Hve mikill auður er nóg? Ekki svo mikill

Nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar á því hversu mikla pen­inga fólk telur að það þurfi til þess að lifa þægi­legu lífi benda til þess að flestir séu nokkuð hóg­værir í þeim efnum. Nema auð­vitað Banda­ríkja­menn.

Niðurstöðurnar gætu gefið vonir um sjálfbærari efnahagslegar framfarir.
Nið­ur­stöð­urnar gætu gefið vonir um sjálf­bær­ari efna­hags­legar fram­farir. Mynd: Unsplash/Giorgio Trovato

Tíu millj­ónir banda­ríkja­dala er sú upp­hæð sem flestir telja nóg til þess að þeir geti lifað þægi­legu lífi, að Banda­ríkja­mönnum und­an­skildum.

Þetta eru niðru­stöður nýlegrar rann­sóknar sem fram­kvæmd var af sál­fræð­ingum í tveimur háskólum í Bath í Bret­landi. Rann­sóknin náði til 8 þús­und þátt­tak­enda í 33 löndum í sex heims­álfum. Í 86% þeirra landa sem rann­sóknin náði til voru millj­ón­irnar 10, taldar í banda­ríkja­dölum, sú upp­hæð sem fólk yrði sátt með, en spurn­ingar rann­sókn­ar­innar sneru raunar sér­stak­lega að þeirri upp­hæð sem fólk teldi nógu háa fyrir lottó­vinn­ing.

Samkvæmt umfjöllun Forbes um málið gætu nið­ur­stöð­urnar bent til þess að fólk sé í raun almennt ekki jafn gráð­ugt og áður hefur verið talið. Nið­ur­stöður frá banda­rískum þátt­tak­endum rann­sókn­ar­innar voru þó aðrar, þar sem meiri­hluti taldi að tíu sinnum hærri upp­hæð, eða 100 millj­ónir banda­ríkja­dala, væri ásætt­an­leg.

Meiri­hluti fólks frá Argent­ínu, Indlandi og Rúss­landi sagð­ist hins vegar myndu vel geta sætt sig við eina milljón banda­ríkja­dala, eða minna, til þess að lifa þægi­legu lífi.

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar verður munur á þeirri upp­hæð sem fólk telur ásætt­an­lega ekki rak­inn til mis­mun­andi efna­hags­legrar þró­unar á milli þeirra landa sem rann­sóknin náði til, heldur voru þátt­tak­endur sem voru yngri, búsettir í borgum og kunna að meta völd, frama og sjálf­stæði lík­legri til að telja mun hærri eða ótak­mark­aðar upp­hæðir ásætt­an­legar. Þeir voru einnig lík­legri til að búa í löndum þar sem meiri áhersla er lögð á sam­fé­lags­vit­und og þar sem valda­ó­jafn­vægi er við­tekn­ara.

Gefi vonir um sjálfbærari framfarir í efnahagsmálum

Nið­ur­stöð­urnar gætu þó gefið vonir um sjálf­bær­ari efna­hags­legar fram­farir, en sam­kvæmt höf­undum rann­sókn­ar­innar hafa hug­myndir um að fólk hafi ótak­mark­aðar lang­anir verið við­teknar síðan á tímum forn­grikkja og að í þær sé enn haldið fast í kennslu­bókum hag­fræð­innar.

Rann­sóknin kunni að hafa sýnt fram á að þessi kenn­ing sé röng, í hið minnsta í flestum löndum heims­ins, og að sjálf­bær mark­mið um tak­mörkun auðs og vaxtar gætu verið í meira sam­ræmi við per­sónu­legar hug­sjónir fólks en hingað til hefur verið talið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagfræði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár