Rúmlega þriðjungur heimila á ekkert eftir í veskinu í lok mánaðar

Næstum átta af hverjum tíu í lægsta tekju­hópnum ná ekki að leggja neitt fyrir, ganga á sparnað eða safna skuldum í yfir­stand­andi dýr­tíð. Hjá efsta tekju­hópnum geta næstum níu af hverjum tíu enn lagt fyrir, sumir umtals­vert.

Alls 34 pró­sent heim­ila nota allt ráð­stöf­un­arfé sitt til að ná endum saman í hverjum mán­uði, eru að ganga á sparnað eða að safna skuldum. Þetta kemur fram í nýrri könnun Prósents sem Frétta­blaðið greinir frá í dag.

Þar segir að tæpur fjórð­ungur aðspurðra, 24 pró­sent, nái endum saman með naum­indum en tíu pró­sent séu annað hvort að ganga á sparnað eða safna skuldum. Alls 49 pró­sent aðspurðra ná að leggja eitt­hvað fyrir um hver mán­aða­mót.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins segir að staðan sé áber­andi verst á Reykja­nesi, þar sem 57 pró­sent aðspurðra leggja ekk­ert fyrir, ganga á sparnað eða safna skuldum.

Eðli máls­ins sam­kvæmt er staðan verst hjá hinum tekju­lægstu, en hjá þeim sem eru með undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur á mán­uði eiga tæp­lega átta af hverjum tíu ekki neitt eftir í vesk­inu í lok mán­aðar. Á sama tíma geta níu af hverjum tíu í efsta tekju­hópnum, þeim sem eru með heim­il­is­tekjur yfir 1,5 millj­ónir króna á mán­uði, lagt fyrir og helm­ingur þess hóps á tals­verðan afgang.

Hærri vextir bíta fast

Yfir­stand­andi dýr­tíð virð­ist sam­kvæmt þessu vera farin að bíta suma hópa sam­fé­lags­ins ansi fast. Verð­bólga mælist enda 9,9 pró­sent og grein­ing­ar­að­ilar spá því að hún eigi enn eftir að hækka. Stærsti ein­staki þátt­ur­inn í hækk­andi verð­bólgu hefur verið gríð­ar­leg hækkun á hús­næð­is­verði.

[adspot]Til að berj­ast gegn verð­bólg­unni hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti í 4,75 pró­sent, sem er fjög­urra pró­sentu­stiga hækkun frá því sem þeir voru í fyrra­vor.

Hag­stofan greindi frá því fyrr á þessu ári að hlut­fall þeirra heim­ila sem bjuggu við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað (greiddu meira en 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í að halda þaki yfir höf­uð­ið) hafi verið 12,8 pró­sent í fyrra og það hafi auk­ist milli ára.

Í ljósi þess að stýri­vextir hafa hækkað um 2,75 pró­sentu­stig síðan um ára­mót án þess að laun hafi hækkað mikið liggur fyrir að þetta hlut­fall mun ­hækka umtals­vert á árinu 2022.

Allar nauðsynjavörur hækkað í verði

Á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð, og vextir voru í sögu­legum lægð­um, þre­­föld­uð­ust óverð­­tryggð hús­næð­is­lán við­­skipta­­bank­anna, fóru úr 370 millj­­örðum króna í 1.090 millj­­arða króna. Greiðslu­byrði þessa hóps hefur hækkað gríð­ar­lega sam­hliða vaxta­hækk­un­um.

Í nýlegri hag­sjá Lands­­bank­ans var tekið dæmi af 40 millj­­óna króna láni á lægstu óverð­­tryggðu vöxt­­um.

[links]Vaxta­­byrði þeirra hefur hækkað um 98 þús­und krónur frá því í maí í fyrra. Lands­­bank­inn býst við því að vextir haldi áfram að hækka og að vaxta­­byrðin muni aukast um 25 þús­und krónur í við­­bót á þessu ári. Þá hefur hún farið úr 110 þús­und krónum á mán­uði i 233 þús­und krónur á mán­uð­i.

Ofan á þessar hækk­anir á afborg­unum af hús­næð­is­lánum hefur elds­neyt­is­verð hækkað mikið, eða um 72 pró­sent á tveimur árum. Í nýj­ustu bens­ín­vakt Kjarnans kom fram að sá sem greiddi 15 þús­und krónur á mán­uði í bens­ín­kostnað í maí 2020 þurfti um miðjan síð­asta mánuð að punga út rúm­lega 137 þús­und krónum til við­bótar á ári til að kaupa sama magn af elds­neyti. Þá eru ótaldar miklar hækk­anir á mat og drykk, inn­fluttum nauð­synja­vörum eins og fatn­aði og ferða­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár