Aðalfundur Icelandair Group samþykkti milljarða bónuskerfi fyrir stjórnendur

Þrátt fyrir and­stöðu eins stærsta hlut­hafa Icelandair Group sam­þykkti aðal­fundur félags­ins að inn­leiða hvata­kerfi fyrir lyk­il­starfs­menn. Félagið hefur tapað um 80 millj­örðum á fjórum árum og sótt sér 33 millj­arða króna í nýtt hlutafé.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, er á meðal þeirra sem hvatakerfið mun ná til.
Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, er á meðal þeirra sem hvata­kerfið mun ná til. Mynd: RÚV/Skjáskot

Aðal­fundur Icelandair Group sam­þykkti naum­lega í dag til­lögu stjórnar um nýja starfs­kjara­stefnu og kaup­rétt­ar­kerfi fyrir fram­kvæmda­stjórn og lyk­il­starfs­menn. Einn stærsti hlut­hafi félags­ins, líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi, greindi frá því í gær að hann myndi greiða atkvæði gegn til­lög­unni.

Til­­laga stjórn­ar­innar sner­ist um að setja á fót hvata­­kerfi hóp­inn. Mark­miðið með inn­­­leið­ing­u ­hvata­­kerf­is­ins var meðal ann­­ars sagt vera að draga úr líkum á að lyk­il­­starfs­­menn yfir­­­gefi Icelandair Group með litlum fyr­ir­vara.

Í kerf­inu felst að hóp­­ur­inn mun geta fengið allt af 25 pró­­sent af árs­­launum sínum í bónus í formi kaup­réttar á hlutum í Icelandair Group. Fyr­ir­hugað er að gefa út 250 milljón hluti í ár vegna kerf­is­ins og alls 900 milljón hluti á þriggja ára tíma­bili. Miðað við mark­aðsvirði Icelandair Group í dag er virði þeirra hluta sem greiða á út sem kaupauka um tveir millj­­arðar króna. Hægt verður að inn­­­leysa umrædda kaup­rétti að þremur árum liðn­­­um.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Gildi, sem er fimmti stærsti hlut­hafi Icelandair Group, var það mat stjórn­enda hans að til­lagan um hvata­kerfið væri of umfangs­mikil og að sjóð­ur­inn myndi því greiða atkvæði gegn öllu sem sneri að upp­setn­ingu þess. Heim­ildir Kjarn­ans hermdu einnig að það hefði verið til umræðu hjá öðrum stórum hlut­höfum að greiða atkvæði gegn til­lög­unn­i. Sú and­staða hefur þó ekki raun­gerst þar sem til­lagan var, líkt og áður sagði, sam­þykkt. Það að til­lagan hafi verið sam­þykkt með naumum meiri­hluta bendir þó til tölu­verðrar and­stöðu, en 43 pró­sent hlut­hafa voru á aðal­fund­inum sem var raf­rænn.

Töp­uðu 13,7 millj­­örðum í fyrra

Icelandair Group tap­aði 13,7 millj­­­­­örðum króna á árinu 2021 miðað við gengi krónu í lok þess árs en félagið gerir upp í Banda­­­­­ríkja­döl­­­­­um. Þar af tap­aði félagið 5,1 millj­­­­­arði króna á síð­­­­­­­­­ustu þremur mán­uðum árs­ins.

Rekstr­­­­­ar­tap á síð­­­­­asta ári var 17,7 millj­­­­­arðar króna, en end­an­­­­­legt tap dróst saman vegna þess að aðrar tekjur voru jákvæð­­­­­ar. Þar á meðal voru sala eigna, í Iceland Travel og Icelandair Hotels, og tekju­­­­­færsla vegna reikn­aðra vaxta á vaxta­­­­­lausri frestun á greiðslu skatta.

Tap Icelandair Group á árinu 2020 var 51 millj­­­­­­arður króna, árið 2019 tap­aði það 7,8 millj­­­­­­arðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 millj­­­­­­arðar króna. Því hefur sam­­­­­­stæðan tapað yfir 79 millj­­­­­­örðum króna á síð­­­­­­­­­­­ustu fjórum árum.

[adspot]Í skýrslu til­nefn­inga­nefndar Icelandair Group, sem var birt í Kaup­höll Íslands fyrir skemmstu sagði að það væri við­var­andi áhætta fyrir félagið að lyk­il­­­starfs­­­menn hætti þar sem þeir fái ekki næg­i­­­lega vel greitt fyrir störf sín, en þrír úr fram­­­kvæmda­­­stjóri Icelandair Group hafa hætt störfum frá síð­­­asta aðal­­­fundi. Í við­­­tölum sem nefndin tók við stjórn­­­endur og stjórn­­­­­ar­­­menn í félag­inu kom fram að þeir teldu þörf á „sterk­­­ari varð­­­veislu­á­ætlun ásamt end­­­ur­­­skoð­uðu starfs­kjara­­­fyr­ir­komu­lagi æðstu stjórn­­­enda“.

Laun for­­stjóra hækk­­uðu um næstum 50 pró­­sent

Einn lyk­il­­mann­anna sem fær kaupauka- og kaup­rétt­­ar­greiðslur nú þegar bón­us­­kerfið hefur verið sam­­þykkt er Bogi Níls Boga­­son, for­­stjóri Icelandair Group.

Kjarn­inn greindi frá því í síð­asta mán­uði að ​hann hafi fengið 518 þús­und Banda­­­­ríkja­dali í laun og hlunn­indi á síð­­­­asta ári. Á árs­loka­­­­gengi árs­ins 2021 eru það 67,5 millj­­­­ónir króna eða 5,6 millj­­­­ónir króna á mán­uði. Til við­­­­bótar fékk Bogi Nils 119,6 þús­und Banda­­­­ríkja­dali í líf­eyr­is­greiðsl­­­­ur, eða 15,6 millj­­­­ónir króna á ofan­­­­greindu gengi. Það þýðir að laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­greiðslur hans á síð­­­­asta ári voru sam­tals 83,1 millj­­­­ónir króna, eða rúm­­­­lega 6,9 millj­­­­ónir króna að með­­­­al­tali á mán­uð­i.

­Laun Boga hækk­­­­uðu umtals­vert milli ára. Hann var með 355 þús­und Banda­­­­ríkja­dali í laun á árinu 2020 og fékk þá 76 þús­und Banda­­­­ríkja­dali í líf­eyr­is­­­­sjóðs­greiðslur frá félag­inu. Þegar þessar tölur eru umreikn­aðar í íslenskar krónur á árs­loka­­­­gengi síð­­­­asta árs þýða þær að laun og hlunn­indi Boga voru 46,3 millj­­­­ónir króna á árinu 2020, eða tæp­­­­lega 3,9 millj­­­­ónir króna á mán­uði, og líf­eyr­is­­­­sjóðs­greiðsl­­­­urnar alls 9,9 millj­­­­ónir króna. Sam­tals voru laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­­­­sjóðs­greiðslur Boga á árinu 2020 því 56,2 millj­­­­ónir króna miðað við árs­loka­­­­gengi 2021, eða 4,7 millj­­­­ónir króna á mán­uð­i.

Laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­­­­sjóðs­greiðslur Boga hækk­­­­uðu því um 48 pró­­­­sent í Banda­­­­ríkja­dölum talið milli ára.

Kjarn­inn sendi fyr­ir­­­­spurn til Icelandair Group vegna máls­ins og óskaði eftir útskýr­ingum á launa­hækkun for­­­­stjóra. Í svari upp­­­­lýs­inga­­­­full­­­­trúa félags­­­­ins sagði að breyt­ing­una megi „lang­­­­mestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók for­­­­stjóri á sig 30 pró­­­­sent launa­­­­lækkun stærstan hluta árs­ins. Þess má geta í þessu sam­hengi að árs­­­­reikn­ingur félags­­­­ins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. for­­­­stjóra eru greidd í íslenskum krón­­­­um. Með­­­­al­­­­gengi íslensku krón­unnar gagn­vart USD styrkt­ist á milli ára og ýkir það hækk­­­­un­ina í árs­­­­reikn­ingn­­­­um.“

Gengi íslensku krón­unnar gagn­vart Banda­­­­ríkja­­­­dal veikt­ist um 2,5 pró­­­­sent á síð­­­­asta ári.

Hluta­fjár­­aukn­ingar í far­aldr­inum

Icelandair Group fór í nokkrar hluta­fjár­­aukn­ingar eftir að kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­inn skall á. Félagið safn­aði alls 23 millj­­­örðum króna í útboði sem fór fram í sept­­­em­ber 2020, en það hefur átt í miklum rekstr­­­ar­­­vanda um ára­bil sem jókst veru­­­lega þegar kór­ón­u­veiru­far­ald­­­ur­inn reið yfir.

[links]Icelandair Group gerði svo bind­andi sam­komu­lag við banda­ríska fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­sjóð­inn Bain Capital um að hann keypti nýtt hlutafé í flug­­­­­fé­lag­inu í fyrra­sum­­­ar. Sam­­­kvæmt sam­komu­lag­inu greiddi Bain Capital 8,1 millj­­­arð króna og eign­að­ist fyrir vikið 16,6 pró­­­sent hlut í Icelandair Group. Bain Capital átti 15,7 pró­­sent hlut í Icelandair Group um síð­­­ustu ára­­mót og var lang stærsti eig­andi félags­­ins. Aðrir stórir eig­endur eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Til við­bótar hafa verið sóttir nokkrir millj­arðar króna og alls nemur umfang þess fjár sem Icelandair Group hefur sótt sér 33 millj­örðum króna.

Þrátt fyrir mik­inn tap­­rekstur hefur hluta­bréfa­verð í Icelandair Group rúm­­lega tvö­­fald­­ast frá því að hluta­bréfa­út­­­boðið í sept­­em­ber 2020 fór fram. Hlut­hafar í árs­­lok voru 15.287 og fjölg­aði um 1.779 í fyrra.

Ekk­ert eitt fyr­ir­tæki fékk meiri fyr­ir­greiðslu úr rík­is­sjóði vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en Icelandair Group. Á meðal þess sem félagið fékk var rík­is­á­byrgð á lána­línu upp á 16,5 millj­arða króna. Icelandair Group sagði upp lána­lín­unni á sama tíma og hug­myndir um hið nýja hvata­kerfi voru gerðar opin­ber­ar.

Þá hefur Icelandair Group end­ur­samið, af mik­illi hörku, við helstu stétt­ar­fé­lög starfs­manna sinna. Sagði meðal ann­ars 95 pró­sent flug­freyja upp á meðan að á kjara­við­ræðum við þær stóð. Eftir að þær kol­­felldu kjara­­samn­ing var talað um að ráða fólk úr öðru stétt­­ar­­fé­lagi.

Í ræðu sinni á aðal­fund­inum í dag sagði Bogi Nils að heild­ar­skatt­spor Icelandair Group, sem felur í sér alla greidda skatta og gjöld til ríkis og sveit­ar­fé­laga vegna, líka vegna launa starfs­manna, hafi verið yfir 26 millj­arðar króna. Þegar búið væri að draga frá það sem Icelandair fékk úr rík­is­sjóði vegna far­ald­urs­ins væri þetta „fimm­föld sú fjár­hæð sem félagið nýtti sér í gegnum úrræði rík­is­stjórn­ar­innar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár