Aldrei fleiri drepnir af lögreglu í Bandaríkjunum

Frá árinu 2015 hefur lög­reglan í Banda­ríkj­unum skotið 7.082 manns til bana. Í fyrra voru dauðs­föllin 1.055 og hafa aldrei verið fleiri. Aðeins 13 pró­sent þjóð­ar­innar eru svartir en þeir eru nær fjórð­ungur þeirra sem lög­regla skýtur til bana.

Amir Locke, 22 ára svartur karlmaður, er á meðal þeirra 80 sem lögreglan í Bandaríkjunum hefur skotið til bana á þessu ári. 1.055 létu lífið af völdum lögreglu í fyrra og hafa aldrei verið fleiri.
Amir Locke, 22 ára svartur karl­maður, er á meðal þeirra 80 sem lög­reglan í Banda­ríkj­unum hefur skotið til bana á þessu ári. 1.055 létu lífið af völdum lög­reglu í fyrra og hafa aldrei verið fleiri. Mynd: EPA

Lög­reglan í Banda­ríkj­unum skaut að minnsta kosti 1.055 manns til bana á síð­asta ári og hafa ekki verið fleiri frá því að Washington Post hóf árið 2015 að taka saman töl­fræði um fólk sem lög­regla skýtur til bana.

Það sem af er þessu ári hefur lög­reglan skotið 80 manns til bana. Meðal þeirra er Amir Locke, 22 ára svartur karl­maður, sem var skot­inn til bana í heima­húsi í Minn­ea­polis á mið­viku­dags­kvöld. Lög­reglan var að rann­saka morð og nýtti sér heim­ild til að fara inn á heim­ili án þess að banka. Námsfólk í borg­inni efndu til mót­mæla þar sem þau for­dæma morðið og krefj­ast þess að heim­ild lög­reglu til að fara inn á heim­ili án þess að banka verði end­ur­kölluð.

[adspot]Lög­reglu­of­beldi hefur verið umfangs­mikið í umræð­unni vest­an­hafs síð­ustu ár. Mann­rétt­inda­hreyf­ingin Black lives Matter var stofnuð árið 2013 og fékk byr undir báða vængi vorið 2020 eftir að Geor­ge Floyd, sem var svart­ur, var myrt­ur af hvít­um lög­reglu­manni, Þrátt fyrir vit­und­ar­vakn­ingu og mót­mæla­öldu gegn lög­reglu­of­beldi hafa lög­reglu­menn á vakt aldrei skotið jafn marga til bana.

FBI vantaldi þau sem lögregla skaut til bana

Árið 2014 skaut lög­regla Michael Brown, óvopn­aðan svartan mann, til bana. Í umfjöllun sinni um málið komst blaða­maður Washington Post að því að alrík­is­lög­reglan (FBI) vantaldi dauðs­föll af völdum lög­reglu um meira en helm­ing. Skýrist það einna helst af því að lög­reglu er val­kvætt að greina frá þegar almennir borg­arar láta lífið og kjósa fæstar lög­reglu­stöðvar að til­kynna slík dauðs­föll.

[links]Fjöl­mið­ill­inn ákvað því að taka saman og halda utan um töl­fræði yfir fjölda fólks sem lög­regla skýtur til bana. Tölur Washington Post byggja aðal­lega á frétta­flutn­ingi, sam­fé­lags­miðla­færslum og lög­reglu­skýrslum.

Frá því að Washington Post hóf að taka töl­fræð­ina saman hefur lög­regla skotið um þús­und manns til bana árlega, alls 7.082. Fæst voru þau árið 2016, 958 tals­ins en árið 2020 fór talan í fyrsta sinn yfir þús­und.

Svartir 13 prósent þjóðarinnar en nær fjórðungur þeirra sem lögregla skýtur til bana

Meðal þess sem lesa má úr gagna­grunn­inum er að þrátt fyrir að um helm­ingur þeirra sem lög­regla skýtur til bana eru hvítir eru hlut­fall svartra sem láta lífið að völdum lög­reglu yfir tvö­falt meira ef miðað er við sam­setn­ingu íbúa. 13 pró­sent Banda­ríkja­manna eru svartir en 22,3 pró­sent þeirra sem lög­regla hefur skotið til bana síð­ustu sjö ár eru svartir. Ef miðað er við óvopn­aða sem láta lífið af völdum lög­reglu er þriðj­ungur þeirra svartur.

Langstærstur hluti þeirra sem lög­regla skýtur til bana eru karl­menn eða 95 pró­sent og meira en helm­ingur þeirra er á aldr­inum 20 til 40 ára. Lögregla hefur skotið fólk til bana í öllum ríkjum Banda­ríkj­anna en eru algeng­ari í fjöl­mennum borgum. Hæsta dán­ar­tíðnin er í Nýju Mexíkó, Alaska og Oklahoma.

Þrátt fyrir að talan hafi aldrei verið jafn há og nú segja sér­fræð­ingar að talan sé innan þeirra marka sem búist var við. Andrew Wheeler, afbrota­fræð­ingur og töl­fræð­ingur, segir gögnin í sam­ræmi við þá stað­reynd að litlar breyt­ingar hafi verið gerðar á lög­gæslu í Banda­ríkj­unum síð­ustu ár. „Að minnsta kosti hvað varðar til­felli þar sem lög­reglu­menn skjóta fólk til bana,“ segir Wheeler.

Morðið á George Floyd breytti í raun litlu

Dauði George Floayd í lok maí 2020 var drop­inn sem fyllti mæl­inn hjá fjölda fólks í Banda­ríkj­unum. Eld­fimi drop­inn sem kveikti neista og gerði millj­ónir manna bál­reið­ar. Og vik­urnar og mán­uð­ina á eftir log­uðu Banda­ríkin stranda á milli.

Floyd bjó í Minn­ea­polis, einni þeirra borga þar sem ójöfn­uður milli svartra og hvítra íbúa er mik­ill. Þann 25. maí gekk hann inn í verslun og borg­aði fyrir sígar­ettu­pakka með pen­inga­seðli sem afgreiðslu­mann­inn grun­aði að væri fals­að­ur. Hann hringdi því í lög­regl­una sem kom skömmu síðar á vett­vang. Floyd var hand­tek­inn og einn lög­reglu­mann­anna setti hné sitt að hálsi hans. Floyd, liggj­andi á jörð­inni í hand­járn­um, sagð­ist ekki ná and­anum en það breytti engu, áfram var hnénu haldið að hálsi hans. Í átta mín­útur og 46 sek­únd­ur.

Þar til Floyd hætti að anda.

Derek Chauvin, lög­reglu­mað­ur­inn sem kraup á hálsi hans, var dæmdur í 22 ára fang­elsi. En gögn sýna að dauði Floyd hefur í reun breytt litlu. Að vísu hafa yfir 400 frum­vörp verið lögð frá á rík­is­þingum sem snúa að vald­beit­ingu lög­reglu. Þá hafa sál­fræð­ingar veitt lög­reglu­mönnum á ákveðnum lög­reglu­stöðum veitt aðstoð sína og ráð um hvernig ber að nálg­ast fólk sem glímir við and­leg veik­indi. Það virð­ist ekki hafa skilað sér, að minnsta kosti ekki enn sem komið er.

Wheeler segir að þó dauðs­föllum af völdum lög­reglu fari fjölg­andi milli ára þurfi að fara var­lega í að draga álykt­anir út frá töl­unum. Franklin Zimring, laga­pró­fessor og afbrota­fræð­ingur við Berkely háskól­ann í Kali­forníu, tekur í sama streng og bendir á að pró­sentu­aukn­ingin milli ára, þrjú pró­sent, sé lítil.

„Góðu frétt­irnar eru þær að hlut­irnir eru ekki að versna mjög mikið. En slæmu frétt­irnar eru að þeir eru heldur ekki að verða betri,“ segir Zimring.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár