leik­skólar verði hluti af sama inn­rit­un­ar­kerfi og þeir borg­ar­reknu, til að eyða tví­taln­ingu í kerf­inu.

Áætlanir stóðust ekki

Meiri­hluti borg­ar­stjórnar hefur verið harð­lega gagn­rýndur und­an­farnar vikur, eftir að úthlutun plássa á leik­skóla í haust lá fyrir. Ljóst er að þvert á það sem sumir borg­ar­full­trúar boð­uðu fyrir kosn­ingar, og raunar emb­ætt­is­menn borg­ar­innar líka, verður ekki hægt að taka á móti 12 mán­aða gömlum börnum inn á leik­skóla í haust.[links]

Er Kjarninn spurð­ist fyrir um þessi mál, í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga, feng­ust þau svör frá upp­lýs­inga­full­trúa borg­ar­innar að Reykja­vík­ur­borg væri að vinna eftir áætl­unum sem gerðu ráð fyrir því að hefja inn­töku 12 mán­aða barna strax í haust.

Á dag­inn hefur komið að ekki mun raun­ger­ast að 12 mán­aða börn fái pláss á leik­skóla í haust, fjölda plássa skeikar þar um nokkur hund­ruð. Þetta hefur sett áætl­anir margra for­eldra í upp­nám, enda höfðu stjórn­mála­menn talað með þeim hætti að hægt yrði að koma börnum inn á leik­skóla ef þau yrðu orðin 12 mán­aða gömul í upp­hafi nýs skóla­vetrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leikskólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár