Frumvarp um bann við olíuleit lítur dagsins ljós

Bann verður lagt við leit, rann­sókn og vinnslu á olíu og gasi í efna­hags­lög­sögu Íslands verði nýtt frum­varp umhverf­is­ráð­herra sam­þykkt. Engin leyfi tengd olíu­vinnslu eru í gildi.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er sett fram það markmið að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja.
Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar er sett fram það mark­mið að Ísland nái kolefn­is­hlut­leysi og fullum orku­skiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarð­efna­elds­neyti fyrst ríkja. Mynd: Bára Huld Beck

Bann verður lagt við olíu­leit í efna­hags­lög­sögu Íslands, verði nýtt stjórn­ar­frum­varp Guðlaus Þórs Þórð­ar­sonar umhverf­is­ráð­herra að lögum. Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs var því heitið að rík­is­stjórnin myndi ekki gefa út nein leyfi til olíu­leitar í efna­hags­lög­sög­unni. Í stjórn­ar­sátt­mál­anum er einnig sett fram mark­mið um að Ísland nái kolefn­is­hlut­leysi og fullum orku­skiptum í síð­asta lagi árið 2040 og verði óháð jarð­efna­elds­neyti fyrst ríkja.

Nú hefur umhverf­is­ráð­herra lagt fram frum­varp um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna banns við leit, rann­sóknum og vinnslu kol­vetnis í efna­hags­lög­sög­unni. Í fyrstu grein frum­varps­ins er hug­takið kol­vetni skýrt nánar, það merkir jarð­olía, jarð­gas eða ann­ars konar kol­vetni sem er til staðar í jarð­lögum undir hafs­botni frá nátt­úr­unnar hendi og nýt­an­legt er í loft­kenndu eða fljót­andi formi.

Frum­varpið felur í sér breyt­ingu á nokkrum lögum. Þau eru lög um eign­ar­rétt íslenska rík­is­ins að auð­lindum hafs­botns­ins, lög um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir, lög um bruna­varnir, lög um mann­virki og lög um varnir gegn mengun hafs og stranda. Verði frum­varpið sam­þykkt falla auk þess úr gildi lög um leit, rann­sóknir og vinnslu kol­vetnis, lög um skatt­lagn­ingu á kol­vetn­is­vinnslu og lög um stofnun hluta­fé­lags um þátt­töku íslenska rík­is­ins í kol­vetn­is­starf­semi.

Áform um laga­setn­ing­una voru kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í lok jan­úar á þessu ári og frum­varps­drög voru í kjöl­farið kynnt í sam­ráðs­gátt um miðjan febr­úar.

Engin virk leyfi fyrir leit eða vinnslu á olíu og gasi

Í kafla um mat á áhrifum frum­varps­ins segir að laga­setn­ingin hafi ekki áhrif á útgjöld hins opin­bera og að það sé í sam­ræmi við stefnu stjórn­valda um umhverf­is­vernd og sjálf­bæra þróun. Þá hefur frum­varpið engin áhrif á leyfi til olíu­leitar eða -vinnslu: „Engir aðilar hafa leyfi til að stunda leit, rann­sóknir eða vinnslu kol­vetnis í efna­hags­lög­sög­unni í dag.“

Í dag er það Orku­stofnun (OS) sem gefur út leyfi til leitar að kol­vetni ann­ars vegar og leyfi til rann­sókna og vinnslu á kol­vetni hins vegar. Síð­ar­nefndu leyfin eru sér­leyfi sem eru veitt í kjöl­far útboðs og fela í sér einka­rétt leyf­is­hafa til rann­sókna og vinnslu. Orku­stofnun hefur í heild gefið út þrjú slík leyfi en ekk­ert þeirra er enn í gildi, líkt og áður segir.

Í jan­úar árið 2013 voru tvö leyfi gefin út, Faroe Petr­eo­leum Norge AS var rekstr­ar­að­ili ann­ars þeirra og Ithaca Petr­o­leum ehf. rekstr­ar­að­ili hins. Rúmu ári síðar, var þriðja leyfið gefið út og var kín­verska rík­is­ol­íu­fé­lagið CNOOC rekstr­ar­að­ili leyf­is­ins. Hverju sér­leyfi fyrir sig var deilt á milli þriggja fyr­ir­tækja en Petoro Iceland AS var leyf­is­hafi með hlut­þátt­töku upp á 25 pró­sent í öllum leyf­unum fyrir hönd norska rík­is­ins sam­kvæmt samn­ingi milli Íslands og Noregs sem fjallar um land­grunnið á svæð­inu milli Íslands og Jan Mayen.

Sérleyfi Faroe Petr­o­leum var gefið eftir í jan­úar árið 2015 og sér­leyfi Ithaca Petr­o­leum var gefið eftir í jan­úar 2017. Líkt og áður segir var Petoro Iceland AS leyf­is­hafi að fjórð­ungs­hluta beggja sér­leyf­anna en Íslenskt Kolvetni ehf. var hlut­þátt­töku upp á 7,5 pró­sent í leyfi Faroe Petr­o­leum og 18,75 pró­sent í leyfi Ithaca Petr­o­leum.

Í jan­úar árið 2018 gáfu CNOOC og Petoro Iceland eftir sinn hluta af þriðja leyf­inu. Eykon Energy, þriðja fyr­ir­tækið sem átti 15 pró­senta aðild að sér­leyf­inu gerði það aftur á móti ekki. Orku­stofnun mat það aftur á móti svo að Eykon Energy upp­fyllti ekki skil­yrði kol­vetn­islaga, „hvorki um tækni­legra né fjár­hags­lega getu til að takast eitt á við kröfur og skil­mála leyf­is­ins eða að vera rekstr­ar­að­ili þess.“ Leyfið var því aft­ur­kallað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár