Greiðslur til allra bankastjóra stærstu bankanna jukust í fyrra

Banka­stjóri Íslands­banka fékk sér­staka yfir­vinnu­greiðslu vegna und­ir­bún­ings fyrir skrán­ingu á markað. Banka­stjóri Arion banka fékk mynd­ar­lega bón­us­greiðslu. Banka­stjóri Lands­bank­ans fékk hefð­bundna launa­hækkun.

Bankastjórar þriggja stærstu banka landsins.
Banka­stjórar þriggja stærstu banka lands­ins. Mynd: Samsett

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, fékk sam­tals 68,6 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð í fyrra, eða 5,7 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Á árinu 2020 fékk hún 60,3 millj­ónir króna í laun eða um fimm millj­ónir króna á mán­uði.

Munurinn á launum milli ára skýrist af sér­stakri 10,9 milljón króna greiðslu vegna yfir­vinnu sem Birna fékk í tengslum við und­ir­bún­ing hluta­fjár­út­boðs og skrán­ingar Íslands­banka á markað í fyrra­sumar. Án hennar hefðu hefðu heild­ar­laun Birnu lækkað um 2,6 millj­ónir króna milli ára.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Íslands­banka sem birtur var í gær. Íslenska ríkið er stærsti eig­andi bank­ans með 65 pró­sent eign­ar­hlut.

Fékk bónusgreiðslu

Allir banka­stjórar stóru bank­anna fengu hærri greiðslur frá atvinnu­rek­anda sínum í fyrra en á árinu 2020. Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, var með 69,8 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð í fyrra, eða 5,8 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Arion banki hefur hins vegar inn­leitt kaupauka- og kaup­rétt­ar­kerfi sem umb­unar starfs­fólki umtals­vert.

[adspot]Kaupauka­kerfið gengur meðal ann­ars þannig fyrir sig að ef bank­inn nær því mark­miði að vera með meiri arð­semi en helstu sam­keppn­is­að­ilar sínar þá fá stjórn­­­­­endur og það starfs­­­­­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans allt að 25 pró­­­­­sent af föstum árs­­­­­launum í kaupauka­greiðslu, en í formi hluta­bréfa í bank­­­­­anum sem verða ekki laus til ráð­­­­­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðn­­­­­­­­­um. Í til­felli Bene­dikts þýðir það kaupauka upp á 17,5 millj­ónir króna en hann var með 69,8 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð á síð­asta ári.

Samkvæmt kaup­rétt­ar­á­ætlun Arion banka geta allir fast­ráðnir starfs­menn keypt hluta­bréf í bank­anum fyrir 1,5 milljón króna einu sinni ári í fimm ár. Þau kaup fara fram á geng­inu 95,5 krónur, en mark­aðsvirði Arion banka er 98 pró­sent yfir því gengi í dag. Það þýðir að bréfin sem starfs­maður kaupir á 1,5 millj­ónir króna eru þriggja milljón króna virði.

Arion banki er eini kerf­is­lega mik­il­vægi bank­inn sem íslenska ríkið á ekki hlut í. Stærstu eig­endur bank­ans eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Með 4,5 milljónir á mánuði

Laun Lilju Bjarkar Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra Lands­bank­ans, hækk­uðu um 3,2 millj­ónir króna í fyrra og voru 45,4 millj­ónir króna. Það þýðir að hún var með 3,8 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun að með­al­tali sem er um 263 þús­und krónum hærri laun á mán­uði en hún hafði að með­al­tali á mán­uði á árinu 2020. Laun hennar hækk­uðu því um sjö pró­sent milli ára.

[links]Auk launa og hlunn­inda (sem í fel­ast til að mynda afnot af bif­reið í eigu bank­ans) fékk Lilja greitt mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð upp á 8,7 millj­ónir króna, eða 725 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali. Mót­fram­lags­greiðslur hennar hækk­uðu um 8,8 pró­sent milli ára.

Sam­tals fékk Lilja því 54,4 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóðs á síð­asta ári, eða rúm­lega 4,5 millj­ónir króna á mán­uði.

Lands­bank­inn er í eigu íslenska rík­is­ins.

Allir stóru bank­arnir þrír hafa nú birt árs­reikn­inga sína vegna árs­ins 2021. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra á því ári var 81,2 millj­arðar króna. Á árinu 2020 högn­uð­ust þeir um tæpa 30 millj­arða króna. Því var hagn­aður þeirra á síð­asta ári 170 pró­sent meiri en á árinu 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár