Frjálsi og Birta samþykktu ekki kauprétt nýrra stjórnenda SKEL

Næstum tveggja millj­arða króna kaup­réttur nýrra stjórn­enda SKEL voru ekki sam­þykktir af líf­eyr­is­sjóð­unum Frjálsa og Birtu, sem eru á meðal stærstu hlut­hafa félags­ins. Samkvæmt sjóð­unum var kaup­rétt­ur­inn óljós og meiri en almennt ger­ist á mark­aði.

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður SKEL.
Jón Ásgeir Jóhann­es­son, stjórn­ar­for­maður SKEL. Mynd: Skeljungur / Hörður Sveinsson

Nýráðinn for­stjóri og fjár­mála­stjóri SKEL fjár­fest­inga­fé­lags munu fá kaup­rétti að and­virði 1,6 millj­arða króna næstu fimm árin, miðað við upp­gefið nýt­ing­ar­verð sem er 16,4 krónur á hlut. Þeir munu eiga fimm pró­sent í Skel þegar rétt­irnir eru full­nýttir.

Arð­greiðslur og aðrar útgreiðslur til hlut­hafa munu koma til lækk­unar á nýt­ing­ar­verð­inu. Sé horft fram­hjá því nemur kaup­rétt­ar­gengið um 20 krónum á hlut. Miðað við það gengi getur virði samn­ing­anna orðið tæp­lega 1,9 millj­arðar króna.

Tillaga um breyt­ingu á starfs­kjara­stefnu Skel þess efnis að tekið yrði upp kaup­rétta­kerfi sem heim­ilar þetta var lögð fram á aðal­fundi Skel í síð­asta mán­uði. Líf­eyr­is­sjóð­irnir Frjálsi og Birta, sem eiga sam­tals um 12 pró­senta hlut í félag­inu, sam­þykktu ekki veit­ingu þess­ara kaup­rétta, sem eru á meðal þeirra stærstu sem hafa boð­ist ein­stökum starfs­mönnum fyr­ir­tækja hér­lendis frá síð­asta fjár­mála­hruni. Þær mót­bárur báru ekki árangur og kerfið var sam­þykkt á aðal­fundi Skel í síð­asta mán­uði.

Félagið Strengur, sem stýrt er af Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, stjórn­ar­for­manni Skel, á rúm­lega helm­ings­hlut í fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu.

Öll heimildin nýtt á tveimur nýjum starfsmönnum

SKEL til­kynnti í gær­morgun að Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfason, aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka, hefði verið ráð­inn for­stjóri félags­ins og að Magnús Ingi Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri banka­sviðs Kviku banka, hefði verið ráð­inn fjár­mála­stjóri þess.

Í til­kynn­ingu sem birt­ist eftir lok mark­aða í gær greindi SKEL svo frá því að bæði Ásgeir Helgi og Magnús Ingi fengju kaup­rétti um hluti í félag­inu í sam­ræmi við kaup­rétta­á­ætlun þess sem sam­þykkt var á síð­asta aðal­fundi.

Samkvæmt þeirri áætlun, sem tók gildi þann 10. mars, var SKEL heim­ilt að úthluta kaup­rétti til lyk­il­stjórn­enda félags­ins af 5 pró­sentum af útgefnu heild­ar­hlutafé þess. Mark­aðs­verð þess­ara kaup­rétta er um 1,6 millj­arðar króna, ef miðað er við með­al­gengi hluta­bréfa félags­ins síð­ustu daga.

Þessi kaup­rétt­ar­heim­ild, sem gildir til árs­ins 2027, er full­nýtt í nýjum samn­ingum við Ásgeir Helga og Magnús Inga. Samkvæmt til­kynn­ingu SKEL nemur virði kaup­réttar Ásgeirs 1,02 millj­örðum króna, á meðan virði kaup­réttar Magnúsar Inga nemur 572 millj­ónum króna.

Stórir samningar

Kaup­rétt­ar­samn­ing­arnir eru á meðal þeirra umfangs­mestu sem hafa verið gerðir til ein­stakra starfs­manna á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði frá síð­asta fjár­mála­hruni. Til sam­an­burðar inn­leiddi Arion banki kaup­rétt­ar­á­ætlun til allra 628 fast­ráð­inna starfs­manna bank­ans, en sam­kvæmt henni gat hver og einn þeirra keypt fyrir 600 þús­und krónur einu sinni á ári í fimm ár.

Stuttu síðar var hámarkið hækkað upp í 1,5 millj­ónir króna, og nemur það því 7,5 millj­ónum króna fyrir fimm ár. Það er um 0,7 pró­sent af virði kaup­rétta Ásgeirs Helga í SKEL fyrir næstu fimm árin.

Í febr­úar ákvað stjórn Marels, sem er langstærsta félagið í Kaup­höll­inni, að veita 300 starfs­mönnum sínum kaup­rétti að and­virði 6 millj­arða króna fyrir næstu þrjú árin. Þar af var heild­ar­virði kaup­rétta fyrir alla fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins 1,3 millj­arðar.

Stjórn Haga ákvað í fyrra að veita lyk­il­starfs­mönnum félags­ins kaup­rétti fyrir eitt pró­sent af hlutafé félags­ins fyrir næstu sex árin, en líkt og Við­skipta­blaðið greindi frá nam heild­ar­mark­aðsvirði þess 741 milljón króna. Þar var kaup­rétt­inum dreift jafnt á milli átta lyk­il­stjórn­enda félags­ins.

Studdu ekki kaupréttina

Arnaldur Loftsson er fram­kvæmda­stjóri Frjálsa líf­eyr­is­sjóðs­ins sem er þriðji stærsti hlut­haf­inn í SKEL með 8,57 pró­senta eign­ar­hlut. Í sam­tali við Kjarnann segir hann Frjálsa ekki vera almennt á móti kaup­réttum, en þótti umfang kaup­rétt­ar­á­ætl­un­ar­innar sem lögð var fram á síð­asta aðal­fundi félags­ins meira en almennt ger­ist hér á mark­aði. Því hafi sjóð­ur­inn ákveðið að styðja ekki til­lög­una.

Birta líf­eyr­is­sjóður er fimmti stærsti hlut­haf­inn í SKEL með 4,45 pró­senta eign­ar­hlut. Í sam­tali við Kjarnann sagði Ólafur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri sjóðs­ins, að Birta hefði heldur ekki sam­þykkt til­lög­una um kaup­rétti sökum þess hversu óljós og opin hún hefði verið.

Líkt og Frjálsi segir Ólafur að Birta hafi enga sterka skoðun á kaup­réttum almennt eða árang­ursteng­ingu launa þegar áætl­anir séu skýrar og hóf­legar. Þó sé hann hugsi yfir því að kaup­rétt­ar­heim­ildin, sem sé til fimm ára, hafi verið full­nýtt nú þegar í tvo starfs­menn félags­ins sem séu nýbyrj­aðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár