Ekki oft sem ráðuneyti vari Alþingi við hagstjórnarmistökum

Þing­maður Sam­fylk­ingar gagn­rýnir að meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hafi ekki tekið til­lit til varn­að­ar­orða fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um fram­leng­ingu „Allir vinna“. Formaður nefnd­ar­innar segir „ósann­gjarnt“ að horfa bara á útgjalda­hlið átaks­ins.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingar.
Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði Guðrúnu Haf­steins­dóttur for­mann efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis að því á Alþingi í dag hvernig stæði á því að meiri­hluti nefnd­ar­innar hefði ekki brugð­ist með neinum hætti við þeim „þungu og afger­andi við­vör­un­ar­orðum“ sem skrif­stofa skatta­mála í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu hefði beint til þings­ins hvað varðar fram­leng­ingu úrræðis sem nefn­ist Allir vinna.

Í breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta nefnd­ar­innar við svo­kallað band­orms­frum­varp sem lagt var fram sam­hliða fjár­lög­unum er lagt til að úrræðið verði fram­lengt út ágúst­mánuð, en þó með ákveðnum breyt­ingum sem draga aðeins úr umfang­inu, eins og Kjarninn fjall­aði um skömmu fyrir jól.

Skrif­stofa skatta­mála í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu mælti hins vegar fremur afger­andi gegn því að úrræðið, sem felur í sér fulla end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts af ákveðnum teg­undum útseldrar vinnu, yrði fram­lengt í þeirri mynd sem tekin var upp eftir að kór­ónu­veiran fór að láta á sér kræla.[links]

Jóhann Páll spurði að því á Alþingi í morgun hvernig stæði á því að ekki hefði verið tekið til­lit til þeirra við­vör­un­ar­orða sem sett voru fram af hálfu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans og rifj­aði upp að það væri mat ráðu­neyt­is­ins að fram­leng­ing Allir vinna væri hrein­lega óráð­leg.

„Að mati ráðu­neyt­is­ins er fram­leng­ingin til þess fallin að ýta undir þenslu, hún raskar jafn­ræði á milli atvinnu­greina, grefur undir skil­virkni virð­is­auka­skatt­kerf­is­ins, kostar á átt­unda millj­arð króna á næsta ári og tor­veldar það verk­efni að draga úr halla­rekstri rík­is­sjóðs og halda aftur af verð­bólgu. Svo benti ráðu­neytið líka á það hefur ekki verið sýnt fram á að úrræðið sporni gegn svartri atvinnu­starf­semi eða stuðli að betri skatt­skilum, það liggja ekki fyrir neinar grein­ingar á þessu,“ sagði Jóhann Páll.

Til við­bótar því sem þing­mað­ur­inn nefndi má nefna að í minn­is­blað­inu frá ráðu­neyt­inu er þess getið að Skatt­ur­inn hefði sett mikla vinnu í að afgreiða þær yfir hund­rað þús­und end­ur­greiðslu­beiðnir sem borist hafa vegna úrræð­is­ins frá því í mars 2020 – og að ráðu­neytið velti því upp hvort tíma starfs­manna Skatts­ins væri ef til vill betur varið í skatt­eft­ir­lit.

[adspot]

Jóhann Páll bað um útskýr­ingar frá Guðrúnu á því að hvaða leyti meiri­hluti nefnd­ar­innar væri ósam­mála því sem fram kom í minn­is­blað­inu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, sem og á því hvers vegna ekki væri brugð­ist við inni­haldi minn­is­blaðs­ins með neinum hætti í nefnd­ar­á­lit­inu. Þing­mað­ur­inn nefndi að það væri ekki oft sem ráðu­neyti teldi sig knúið til þess að bein­línis vara Alþingi við hag­stjórn­ar­mis­tökum með þeim hætti sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­neytið hefði gert í þessu máli.

Byggingariðnaðurinn hafi tekið á sig fyrri högg

Guðrún svar­aði því til að Allir vinna hefði verið við lýði í mjög langan tíma í íslensku sam­fé­lagi og full­yrti að úrræði hefði skilað ávinn­ingi í bar­átt­unni gegn svartri atvinnu­starf­semi í land­inu. Hún sagði að það væri enn slaki í bygg­ing­ar­iðn­aði á Íslandi og að þegar hefði gefið á bát­inn í íslensku efna­hags­lífi hefði mann­virkja­geir­inn verið sá geiri sem hefði þurft að bera mjög þungar byrðar.

„Við þekkjum það öll frá efna­hags­á­fall­inu sem varð hér í kjöl­far banka­hruns­ins þá varð það högg sem bygg­ing­ar­geir­inn fékk á sig gríð­ar­legt og hefur hann varla borið sitt barr síðan,“ sagði Guðrún. Hún nefndi svo aftur að úrræðið hefði spornað gegn svartri atvinnu­starf­semi – það væri „óyggj­andi“ að ávinn­ingur væri af því að þessi vinna væri gefin upp, í stað þess að við­skiptin færu fram utan skatt­kerf­is­ins.

Jóhann Páll steig aftur í pontu og sagði að Guðrún virt­ist frekar vera að tala „út frá til­finn­ingu um hvernig hlut­irnir séu“ fremur en gögnum, en ráðu­neytið hefði byggt álit sitt á. Hann benti síðan á að áður en end­ur­greiðslu­hlut­fallið var fært upp í 100 pró­sent hefðu end­ur­greiðslur numið 60 pró­sentum og að ekki hefði verið með neinum hætti sýnt fram á það að það hefði aukið skatt­skil að færa hlut­fallið upp í 100 pró­sent.

Guðrún sagði að nefndin hefði saknað þess að fá að sjá frá ráðu­neyt­inu útreikn­inga á tekju­hlið­inni, en ráðu­neytið hefði ein­göngu fært fram útreikn­inga á útgjalda­hlið­inni, eins og það komi ekk­ert inn til rík­is­ins vegna þessa úrræðis.

„Okkur hættir til að gleyma því að það að öll vinna sé gefin upp til skatts, þá skilar hann sér til rík­is­ins, það er greitt útsvar, það kemur tekju­skattur, það eru tekjur á móti. Það er ósann­gjarnt að horfa bara á annan öxul­inn hér og sjá bara útgjalda­hlið­ina, það koma vita­skuld tekjur inn á móti,“ sagði Guðrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár