Sjálfstæðisflokkurinn í fyrsta sinn undir 20 prósent í þjóðarpúlsi Gallup

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 19,8 pró­senta fylgi í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup og hefur aldrei farið lægra. Fyrri versta nið­ur­staða flokks­ins var í miðjum stormi banka­hruns­ins árið 2008, en þá mæld­ist fylgið 20,6 pró­sent.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 19,8 pró­senta fylgi í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup fyrir apr­íl­mánuð, en þetta er lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með í könnun fyr­ir­tæk­is­ins.

Áður hafði flokk­ur­inn farið lægst í 20,6 pró­sent í könn­unum Gallup, en það var í nóv­em­ber 2008. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent atkvæða í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum.

Þrátt fyrir að hafa aldrei mælst minni er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þó með mest fylgi allra flokka í þess­ari nýju könnun. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er næst stærstur og mælist með 15,6 pró­senta fylgi, sem er tæpum tveimur pró­sentu­stigum frá kjör­fylgi flokks­ins.

Píratar mæl­ast þriðji stærsti flokk­ur­inn með 14,5 pró­sent fylgi og Sam­fylk­ingin kemur í kjöl­farið með 13,7 pró­sent fylgi. Píratar fengu 8,6 pró­sent atkvæða og Sam­fylk­ingin 9,9 pró­sent í kosn­ing­unum síð­asta haust.

[adspot]

Vinstri græn mæl­ast með 10,1 pró­sent fylgi hjá Gallup, sem er 2,5 pró­sentu­stigum minna en kjör­fylgi flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum. Næst kemur Viðreisn með 9,6 pró­sent fylgi, en flokk­ur­inn fékk 8,3 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum. Flokkur fólks­ins mælist með 7,7 pró­sent, rúmu pró­senti undir kjör­fylgi. Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með 4,6 pró­senta fylgi og Mið­flokk­ur­inn með 4,1 pró­sent.[links]

Stuðningur við ríkisstjórnina ekki minni síðan 2020

Stuðn­ing­ur­inn við rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna hrapar um heil 14 pró­sentu­stig á milli mán­aða í þess­ari könnun og segj­ast nú 47,4 pró­sent styðja rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, sam­an­borið við 60,9 pró­sent aðspurðra í mars­mán­uði.

Ekki hafa færri sagst styðja rík­is­stjórn­ina frá því í jan­úar árið 2020, en þá mæld­ist stuðn­ing­ur­inn við stjórn­ina 46,5 pró­sent. Síðan bar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn dyra og stuðn­ingur við stjórn­völd stórjókst og hefur verið um og yfir 60 pró­sentum und­an­farin tvö ár – allt þar til nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár