Willum var hlynntur því að leyfa veirunni að ganga án sóttvarnatakmarkanna síðasta haust

Viðhorf fyrr­ver­andi og núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra um að leyfa kór­ónu­veirunni að ganga án sótt­varna­tak­mark­ana eru mjög ólík. Samkvæmt kosn­inga­prófi RÚV síð­ast­liðið haust var Svandís mót­fallin því en Willum var 89 pró­sent sam­mála full­yrð­ing­unni.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra var hlynntur því síðasta haust að leyfa ætti kórónuveirunni að ganga án sóttvarnatakmarkana. Þáverandi heilbrigðismálaráðherra var alfarið á móti því á þeim tíma.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra var hlynntur því síð­asta haust að leyfa ætti kór­ónu­veirunni að ganga án sótt­varna­tak­mark­ana. Þáver­andi heil­brigð­is­mála­ráð­herra var alfarið á móti því á þeim tíma. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir stefnu­breyt­ingu hafa orðið í bar­átt­unni við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn í dag þegar aflétt­ing­ar­á­ætlun stjón­valda var kynnt. Í stað þess að styðj­ast við aðferða­fræði temprunar líkt og gert hefur verið síð­ustu tvö ár er stefnan að opna sam­fé­lagið. „Sem er auð­vitað búið að vera loka­mark­miðið allan tím­ann,“ sagði Katrín í blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í Safna­hús­inu í dag.

[links]Viðhorf for­sæt­is­ráð­herra frá því síð­asta haust hefur greini­lega breyst en í kosn­inga­prófi RÚV síð­asta haust tók Katrín ekki vel undir þá full­yrð­ingu að leyfa ætti kór­ónu­veirunni að ganga án sótt­varna­tak­mark­ana. Á sama tíma hefur staða far­ald­urs­ins breyst en ein af megin rökum sótt­varna­læknis við að hefja aflétt­ing­ar­á­ætlun er að þó svo að ómíkron-afbrigði kór­ónu­veirunnar sé mun meira smit­andi en önnur afbrigði er minna um alvar­leg veik­indi.

Katrín kvaðst vera 15 pró­sent sam­mála full­yrð­ing­unni síð­asta haust. Ef svör allra ráð­herra eru borin saman má merkja greini­legan mun á afstöðu þáver­andi og núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra. Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra í síð­ustu rík­is­stjórn, var algjör­lega ósam­mála full­yrð­ing­unni um að leyfa ætti veirunni að ganga án sótt­varna­tak­markanna en Willum Þór Þórsson, núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, var 89 pró­sent sam­mála full­yrð­ing­unni.

[adspot]Svör ráð­herr­anna við full­yrð­ing­unni „Það á að leyfa kór­ónu­veirunni að ganga án sótt­varna­tak­mark­ana“, þar sem miðað er við skal­ann 0-100 þar sem 0 er ósam­mála en 100 sam­mála, voru eft­ir­far­andi:

  • Willum Þór Þórsson: 89%
  • Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir: 100%
  • Katrínt Jak­obs­dóttir: 15%
  • Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir: 63%
  • Guð­laugur Þór Þórð­ar­son: 72%
  • Guð­mundur Ingi Guð­brands­son: 0%
  • Svandís Svav­ars­dóttir: 0%
  • Sigurður Ingi Jóhanns­son: 14%
  • Lilja Alfreðs­dóttir: 66%
  • Ásmundur Einar Daðason: 29%

Hvorki Bjarni Bene­dikts­son né Jón Gunn­ars­son, þing­menn Sjálf­stæð­is­dlokks­ins og ráð­herrar í núver­andi rík­is­stjórn, svör­uðu kosn­inga­prófi RÚV í haust.

Af svör­unum að dæma gætti meira samæmis í svörum ráð­herra Vinstri grænna en hinna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna tveggja. Áslaug Arna, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, var hlynnt­ust full­yrð­ing­unni um að láta veiruna ganga án sótt­varna­tak­markanna en Guð­mundur Ingi og Svandís alfarið ósam­mála full­yrð­ing­unni. Næst á eftir þeim kom Sigurður Ingi og þar á eftir for­sæt­is­ráð­herra.

Hvað sem því líður er stað­reyndin sú að aflétt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda hefst á mið­nætti og ef allt gengur að óskum verða allar sótt­varna­tak­mark­anir afléttar 14. mars, rúmum tveimur árum eftir að far­ald­ur­inn braust fyrst út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár