Vilja að virðisaukaskattur vegna viðhalds og íbúðaframkvæmda verði áfram felldur niður

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur varað við að átakið „Allir vinna“ verði fram­lengt. Ráðu­neytið taldi það óþarft og sagði að fram­leng­ing gæti valdi ofþenslu. Samtök iðn­að­ar­ins vildu að átakið yrði fram­lengt. Kostn­að­ur­inn hleypur á millj­örðum króna.

Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður efnahags- og viðskiptanefndar.
Guðrún Haf­steins­dóttir er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur ákveðið að leggja til að haldið verði tíma­bundið áfram að fella niður virð­is­auka­skatt á starf­semi tengdri bygg­ing­ar­fram­kvæmdum og við­haldi hús­næðis í gegnum átakið „allir vinna“ fram eftir næsta ári, þrátt fyrir að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi lagst hart gegn því. Í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins sem skilað var inn til nefnd­ar­innar var fram­leng­ingin sögð óþörf og varað við að hún gæti valdið ofþenslu.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans afgreiddi meiri­hlut­inn álit sitt á fundi nefnd­ar­innar í gær. Þar var lagt til að úrræðið fyrir starf­semi tengdri bygg­ing­ar­fram­kvæmdum og við­haldi hús­næðis verði fram­lengt að fullu út ágúst á næsta ári og frá 1. sept­em­ber muni end­ur­greiðslan mið­ast við 60 pró­sent af því sem ætti ann­ars að fara til rík­is­sjóðs sem virð­is­auka­skattur.

Þá verða end­ur­greiðslur vegna heim­il­is­hjálpar og reglu­legrar umhirðu og vegna frí­stunda­hús­næðis fram­lengdar til 30. júní. End­ur­greiðsla vegna bíla­við­gerða ýmis­konar mun hins vegar falla niður um ára­mót líkt og stefnt var að.

Engin grein­ing á kostn­aði vegna fram­leng­ing­ar­innar var lögð fram sam­hliða nefnd­ar­á­lit­inu en í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins kom fram að auknar og útvíkk­aðar end­ur­greiðslur á virð­is­auka­skatti frá byrjun far­ald­urs­ins til árs­loka 2021 muni nema 16,5 millj­örðum króna. Þar sagði einnig að ef úrræðin yrðu fram­lengd í óbreyttri mynd út næsta ár gæti rík­is­sjóður orðið af 12 millj­örðum króna á næsta ári.

Í ljósi þess að end­ur­greiðslur vegna íbúð­ar­hús­næðis hafa verið næstum 80 pró­sent allra end­ur­greiðslna vegna átaks­ins „Allir vinna“ er ljóst að við­bót­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs vegna fram­leng­ing­ar­innar mun hlaupa á millj­örðum króna.

Innspýting í þegar þanið hagkerfi

Samkvæmt fram­lögðu fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar stóð til að hætta átak­inu „Allir vinna“ í þeirri mynd sem verið hefur frá upp­hafi far­ald­urs­ins um kom­andi ára­mót.

Í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, þar sem ákvörð­unin um að fram­lengja ekki úrræðið var rök­studd, er sér­stak­lega nefnt slík fram­leng­ing gæti falið í sér ruðn­ings­á­hrif, þar sem mik­illi upp­bygg­ingu hús­næðis sé nú þegar spáð á næstu miss­erum. „Um væri að ræða inn­spýt­ingu á fjár­magni sem væri nú þegar þanið,“ segir í minn­is­blað­inu.

[adspot]Ráðu­neytið nefndi einnig að fram­leng­ing úrræð­is­ins myndi fela í sér mikið tekju­tap fyrir rík­is­sjóð, líkt og rakið er hér að ofan.

Samkvæmt ráðu­neyt­inu eru ekki sömu for­sendur til staðar fyrir nið­ur­fell­ingu á virð­is­auka­skatti vegna bygg­ing­ar­fram­kvæmda nú og í mars í fyrra, þar sem ýmsum atvinnu­greinum, þar á meðal bygg­ing­ar­iðn­aði, hafi gengið vel frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Enn fremur spá bæði Seðla­bank­inn og Hag­stofan mik­illi aukn­ingu í íbúð­ar­fjár­fest­ingu á næstu miss­erum, þrátt fyrir að „Allir vinna“- átakið yrði ekki fram­lengt.

Í minn­is­blaði sínu nefnir ráðu­neytið einnig að búist sé við fram­leiðslu­spennu í hag­kerf­inu á næsta ári, auk þess sem verð­bólga hafi auk­ist og vextir hækkað. Við þær aðstæður þurfi skýr rök til að lög­festa enn frek­ari inn­spýt­ingu inn í hag­kerfið sem átakið myndi fela í sér.

Fóru fram á ár í viðbót

Hags­muna­sam­tök þeirra sem málið snertir fjár­hags­lega eru ekki á sama máli. Í umsögn sinni um fjár­laga­frum­varpið segja Samtök iðn­að­ar­ins að átakið hafi átt sinn þátt í því að nið­ur­sveiflan í bygg­ing­ar­iðn­aði og mann­virkja­gerð hafi verið minni en oft áður í fyrri nið­ur­sveiflum. Í ljósi þess hversu vel hafi tek­ist með verk­efnið, og að ýmis heim­ili og fyr­ir­tæki séu enn í við­kvæmri stöðu eftir efna­hags­sam­drátt­inn, telja sam­tökin mik­il­vægt að átakið verði fram­lengt um að minnsta kosti eitt ár.

Í öðru minn­is­blaði sem birt­ist á vef alþingis fyrir helgi segja Samtök iðn­að­ar­ins að enn sé umtals­verður slaki í bygg­ing­ar­iðn­aði, sem líkur séu á að verði að minnsta kosti út næsta ár. Máli sínu til stuðn­ings bentu þau á fjölda atvinnu­lausra í grein­inni sem er nú meiri heldur en í upp­sveifl­unni frá 2015 til 2019, auk þess sem þau benda á að umfang hennar sé enn minna en það var þá.

Nið­ur­sveiflan í bygg­ing­ar­iðn­að­inum byrj­aði þó nokkru fyrir far­ald­ur­inn. Ef litið er á tölur Hagstofu má sjá að greinin stendur tölu­vert betur að vígi í ár heldur en að hún gerði þegar „Allir vinna“ átakið var lög­fest, þar sem tæp­lega þús­und fleiri störf­uðu í grein­inni síð­ast­lið­inn sept­em­ber heldur en í byrjun síð­asta árs. Fjölg­unin á þessu tíma­bili nemur um 7,5 pró­sentum, en til sam­an­burðar hefur störfum í öllu hag­kerf­inu fjölgað um rétt rúm 5 pró­sent á sama tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár