Kalla eftir „hvalrekaskatti“ á orkufyrirtæki

Tveir breskir stjórn­mála­flokkar kalla nú eftir sér­stökum ein­greiðslu­skatti á orku­fyr­ir­tæki þar í landi sem hafa hagn­ast mikið á skörpum hækk­unum á orku­verði. Skattinn mætti nota til að fjár­magna stuðn­ings­að­gerðir fyrir tekju­lág heim­ili.

Rachel Reeves, þingmaður breska Verkamannaflokksins og skuggaráðherra fjármála.
Rachel Reeves, þing­maður breska Verka­manna­flokks­ins og skugga­ráð­herra fjár­mála. Mynd: EPA

Rík­is­stjórn Bret­lands ætti að leggja svo­kall­aðan „hval­reka­skatt“ á bresk olíu­fyr­ir­tæki, sem skil­uðu met­hagn­aði í fyrra sökum skarpra orku­verðs­hækk­ana í land­inu. Þetta segja tals­menn breska Verka­manna­flokks­ins og Frjáls­lyndra demókrata, en sam­kvæmt þeim væri hægt að fjár­magna stuðn­ings­að­gerðir fyrir heim­ili sem hafa orðið illa úti vegna þess­ara verð­hækk­ana með slíkri skatt­lagn­ingu.

Methagnaður hjá olíufyrirtækjum

Samkvæmt frétt BBC skil­aði breska orku­fyr­ir­tækið BP 12,8 millj­arða punda hagn­aði í fyrra sam­kvæmt nýrri til­kynn­ingu, en það er mesti hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins í átta ár. Hagn­að­ur­inn var einnig í hæstu hæðum hjá Shell, sem skil­aði nýlega besta árs­fjórð­ungs­upp­gjöri sínu frá árinu 2013.

Hagn­að­ur­inn er til­kom­inn vegna skarpra verð­hækk­ana á olíu og jarð­gasi á heims­vísu, en sú verð­hækkun hefur einnig leitt til mik­illa útgjalda­aukn­ingar á útgjöldum heim­ila lands­ins. Samkvæmt við­mæl­endum Guardian er búist við að heim­ilin muni þurfa að greiða rúm­lega helm­ingi meira vegna orkunnar sinnar í apríl en þau gera núna, eða tæp­lega tvö þús­und pund á mán­uði. Það jafn­gildir 337 þús­und íslenskum krónum.

Skattur vegna hvalreka

Verka­manna­flokk­ur­inn lagði til í byrjun árs að virð­is­auka­skatt­ur­inn á orku­kostn­aði heim­ila yrði afnum­inn, en slíkt myndi lækka hann um 200 pund á mán­uði. Samkvæmt flokknum gætu olíu­fyr­ir­tæki lands­ins fjár­magnað hluta af þess­ari aðgerð, þar sem hægt yrði að skatt­leggja hluta af þeim hagn­aði sem þau hafa orðið fyrir vegna þess­ara skarpra verð­hækk­ana.

Í kjöl­far þess að hagn­að­ar­tölur BP og Shell voru birtar hefur þess háttar skattur, sem er kall­aður hval­reka­skattur (e. windfall tax), svo fengið auk­inn hljóð­byr á meðal stjórn­ar­and­stöð­unnar í Bret­landi. Rachel Reeves, skugga­ráð­herra fjár­mála í land­inu, kall­aði eftir henni í Twitter færslu sem sjá má hér að neðan, en þar sagði hún einnig að áform rík­is­stjórn­ar­innar til að bregð­ast við hærri orku­kostn­aði hafi skilið heim­ilin eftir með meiri áhyggjur en áður.

Guardian greinir einnig frá því að for­maður Frjáls­lynda demókra­ta­flokks­ins, Ed Davey, sagði að það væri ein­fald­lega ósnna­gjarnt að orku­fyr­ir­tækin högn­uð­ust svona mikikið á ástand­inu á meðan fólk veigraði sér við að kveikja á ofn­unum heima hjá sér.

Fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, Rishi Sunak, hefur hingað til ekki viljað koma á slíkri skatt­lagn­ingu, en í síð­ustu viku sagði hann olíu­fyr­ir­tækin nú þegar greiða mikið í opin­ber gjöld. Samkvæmt honum myndi meiri skatt­lagn­ing leiða til þess að fyr­ir­tækin ættu ekki nægan pen­ing til að gera starf­semi sína vist­vænni.

For­stjóri BP, Bernard Looney, svar­aði á svip­uðum nótum í vik­unni, en hann sagði við Financial Times að hval­reka­skattur á olíu­fyr­ir­tæki væri ekki lík­legur til að leysa orku­krís­una, þar sem hún myndi koma í veg fyrir fjár­fest­ingar í grænni orku­fram­leiðslu.

Ekki ný tegund skattlagningar

Samkvæmt umfjöllun BBC hefur breska rík­is­stjórnin áður lagt hval­reka­skatt á fyr­ir­tæki. Frægasta dæmið um það er frá árinu 1997, þegar rík­is­stjórn Tony Blair skatt­lagði fyr­ir­tæki sem höfðu verið einka­vædd, á grund­velli þess að þau hefðu verið seld á und­ir­verði.

Þar var um að ræða orku­fyr­ir­tæki, veitu­fyr­ir­tæki, fjar­skipta­fyr­ir­tæki og rekstr­ar­að­ila flug­valla. Íhalds­flokk­ur­inn lagði sam­bæri­legan skatt á banka árið 1981 á grund­velli þess að þeir hefðu hagn­ast óhóf­lega á háum stýri­vöxtum, Sama rík­is­stjórn setti síðar sér­stakan skatt á þar­lend olíu­fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár