Vinna þarf áhættugreiningu fyrir atburði sem geta raskað fæðuöryggi landsins

Mat­væla­ráð­herra hefur lagt fyrir rík­is­stjórn 16 til­lögur um aðgerðir til að auka fæðu­ör­yggi Íslands. Nú þegar hefur starfs­hópur um neyð­ar­birgðir verið settur á lagg­irnar en áhersla þarf að vera á öryggi fram­boðs, þrátt fyrir bak­trygg­ingu í neyð­ar­birgðum.

Mestu sóknarfærin í innlendri matvælaframleiðslu liggja í aukinni framleiðslu korns sem og í að auka hlutdeild innlendrar framleiðslu grænmetis.
Mestu sókn­ar­færin í inn­lendri mat­væla­fram­leiðslu liggja í auk­inni fram­leiðslu korns sem og í að auka hlut­deild inn­lendrar fram­leiðslu græn­metis. Mynd: Pexels

Mælt er með því að íslensk stjórn­völd beiti sér fyrir því að Ísland verði sem fyrst metið með aðferðum Global Food Security Index (GFSI) í nýjum til­lögum og grein­ar­gerð um aðgerðir til að auka fæðu­ör­yggi Íslands. Svandís Svav­ars­dóttir, mat­væla­ráð­herra, hefur lagt til­lög­urnar sem eru í alls 16 liðum fyrir rík­is­stjórn en þær miða að því að efla fæðu­ör­yggi. Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að í fram­hald­inu verði unnið með þessar til­lögur í annarri stefnu­mótun stjórn­valda. Jóhannes Svein­björns­son, dós­ent við Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands vann til­lög­urnar og grein­ar­gerð.

Í grein­ar­gerð­inni er fjallað nánar um GFSI mæli­kvarð­ann og lagt til að mat sam­kvæmt honum verði gerð sem fyrst. Slíkt geti sagt til um hversu góðar aðstæður eru fyrir fæðu­ör­yggi í land­inu. „Það er til dæmis gert með því að meta reglu­lega heild­ar­fæðu­neyslu á íbúa og fylgj­ast með þróun mat­væla­verðs og hvaða áhrif sú þróun hefur á þau sem búa við lök­ustu kjörin,“ segir á ver stjórn­ar­ráðs­ins.

GFSI mæli­kvarð­inn hefur verið birtur árlega frá 2012 en Ísland er ekki á meðal þeirra 113 ríkja sem mæli­kvarð­inn náði til í síð­ustu útgáfu. „Upp­bygg­ing GFSI end­ur­speglar betur en aðrir ein­stakir mæli­kvarðar þá þætti sem taka þarf til­lit til þegar tryggja á fæðu­ör­yggi þjóða,“ segir í grein­ar­gerð með til­lög­unum. Meg­in­stoðir mæli­kvarð­ans eru fjórar; aðgengi, fæðu­kaup­geta, gæði og öryggi og loks nátt­úru­auð­lindir og þan­þol fæðu­kerfa.

Hafa stofnað starfshóp um neyðarbirgðir

Ein til­lagn­anna snýr að neyð­ar­birgðum en lagt er til að neyð­ar­birgða­hald sé á ábyrgð eins stjórn­valds á lands­vísu sem ein­göngu hefur með að gera birgða­hald út frá sjón­ar­hóli fæðu­ör­yggis. Nú þegar hefur verið stofn­aður sér­stakur starfs­hópur um neyð­ar­birgðir á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem er ætlað að taka ákvarð­anir um slíkt.

“Hvað varðar allar neyð­ar­birgðir er lagt til að stjórn­völd beri kostnað en semji um fram­kvæmd­ina við inn­flytj­endur var­anna. Til greina getur komið að hafa sam­vinnu við nágranna­þjóðir, einkum Norð­ur­löndin um neyð­ar­birgðir í ein­hverjum til­vikum. Lagt er til að fjár­mögnun neyð­ar­birgða byggi á föstum tekju­stofnum, en sé ekki háð fjár­lögum hvers árs,“ segir í til­lög­unni.

Meg­in­á­herslu þarf að leggja á öryggi fram­boðs, þrátt fyrir bak­trygg­ingu í neyð­ar­birgðum, segir í annarri til­lögu. Í því felst vinna við áhættu­grein­ingar fyrir ein­staka atburði sem snögg­lega geta leitt til ójafn­vægis í fæðu­kerfi og fram­boðskeðjum á borð við stríðsógnir, heims­far­aldra og nátt­úru­vár.

Hlutdeild innlendrar framleiðslu á grænmeti og kjöti lækkar

Lagt er til að reglu­lega fari fram mat á útkomum fæðu­ör­yggis, „svo sem heild­ar­fæðu­neyslu á íbúa og sjálfsafla­hlut­falli lands­ins fyrir ein­staka fæðu­flokka.“ Sjálfsafla­hlut­fall er notað til að meta fæðu­ör­yggi og er skil­greint út frá hlut­deild heild­ar­fram­leiðslu í land­inu af heild­ar­neyslu. Með hærra sjálfsafla­hlut­falli eykst fæðu­sjálf­stæði þjóða sem er mæli­kvarði á hversu vel fæðu­fram­leiðsla full­nægir fæðu­þörf þjóða, burt­séð frá því hvort þjóðin velji að selja hluta af fram­leiðslu sinni á alþjóð­legum mörk­uðum og kaupa ann­ars konar fæðu í stað­inn eða ekki.

Þó sjálfsafla­hlut­fall sé ekki hluti af GSFI mæli­kvarð­anum er margt sem mælir með því að fylgj­ast með því, að því er fram kemur í áður­nefndri grein­ar­gerð, en bent er á að hlut­fallið hafi lækkað nokkuð hratt að und­an­förnu.

Í því sam­hengi er vitnað í nýlega skýrslu um fæðu­ör­yggi á Íslandi þar sem segir: „Garð­yrkjan sér fyrir um 43% af fram­boði græn­metis, búfjár­ræktin sér fyrir um 90% af kjöti, 96% af eggjum og 99% af mjólk­ur­vörum. Innlend fram­leiðsla á korni til mann­eldis er um 1% af heild­ar­neyslu.“ Þessar tölur gilda fyrir árið 2019 en til sam­an­burðar var inn­lend fram­leiðsla á græn­meti og kjöti 56 og 98 pró­sent af mark­aðnum ára­tug fyrr. Fisk­veiðar og fisk­eldi sjá aftur á móti fyrir fiski sem nemur marg­faldri þörf lands­manna.

Veik­leikar fæðu­fram­leiðsl­unnar hér á landi liggja í fram­leiðslu plöntu­af­urða. Að mati Jóhann­esar Svein­björns­sonar, höf­undar grein­ar­gerð­ar­innar, liggja mestu sókn­ar­færin í auk­inni fram­leiðslu korns, bæði til mann­eldis og fóð­urs fyrir búfé, sem og í að auka hlut­deild inn­lendrar fram­leiðslu græn­metis. Vegna hnatt­stöðu lands­ins sé það hins vegar fjar­lægur draumur að auka fram­leiðslu á öðrum plöntu­af­urðum til mann­eldis á borð við ávexti, hnetur og baunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár