Katrín styður stækkun NATO – Í fyrsta sinn sem formaður VG gerir það

For­sæt­is­ráð­herra segir að ekki sé um stefnu­breyt­ingu að ræða hjá Vinstri grænum með stuðn­ingi íslenskra stjórn­valda við aðild­ar­um­sókn Svía og Finna í NATO. Hún muni sjálf styðja við þær ákvarð­anir sem Finnland og Svíþjóð munu taka.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk stjórn­völd styðja þær ákvarð­anir sem þjóð­þing Finn­lands og Sví­þjóðar munu taka varð­andi aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO). Engin breyt­ing hefur orðið á sam­þykktri stefnu Vinstri grænna (VG).

Þetta kemur fram í svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og for­manns VG við fyr­ir­spurn Kjarnans þar sem hún er spurð hvort áherslu­breyt­ing hafi orðið hjá flokknum varð­andi afstöðu til NATO.

Þegar Katrín er spurð hvort hún muni styðja við stækkun NATO segir hún að hún muni styðja þá ákvörðun sem Finnland og Svíþjóð munu taka. Það væri í fyrsta sinn sem for­maður VG myndi styðja við stækkun NATO en fyrrum for­maður flokks­ins, Stein­grímur J. Sig­fús­son, og þing­menn flokks­ins hafa ítrekar greint frá þeirri afstöðu sinni að Ísland eigi ekki að vera í NATO og þau styddu ekki stækkun banda­lags­ins.

Íslendingar myndu gera hvað þeir gætu til þess að umsóknin yrði afgreidd með hraði

Finnar og Svíar stefna að því að sækja um aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu sam­tímis en inn­rás Rússa í Úkraínu hefur haft í för með sér gríð­ar­lega við­horfs­breyt­ingu gagn­vart banda­lag­inu þar sem áhug­inn á aðild hefur auk­ist til muna.

Katrín fund­aði í vik­unni með leið­togum ann­arra nor­rænna ríkja ásamt for­sæt­is­ráð­herra Indlands. Á fund­inum var meðal ann­ars rætt um aðild Finna og Svía að NATO.

Í frétt RÚV um málið kemur fram að eftir fund­inn hefðu leið­tog­arnir greint frétta­mönnum frá því að aðild Finna og Svía að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu hefði verið rædd og afstaða hinna Norð­ur­land­anna skýrð.

Katrín ítrek­aði afstöðu Íslands og sagði að ef kæmi að aðild­ar­við­ræðum myndu Íslend­ingar gera hvað þeir gætu til þess að umsóknin yrði afgreidd með hraði.

„Ekki heilla­spor að fram­lengja lífdaga þessa hernaðarbanda­lags“

Afstaða VG hefur hingað til verið skýr hvað NATO varðar en í stefnu þeirra segir að flokk­ur­inn leggi áherslu á að Ísland segi sig úr banda­lag­inu.

Fyrir stækkun NATO í des­em­ber 2003 sagði Stein­grím­ur J. Sig­fús­son, þáver­andi for­maður VG, að það væri nið­ur­staða þing­manna flokks­ins að styðja ekki stækk­un banda­lags­ins. „Við erum ein­dregið þeirr­ar skoð­unar að það sé ekki heilla­spor að fram­lengja líf­daga þessa hern­að­ar­banda­lags,“ sagði hann.

Stein­grím­ur taldi að þvert á móti bæri að vinna að því að leggja hern­að­ar­banda­lög niður og gæta friðar, stöðug­leika og ör­ygg­is í heim­in­um með lýð­ræðis­lega upp­byggðum svæðis- og al­heims­stofn­un­um, eins og stofn­un­inni um ör­yggi og sam­vinnu í Evr­ópu (ÖSE) og end­ur­skipu­lögðu ör­ygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Sterk öfl hafi ríkra hagsmuna að gæta að NATO stækki

Nýjasta dæmið þar sem þing­menn VG greina frá afstöðu sinni til stækk­unar NATO var árið 2019 þegar Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Ari Trausti Guð­munds­son, þáver­andi þing­menn VG, skrif­uðu nefnd­ar­á­lit um til­lögu til þings­á­lykt­unar um stað­fest­ingu við­bót­ar­samn­ings við Norður-Atl­ants­hafs­samn­ing­inn um aðild Lýð­veld­is­ins Norður-Makedóníu.

Í nefnd­ar­á­lit­inu kom fram að aðild Íslands að NATO hefði alltaf verið umdeild. Þjóðin hefði aldrei fengið tæki­færi til að láta í ljós skýra afstöðu sína um aðild að banda­lag­inu með þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

„Ljóst er að banda­lagið er hætt að skil­greina sig ein­göngu sem varn­ar­banda­lag og hefur tekið að sér verk­efni sem fara út fyrir upp­runa­legan til­gang sinn. Minni­hlut­inn telur ekki rétt­læt­an­legt að stækka banda­lagið frekar að svo stöddu, jafn­vel þótt tekið sé til­lit til breyttrar stöðu Norður-Makedóníu frá lokum kalda stríðs­ins. Þrátt fyrir að tek­ist hafi lang­þráð sam­komu­lag milli Grikkja og Norður-Makedón­íu­manna í apríl síð­ast­liðnum um nafn lands­ins eftir ára­tuga deilur er það álit minni­hlut­ans að það ágæta sam­komu­lag leiði ekki sjálf­krafa til aðildar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu þrátt fyrir náið sam­starf beggja aðila frá 1995.

Við þessa stað­fest­ingu fjölgar aðild­ar­ríkjum banda­lags­ins í 30 og bendir minni­hlut­inn á að sterk öfl hafi ríkra hags­muna að gæta að Atl­ants­hafs­banda­lagið stækki. Er þar sér­stak­lega um að ræða vopna­fram­leið­endur, enda eru mörg af mestu vopna­fram­leiðslu­löndum heims aðild­ar­ríki banda­lags­ins sem leggja ríkar skyldur á herðar aðild­ar­ríkja sinna varð­andi fram­lög til víg­bún­aðar og her­mála,“ segir í nefnd­ar­á­liti Rósu Bjarkar og Ara Trausta frá árinu 2019.

Stækkun NATO „ekki grundvöllur friðar, stöðugleika og öryggis í heiminum“

Enn fremur var bent á í nefnd­ar­á­lit­inu að skömmu fyrir alda­mót hefði NATO breytt stefnu sinni á þann hátt að það beitti sér í auknum mæli utan landamæra sinna. „Má þar nefna beina og óbeina þátt­töku í styrj­öldum og skærum í Afríku og Asíu. Afleið­ingar þess­ara hern­að­ar­í­hlut­ana hafa reynst skelfi­legar fyrir íbúa við­kom­andi landa og eiga þær þátt í mik­illi fjölgun fólks á flótta undan stríðs­á­tökum og afleið­ingum þeirra und­an­farin ár.

Full­trúar minni­hlut­ans árétta þá stefnu Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs að Ísland eigi að standa utan hern­að­ar­banda­laga og hafna víg­væð­ingu. Það er stefna hreyf­ing­ar­innar að hags­munum Íslands sé best borgið með úrsögn úr banda­lag­inu. Stríð og hern­aður leysa engin vanda­mál, þótt hern­að­ar­sinnar haldi því fram að barist sé fyrir friði og mann­rétt­indum. Stækkun Atl­ants­hafs­banda­lags­ins er ekki grund­völlur friðar, stöð­ug­leika og öryggis í heim­inum. Það væri heldur gert með styrk­ingu alþjóða­stofn­ana á borð við Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu (ÖSE), Evr­ópu­ráðið og örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna.“

Þingmenn VG sátu hjá – „NATO er hernaðarbandalag en ekki krúttlegur friðarklúbbur“

Þingmenn VG tjáðu sig frekar um málið á þingi við atkvæða­greiðslu til­lög­unnar á sínum tíma en allir þing­menn flokks­ins sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una. Rósa Björk sagði að frá stofnun Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs hefði Atl­ants­hafs­banda­lagið stækkað og fjölgað aðild­ar­ríkjum sínum í þrí­gang og nú í fjórða skipti.

„Í hvert sinn sem þær stækk­anir hafa verið teknar fyrir á Alþingi og farið í atkvæða­greiðslu um þær í þing­sal hefur afstaða þing­manna VG ávallt verið sú sama. Þeir hafa skilað minni­hluta­á­liti í hátt­virtri utan­rík­is­mála­nefnd og setið hjá við atkvæða­greiðsl­una, enda er and­staða við veru Íslands í hern­að­ar­banda­lagi ein af grunn­stoðum í stefnu hreyf­ing­ar­innar. Sú afstaða í gegnum tíð­ina er óbreytt hér í dag, enda gengur stækkun banda­lags­ins í ber­högg við áherslur VG. NATO er hern­að­ar­banda­lag en ekki krútt­legur frið­ar­klúbbur. Stækkun Atl­ants­hafs­banda­lags­ins er ekki grund­völlur friðar, stöð­ug­leika og öryggis í heim­inum. Það væri heldur gert með styrk­ingu alþjóða­stofn­ana, alþjóða­sam­vinnu, sam­tala og lýð­ræð­is­legra lausna.

Stækkun NATO ekki jákvætt skref í öryggismálum Evrópu

Steinunn Þóra Árna­dóttir þing­maður VG sagði við atkvæða­greiðsl­una að hún tæki undir með Rósu Björk. „Stækkun Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, NATO, er hvorki jákvætt skref í örygg­is­málum Evrópu né heims­ins alls. Það væri mun væn­legra að efla frið, stöð­ug­leika og öryggi í heim­inum eftir öðrum leiðum. Ég tek undir það sem hefur verið sagt um styrk­ingu alþjóða­stofn­ana, sam­töl og sam­vinnu, það er það sem við þurfum einmitt á að halda, ekki bara í frið­ar­mál­unum heldur gildir það sama þegar kemur að lofts­lags­vánni. Hérna þurfum við að tala saman, ekki að mynda banda­lög.

Við í Vinstri­hreyf­ing­unni – grænu fram­boði munum, eins og komið hefur fram, ekki greiða atkvæði í þessu máli og það er í takti við það hvernig við höfum áður greitt atkvæði í sam­bæri­legum málum,“ sagði Steinunn Þóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár