Bankasýslan segir 34 fjárfesta þegar hafa selt í Íslandsbanka og 60 birtast ekki á hluthafalista

Stofn­unin sem sá um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka hefur birt yfir­lit yfir það sem hún ætlar að sé þróun á eign­ar­hlut hluta þeirra sem fengu að kaupa hluti í bank­anum í lok­uðu útboði í síð­asta mán­uði.

Jón Gunnar Jónsson er forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Jón Gunnar Jónsson er for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins. Mynd: Skjáskot/RÚV

Banka­sýsla rík­is­ins segir að það megi ætla 34 þeirra 207 fjár­festa sem fengu að kaupa hlut í Íslands­banka í lok­uðu útboði þann 22. mars hafi minnkað eign­ar­hlut sinn í bank­anum. Þessi hópur hafi saman losað um 1,1 pró­sentu­stig af heild­ar­hlutafé Íslands­banka og eigi enn um 4,1 pró­sent.

Þá birt­ast 60 fjár­festar ekki á hlut­hafa­skrá og Banka­sýslan segir það geta skýrst af fernu: við­kom­andi er búinn að selja hlut­inn sinn, er með hann í vörslu á safn­reikn­ingi, hefur fjár­magnað kaupin í gegnum fram­virka samn­inga við banka eða annað fjár­mála­fyr­ir­tæki eða að við­kom­andi er eigna­stýr­ing­ar­að­ili. Þessi hópur keypti alls fimm pró­sent hlut í Íslands­banka í útboð­inu í síð­asta mán­uði.

Í til­kynn­ingu Banka­sýsl­unnar, sem birt­ist í gær, segir að 25 fjár­festar, sem eru að mestu stórir stofn­ana­fjár­festar á borð við líf­eyr­is­sjóði, hafi bætt við eign­ar­hlut sinn eftir útboðið en 87 séu með óbreyttan eign­ar­hlut og eigi áfram 10,1 pró­sent af öllu hlutafé bank­ans.

Til­kynn­ingin birt­ist í kjöl­far þess að Kjarninn greindi frá því að sam­an­burð­ar­listi sem hann lét vinna fyrir sig úr gögnum yfir hlut­hafa Íslands­banka hafi sýnt að 132 væru ekki skráðir fyrir þeim hlut sem þeir fengu úthlutað og að heim­ildir væru fyrir því að margir þeirra hefðu selt sig niður að ein­hverju eða öllu leyti. Í öðrum til­vikum hafi hlut­ur­inn þó verið fluttur á vörslu­reikn­inga í eign­ar­stýt­ingu við­kom­andi eða verið keyptur í gegnum fram­virka samn­inga.

Ómögu­legt er að sjá af hlut­haf­alist­anum hverjir færðu bréfin sín með þeim hætti og hverjir seldu en Banka­sýslan bendir á að sá hlutur sem skráður er á fjár­mála­stofn­anir hafi vaxið um 3,8 pró­sentu­stig frá því fyrir útboð.

Erlendir sjóðir ekki lengur á listanum

Í umfjöllun Kjarnans kom meðal ann­ars fram að þeir erlendur sjóðir sem sölu­ráð­gjafar Banka­sýslu rík­is­ins buðu að taka þátt í lok­aða útboð­inu væru flestir búnir að selja allan þann hlut sem þeir fengu úthlutað. Um er að ræða sjóði sem tóku líka þátt í almenna útboð­inu í fyrra­sumar og seldu sig þá strax niður í kjöl­farið. Þeir voru því að taka snún­ing númer tvö á hluta­bréfa­eign í Íslands­banka þar sem sölu­að­il­inn var íslenska ríkið. Eftir almenna útboðið seldur sex þeirra erlendu sjóða sem keyptu í bank­anum bréfin sem þeim var úthlutað innan þriggja daga eftir skrán­ingu með umtals­verðum hagn­aði, en sölu­and­virðið var um fjórir millj­arðar króna. Á meðal þess­ara sex voru sjóðir Silver Point Capital, Fiera Capital, Lansdowne Partners og Key Square Partners.

[adspot]Allir fjórir sjóð­irnir voru aftur með í lok­aða útboð­inu. Silver Point keypti fyrir rúm­lega 1,3 millj­arða króna, Landsdown Partners fyrir næstum 556 millj­ónir króna, Fiera Capital fyrir 468 millj­ónir króna og KeySquare Partners fyrir 409,5 millj­ónir króna. Sam­tals keyptu þessir fjórir sjóðir því fyrir rúm­lega 2,7 millj­arða króna í lok­aða útboð­inu og fengu í stað­inn 5,2 pró­sent hlut í Íslands­banka.

Samkvæmt hlut­haf­alista Íslands­banka þann 11. apríl hafa Silver Point, Fiera Capital og KeySquare Partners þegar selt allan þann hlut sem þeim var úthlutað í lok­aða útboð­inu í mars.

Auk þess var sjóður í stýr­ingu banda­ríska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins RWC Asset Mana­gement val­inn sem einn horn­steins­fjár­fest­anna í Íslands­banka í aðdrag­anda almenna útboðs­ins í fyrra. Sá sjóður fékk þá að kaupa 1,54 pró­sent hlut á 2,4 millj­arða króna. Hann hafði selt þorra eignar sinnar um síð­ustu ára­mót og leyst um leið út umtals­verðan hagn­að. Sjóður í stýr­ingu RWC Asset Mana­gement fékk að kaupa hluti fyrir tæp­lega tvo millj­arða króna í útboð­inu í mars. Hann hafi þegar selt rúm­lega fjórð­ung þeirra bréfa og leyst út hagnað.

Litlir fjárfestar ekki lengur skráðir fyrir hlut

Í umfjöllun Kjarnans kom líka fram að list­inn benti til þess að margir litlir fjár­festar væru búnir að selja sinn hlut, en alls 59 aðilar fengu að kaupa fyrir minna 30 millj­ónir króna í útboð­inu.

Þá var greint frá því að nokkrir stórir aðilar væru ekki skráðir fyrir þeim hlut sem þeim var úthlutað á hlut­haf­alist­anum en aðrir fjöl­miðlar, sér­stak­lega Innherji á Vísi, hafa opin­berað að hluti þeirra hafi keypt í gegnum fram­virka samn­inga og því væri hlut­ur­inn skráður á þann banka sem gerði samn­ingin við þau, ekki þau sjálf.

Í útboð­inu 22. mars seldi íslenska ríkið 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka á 52,65 millj­arða króna, sem var 2,25 millj­örðum króna undir mark­aðsvirði bank­ans á þeim tíma. Sölu­ferlið hefur verið harð­lega gagn­rýnt. Rík­is­end­ur­skoðun vinnur nú stjórn­sýslu­út­tekt á því og Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands rann­sakar ákveðna þætti þess sem tengj­ast útboði og starfs­háttum sölu­ráð­gjafa í sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum rík­is­ins.

Banka­sýslan hefur varið fram­kvæmd­ina og sagt hana hafa gengið vel. For­svars­menn hennar, for­stjór­inn Jón Gunnar Jónsson og stjórn­ar­for­mað­ur­inn Lárus Blöndal, hafa hafnað allri gagn­rýni sem settu hefur verið fram á þeirra þátt í útboð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár