Óttast „flensu fárviðri“ samhliða „ómíkron-flóðbylgju“

Hún er óvenju brött, kúrfan sem sýnir COVID-smitin í Ísrael. Bólu­settasta þjóð heims er ekki í rónni þrátt fyrir að ómíkron sé mild­ara afbrigði enda er hún einnig að fást við delta og svo inflú­ens­una ofan á allt saman.

Gríðarleg ásókn er í PCR-próf í Ísrael og hafa yfirvöld orðið að breyta viðmiðum sínum. Enn myndast þá langar raðir bílar daglega við sýnatökustaði.
Gríð­ar­leg ásókn er í PCR-próf í Ísrael og hafa yfir­völd orðið að breyta við­miðum sínum. Enn mynd­ast þá langar raðir bílar dag­lega við sýna­töku­staði. Mynd: EPA

Ísraelar eru nú í auga ómíkron-storms­ins og líkt og Íslend­ingar eru þeir að reyna að spá fyrir um álagið sem það mun hafa á heil­brigð­is­kerfið. Til­fellum fjölgar gríð­ar­lega hratt, sjúkra­húsinn­lögnum fjölgar sömu­leiðis tölu­vert en það sem læknar vara nú við er að sam­tímis grein­ast sífellt fleiri með inflú­ensu. Flensu­árið í fyrra reis ekki hátt enda sótt­varna­ráð­staf­anir miklar. Þennan vet­ur­inn er staðan breytt, færri hafa þegið inflú­ensu­bólu­setn­ingu en venjan er og að auki virð­ast bólu­efnin, sem þróuð eru á hverju ári, ekki gagn­ast sem skyldi gegn því afbrigði inflú­ensu­veirunnar sem nú geisar.

Ofan á allt saman er delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar enn nokkuð útbreitt í Ísrael – afbrigði sem er ekki nándar nærri eins smit­andi og ómíkron en getur valdið alvar­legri veik­indum.

[adspot]

„Okkar helsta áhyggju­efni er að álagið á heil­brigð­is­kerfið gæti orðið óbæri­legt og gæti kostað manns­líf,“ hefur Times of Israel eftir Ran Nir-Paz, sér­fræð­ingi í smit­sjúk­dómum á Hadassah-sjúkra­hús­inu í Jer­úsalem. Hann segir þetta ekki svart­sýna spá heldur raun­sæja. Heil­brigð­is­starfs­fólk sé nú þegar undir miklu álagi að sinna COVID-sjúk­lingum og ef flensutil­fellum haldi áfram að fjölga og inn­lögnum af þeim sökum einnig gæti það haft skelfi­legar afleið­ingar.

Álag á sjúkra­hús í land­inu hefur verið mikið vegna COVID-19 þrátt fyrir að Ísraelar séu ein bólu­settasta þjóð heims og að rúm­lega 250 þús­und manns hafi ekki fengið aðeins einn örv­un­ar­skammt heldur tvo. Þannig hafa þessir ein­stak­lingar fengið fjóra skammta af bólu­efni Pfizer sem er nær það eina sem notað er í land­inu í kjöl­far samn­ings við lyfj­aris­ann sem tryggði meira en nóg af bólu­efni fyrir alla þjóð­ina.

Lækn­ir­inn Ronni Gamzu, sem fór fyrir við­brögðum yfir­valda vegna far­ald­urs­ins í upp­hafi og er nú for­stjóri Ichilov -sjúkra­húss­ins í Tel Aviv, er mun bjart­sýnni en kollegi hans. Hann telur sam­legð­ar­á­hrif þess­ara tveggja far­aldra ekki mikið áhyggju­efni. Enn séu sótt­varna­ráð­staf­anir vegna COVID að draga úr útbreiðslu inflú­ensu. Flensutill­fellum sé vissu­lega að fjölga en að „stórir toppar“ eins og venju­lega sjá­ist á vet­urna vegna inflú­ens­unar hafi enn ekki orðið. „Þess vegna er ég ekki sann­færður um að erfitt ástand sé framundan.“

Hann segir enn­fremur að sjúkra­hús í Ísrael séu vel und­ir­búin, hafi nóg af tólum og tækjum hvers konar til að takast á við áskor­an­irnar framundan.

Lækn­ir­inn Nir-Paz er alls ekki sam­mála og segir að þegar tveir smit­sjúk­dómar geisi á sama tíma sé hættan á of miklu álagi á sjúkra­húsin alltaf fyrir hendi. „Ómíkron er flóð­bylgja, inflú­ensa er fár­viðri og ófyr­ir­sjá­an­legt er hvaða áhrif þetta sam­an­lagt mun hafa.“

Segir vísbendingar um góða virkni fjórða skammtsins

Naftali Bennett, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, fagn­aði því í í gær að um 250 þús­und landar hans hefðu þegið fjórða skammt bólu­efn­is­ins gegn kór­ónu­veirunni. Allir sem eru sex­tíu ára eða eldri eiga nú rétt á slíkum skammti sem og heil­brigð­is­starfs­menn og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Bennett segir fjórða skammt­inn“ lyk­il­inn“ að stefnu lands­ins í bar­átt­unni gegn ómíkron-bylgj­unni. Enn er skortur á gögnum um gagn­semi af ann­ars örv­un­ar­skammts. Bennett vís­aði um helg­ina til þess að honum hefðu verið kynntar frum­nið­ur­stöður lít­illar rann­sóknar um að fjórði skammt­ur­inn fram­kall­aði næstum því fimm sinnum meira af mótefni í blóð­inu. Enn á eftir að koma í ljós hvort það eitt og sér gagn­ist gegn smiti og veik­indum af ómíkron-afbrigð­inu. Þá er heldur ekki vitað hversu lengi hið aukna mótefna­magn varir.

Samkvæmt spálík­ani stjórn­valda mega um 40 pró­sent Ísraela gera ráð fyrir því að smit­ast af COVID-19 í ómíkron-bylgj­unni, þeirri fimmtu af far­aldr­inum sem gengur yfir þjóð­ina.

Mikil uppsveifla

Greindum smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega í Ísrael á síð­ustu dögum. Á föstu­dag voru þau yfir 18 þús­und og hafa aldrei verið fleiri. Hlutfall jákvæðra sýna þann dag var nærri 12 pró­sent og R-talan, sem segir til um hversu marga hver og einn smit­aður smitar er að nálg­ast 2.

Sjúkra­húsinn­lögnum fólks með COVID-19 hefur einnig fjölgað umtals­vert. 338 lágu inni fyrir viku en í gær var fjöld­inn kom­inn upp í 524. 206 þess­ara sjúk­linga voru alvar­lega veikir, að sögn heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins.

8.259 hafa lát­ist vegna COVID-19 í Ísrael. Tíu lét­ust í gær. Dán­ar­tíðnin er þó langa vegu frá því sem hún hefur verið í fyrri bylgjum. Það ber þó að hafa í huga að ómíkron-bylgjan í land­inu er nokkuð seinna á ferð­inni en í mörgum Evr­ópu­ríkjum.

Ísraelar eru 9,5 millj­ónir. 6,6 millj­ónir hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni, tæpar 6 millj­ónir tvo skammta og 4,3 millj­ónir þrjá eða fjóra. Óbólu­settir eru því enn margir þrátt fyrir góðan aðgang að bólu­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár