Ásmundur Einar er eini ráðherrann sem meirihluti þjóðarinnar treystir

Bjarni Bene­dikts­son hefur á und­an­förnum mán­uðum farið frá því að vera sá ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks sem flestir treysta í það að skrapa botn­inn í trausti ásamt Jóni Gunn­ars­syni. Traust til leið­toga allra stjórn­ar­flokk­anna fellur skarpt milli mæl­inga.

Flestir aðspurðra treysta Ásmundi, en fæstir Bjarna.
Flestir aðspurðra treysta Ásmundi, en fæstir Bjarna. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra er eini ráð­herr­ann í rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna sem meiri­hluti þjóð­ar­innar ber mikið traust til, sam­kvæmt nýrri könnun frá Maskínu um traust til ráð­herra. Traust til Ásmundar Einars hefur þó dreg­ist saman um 11 pró­sentu­stig und­an­farið miss­eri og mælist nú 52 pró­sent.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra er á móti sá ráð­herra sem flestir bera lítið traust til, en 70,7 pró­sent lands­manna van­treysta Bjarna, sam­kvæmt nið­ur­stöðum Maskínu. Rúm 18 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera mikið traust til Bjarna, ögn fleiri en sögð­ust treysta Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra, sem er sá ráð­herra sem fæstir bera traust til.

Er Maskína spurði þess­arar sömu spurn­ingar skömmu eftir að ný rík­is­stjórn tók við kefl­inu undir lok síð­asta árs voru þeir ráð­herrar sem nutu mik­ils trausts yfir helm­ings svar­enda þrír tals­ins, en bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra hafa fallið úr þeim flokki.

Traust til Katrínar hefur rýrnað um 17 pró­sentu­stig og segj­ast nú 45 pró­sent bera mikið traust til hennar en traust til Sigurðar Inga hefur dreg­ist saman um heil 22 pró­sentu­stig og 33 pró­sent segj­ast nú treysta Sigurði Inga.

[adspot]

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra nýtur 41 pró­sent trausts, Lilja Alfreðs­dóttir við­skipta- og menn­ing­ar­ráð­herra nýtur 33 pró­sent trausts, þau Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son orku- og umhverf­is­mála­ráð­herra njóta um 31 pró­sent trausts og pró­sentu­stigi færri segj­ast treysta Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra nýtur mik­ils traust um 26 pró­sent aðspurðra, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra nýtur 22 pró­senta trausts og svo reka þeir Bjarni og Jón lest­ina, sem áður segir.

Tæp 24 prósent þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í haust vantreysta Bjarna

Í skýrslu frá Maskínu með nið­ur­broti um traust mis­mun­andi þjóð­fé­lags­hópa til hvers og eins ráð­herra má sjá hvernig traust til ráð­herra skipt­ist eftir stjórn­mála­skoð­unum svar­enda.

Bæði er hægt að glöggva sig á afstöðu svar­enda eftir því hvernig þeir segj­ast ætla sér að kjósa til Alþingis ef kosið væri dag og einnig eftir því hvernig þeir segj­ast hafa kosið til Alþingis síð­asta haust.

Í hópi þeirra sem kusu Sjálf­stæð­is­flokk­inn síð­asta haust segj­ast tæp 27 pró­sent bera mjög mikið traust til Bjarna Bene­dikts­sonar og 34 pró­sent til við­bótar segj­ast bera frekar mikið traust til flokks­for­manns­ins.

Rúm 15 pró­sent svara því til að þau beri hvorki mikið né lítið traust til Bjarna, en 23,8 pró­sent þeirra sem segj­ast hafa kosið Sjálf­stæð­is­flokk­inn síð­asta haust segj­ast nú bera frekar lítið eða mjög lítið traust til Bjarna.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) á net­inu, dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá. Alls voru svar­endur 929, en þeir eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð sam­kvæmt Þjóðskrá og end­ur­spegla því þjóð­ina prýði­lega. Könnunin fór fram dag­ana 20. til 25. apríl 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár