Atlögurnar að Mónu Lísu

Á dög­unum mak­aði gestur Louvre safns­ins köku utan í gler­kassa Mónu Lísu að því er virð­ist til að vekja athygli á umhverf­is­vernd. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem gerð er til­raun til þess að skemma þetta fræg­asta mál­verk ver­ald­ar­innar.

Vel er passað upp á Mónu Lísu í Louvre safninu í París. Þó kemur það fyrir að einhver veitist að málverkinu.
Vel er passað upp á Mónu Lísu í Louvre safn­inu í París. Þó kemur það fyrir að ein­hver veit­ist að mál­verk­inu. Mynd: EPA

Allt frá því á sjötta ára­tug síð­ustu aldar hefur eitt fræg­asta lista­verk lista­sög­unnar, sjálf Móna Lísa, verið sýnd á bak við skot­helt gler og ekki að ástæðu­lausu. Úr gler­búri sínu horfir hún kank­vís á millj­ónir gesta sem vitja hennar í Louvre en ekk­ert safn fær fleiri gesti í heim­sókn ár hvert. Á hverjum degi safn­ast fólk saman í bið­röð til þess að skoða verkið. Hægt og rólega þok­ast gest­irnir nær og nær þar til þeir standa loks frammi fyrir mynd­inni, eða svona hér um bil, enda sér lítið grind­verk til þess að gestir komi ekki of nálægt þessu meist­ara­verki Leon­ar­dos. Gestir þurfa því að standa í smá fjar­lægð frá mál­verk­inu sem telst ekki stórt, um 77 sinnum 53 sentí­metrar að stærð. Til sam­an­burðar er snilld­ar­verk feneyska list­mál­ar­ans Brúð­kaupið í Kana á gagn­stæðum vegg 677 sinnum 994 sentí­metrar að stærð – að vísu er það með stærstu mál­verkum í saf­n­eign Louvre. Það er því algengt að gestir berji Mónu Lísu ansi pírðum augum þegar þeir eru loks­ins komnir fremst í röð­ina.

Svo eru það aðrir sem vilja berja á lista­verk­inu, líkt og einn þeirra gesta sem heim­sótti Louvre á dög­unum. Að sögn sjón­ar­votta spratt ungur karl­maður, í dul­ar­gervi gam­allar konu, upp úr hjóla­stól og lét höggin dynja á gler­kass­anum. Hann gafst að lokum upp á því, enda glerið skot­held og tók því til þeirra ráða að maka á það köku. Þegar hann var leiddur út af örygg­is­vörðum í kjöl­farið kall­aði hann yfir áhorf­enda­sk­ar­ann að mann­fólkið væri að eyði­leggja jörð­ina, þess vegna hefði hann gert það sem hann gerði.

Varð heimsfræg eftir þjófnað

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Móna Lísa verður fyrir árás. Raunar má rekja heims­frægð hennar til fólsku­verks sem framið var árið 1911. Þá voru að vísu engar skemmdir unnar á mynd­inni, heldur var henni stolið af Louvre af þremur Ítölum undir for­ystu Vincenzo Peruggia. Menn­irnir þrír höfðu falið sig í skáp inni á safn­inu og dvalið þar yfir nótt. Um morg­un­inn laum­uð­ust þeir út úr skápnum, náðu í mál­verk Leon­ar­dos og höfðu sig á brott.

Í umfjöllun NPR um stuld­inn segir að Móna Lísa hafi ekki verið mjög þekkt nema hjá þeim sem störf­uðu innan list­heims­ins. Á ofan­verðri 19. öld höfðu gagn­rýnendur fyrst farið að tala um Mónu Lísu sem meist­ara­verk og sú skoðun náði ekki út fyrir raðir mennta­fólks í Frakk­landi og ann­arra sér­fræð­inga. Fregnir af stuld­inum fóru eins og eldur um sinu og stór­blöð um víða ver­öld sögðu frá leit­inni að Mónu Lísu.

Alls kyns sögu­sagnir fóru á kreik. Til dæmis beindust spjótin á einum tíma­punkti að banda­ríska við­skipta­jöfr­inum J.P. Morgan en hann hafði mik­inn áhuga á franskri list. Pablo Picasso var líka kall­aður til yfir­heyrslu, grun­aður um að hafa átt aðild að stuld­inum. Á þessum tíma­punkti ríkti mikil spenna í sam­skiptum milli Frakka og Þjóð­verja og fólk tal­aði jafn­vel um að menn á vegum Vil­hjálms II Þýska­landskeis­ara hefðu stolið verk­inu. Peruggia og hans menn voru hólpnir, í það minnsta í bili.

Rúmum tveimur árum eftir að Ítal­irnir stálu Mónu Lísu úr Louvre reyndi Peruggia loks að koma mál­verk­inu í verð. Hann var þá kom­inn alla leið suður til Flórens og þar reyndi hann að selja lista­verka­sala Mónu Lísu. Upp komst um Peruggia og hann var í kjöl­farið hand­tek­inn. Hann bar fyrir sig ætt­jarð­ar­ást, sagð­ist ein­ungis hafa ætlað að end­ur­heimta Mónu Lísu frá Frakk­landi og koma henni aftur heim til Ítalíu. Við dóms­upp­kvaðn­ingu ját­aði Peruggia sig sekan og fékk átta mán­aða fang­els­is­dóm. Móna Lísa hafði á þessum rúmu tveimur árum öðl­ast heims­frægð og henni var mikið fagnað við heim­kom­una til Louvre safns­ins í París.

Notuð til að koma skilaboðum á framfæri

Heims­fræg lista­verk eru gjarnan lánuð á sýn­ingar í öðrum söfnum og geta slík ferða­lög oft orðið löng ef um far­and­sýn­ingar er að ræða. Það heyrir aftur á móti til algjörra und­an­tekn­inga að Móna Lísa sé lánuð af Louvre. Samkvæmt upp­lýs­ingum um lista­verkið á heima­síðu Louvre hefur Móna Lísa ein­ungis tví­vegis lagt land undir fót eftir að hún komst aftur á sinn stað í safn­inu.

Í þeirri fyrri heim­sótti Móna Lísa Banda­ríkj­anna vegna far­and­sýn­ingar sem sett var upp árið 1963 í National Gallery of Art í Washington og í Metropolitan safn­inu í New York. Seinna ferða­lag Mónu Lísu var einnig vegna far­and­sýn­ingar sem sett var upp rúmum tíu árum síðar, árið 1974. Á því ferða­lagi staldr­aði hún við í þjóð­ar­lista­safni Japana í Tókýó og í Púsjkin safn­inu í Sankti Pét­urs­borg.

Á fyrsta sýn­ing­ar­degi í Tókýó reyndi einn sýn­ing­ar­gesta, 25 ára gömul kona, að skemma lista­verkið með rauðri sprautu­máln­ingu. Það gerði hún í mót­mæla­skyni vegna slæms aðgengis fatl­aðs fólks að lista­safn­inu á meðan á sýn­ing­unni stóð. Aðgerð­ar­sinnar höfðu í aðdrag­anda sýn­ing­ar­innar mót­mælt slæmu aðgengi fyrir fatlað fólk að safn­inu og sagt safnið mis­muna fötl­uðu fólki. Þegar sýn­ingin opn­aði og ekk­ert hafði verið gert til að bæta aðgengið tók konan, Tomoko Yonezu, málin í sínar hendur með úða­brúsa að vopni. Hún náði að úða máln­ingu á glerið sem skildi að Mónu Lísu og áhorf­endur en verkið sjálft varð ekki fyrir neinum skemmdum.

Grjót, rakvélarblað og postulín

Áður en til þess­ara ferða­laga kom hafði Móna Lísa í nokkur ár verið höfð til sýnis á bak­við skot­helt gler. Ástæðan er önnur árás sem mál­verkið varð fyrir árið 1956 þegar bóli­vískur ferða­maður grýtti mynd­ina. Hugo Unjaga Villegas, þá 42 ára, gekk inn á Louvre með stórum hópi ferða­manna. Þegar hann stóð gegnt Mónu Lísu tók hann stein úr vasa sínum og kastaði honum með nokkru afli í átt að mynd­inni. Steinn­inn hæfði, braut gler­kassa sem smíð­aður hafði verið utan um mynd­ina og flís losn­aði af mynd­flet­inum. Villegas hafði rispað oln­boga Mónu Lísu með kast­inu. Myndin var í kjöl­farið send í við­gerð og var skömmu síðar komin aftur upp á vegg í safn­inu.

Í umfjöllun New York Times frá þessum tíma segir að Móna Lísa hafi þá verið eina verkið í safni Lovre sem var sér­stak­lega varið með gleri. Sú ráð­stöfun var gerð nokkrum árum áður þegar maður sem sagð­ist vera ást­fang­inn af mál­verk­inu hafði reynt að stela verk­inu með því að skera strig­ann af blindramm­anum með rak­vél­ar­blaði. Ef ekki hefði verið fyrir gler­kass­ann hefði Móna Lísa ef til vill verið dæmd ónýt eftir grjót­kastið, var haft eftir sér­fræð­ingum í umfjöllun blaðs­ins.

Það var öllu sak­laus­ara skeytið sem rúss­nesk kona sendi Mónu Lísu árið 2009 þegar hún kastaði postu­líns­bolla í átt að mál­verk­inu. Kona þessi var von­svikin vegna þess að henni hafði ekki verið veittur franskur rík­is­borg­ara­réttur. Tók hún því reiði sína út á mál­verk­inu með fyrr­nefndum hætti. Þökk sé skot­helda gler­inu var Móna þó í lít­illi hættu, boll­inn splundrað­ist þegar hann skall á gler­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár