Tímasetning frá bólusetningu að sýkingu gæti skipt sköpum

Ný rann­sókn bendir til þess að lengri tími milli bólu­setn­ingar og sýk­ingar af völdum kór­ónu­veirunnar sé betri en styttri.

Tíma­setn­ing á bólu­setn­ingu og smiti fólks af kór­ónu­veirunni gæti verið lyk­il­at­riði þegar kemur að því að verj­ast ómíkron-bylgj­unni. Rannsókn jap­anskra vís­inda­manna bendir til að fólk sem smit­ast hefur af kór­ónu­veirunni nýju, SARS-CoV-2, nokkrum mán­uðum eftir að hafa fengið bólu­setn­ingu hafi betri vörn gegn ómíkron-afbrigði veirunnar en þeir sem styttra leið á milli bólu­setn­ingar og sýk­ingar.

Í grein í vís­inda­tíma­rit­inu Nature um rann­sókn­ina segir að þetta gæti þýtt að lönd þar sem smit­bylgja ann­arra afbrigða en ómíkron gekk yfir á síð­ari hluta síð­asta árs séu í betri stöðu nú í upp­hafi nýs árs en ann­ars hefði verið.

[adspot]

Í mörgum löndum hefur hver smit­bylgjan á fætur annarri riðið yfir og ónæmi þar með að ein­hverju leyti mynd­ast gegn alvar­legum sýk­ingum. En í Japan er staðan nokkuð önnur og ónæmi fyrst og fremst til­komið með bólu­setn­ingum með mRNA-bólu­efnum.

[links]Aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar, smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ing­ur­inn Takeshi Arashiro, segir teymi hans hafa viljað vita hvort að þessi staða gerði það að verkum að jap­anska þjóðin væri sér­stak­lega mót­tæki­leg fyrir ómíkron-afbrigð­inu. Enn sem komið er hafa ekki margir bólu­settir sýkst af ómíkron í land­inu.

Teymið safn­aði mótefni frá Japönum sem höfðu fengið tvo skammta af bólu­efni Pfizer en höfðu síðar sýkst annað hvort af alfa-afbrigði veirunnar eða delta. Þeir rann­sök­uðu svo hæfni mótefn­is­ins til að vernda rækt­aðar frumur gegn sýk­ingu af veirunni. Nið­ur­staðan var sú að sá tími sem hafði liðið frá bólu­setn­ingu og til sýk­ingar fólks skipti sköpum þegar kom að því að verj­ast end­ur­sýk­ingu – sér­stak­lega af völdum ómíkron-afbrigð­is­ins.

Samræmist almennum skilningi vísindanna

Nature ræðir einnig við ónæm­is­sér­fræð­ing­inn Jennu Gut­hmiller sem starfar við Háskól­ann í Chigago. Hún segir rann­sókn japönsku vís­inda­mann­anna, sem ekki hefur enn verið rit­rýnd, áhuga­verða og að hún sam­ræm­ist almennum skiln­ingi vís­ind­anna á því hvernig mótefni virka og breyt­ast með tím­anum.

Gut­hmiller útskýrir að bólu­setn­ing kalli fram mótefna­svar í lík­am­anum rétt eins og nátt­úru­leg sýk­ing. Ef mann­eskja sýk­ist fljót­lega eftir bólu­setn­ingu eru mótefnin lík­lega enn í blóð­rásinni þar sem þau bind­ast veirunni og útrýma henni.

Þegar mann­eskja hins vegar sýk­ist nokkrum mán­uðum eftir bólu­setn­ingu hefur hún myndað minn­is­frumur sem þekkja sýkil­inn (veiruna) er hann reynir inn­göngu í lík­amann og getur, fræði­lega séð, varist sýk­ingu betur.

Þar sem nátt­úru­legt ónæmi er lítið í Japan eru miklar vonir bundnar við örv­un­ar­skammta bólu­efn­anna til að verj­ast ómíkron. Örv­un­ar­skammt­arnir gætu mögu­lega virkað eins og hin svið­setta end­ur­sýk­ing í japönsku rann­sókn­inni en það á hins vegar enn eftir að rann­saka sér­stak­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár