Glæpur í höfði manns, skattar, Davíð, Trump og klefamenning sem verndar ofbeldismenn

Árið 2021 bauð upp á allskyns álita­mál sem ollu deilum í sam­fé­lag­inu. Á þeim flestum var tekið í leið­ara­skrifum í Kjarn­anum á árinu sem er nú að líða. Hér eru mest lesnu leið­arar árs­ins.

5. Glæpur í höfði Páls Vilhjálmssonar

„Til að taka af allan vafa: það er eng­inn blaða­maður til rann­sóknar fyrir að hafa reynt að drepa skip­stjóra, né fyrir að stela sím­anum hans. Þetta er hug­ar­burður og áróður til að reyna að grafa undan þeim blaða­mönnum sem komu að umfjöllun Kjarn­ans og Stund­ar­innar um „skæru­liða­deild­ina“ og RÚV fyrir að hafa opin­berað Namib­íu­mál Sam­herja fyrir rúmum tveimur árum. [...] Stað­reyndir eru ekki teygj­an­legt hug­tak. Það má ein­fald­­lega ekki segja hvað sem er, um hvern sem er, hvar sem bara vegna þess að ein­hver raðar röngum álykt­unum saman í fjar­stæðu­kennda atburða­rás. Nauð­syn­legt er að finna stað­hæf­ingum sínum stað í raun­veru­leik­an­um.

Þar eiga stað­hæf­ingar Páls Vil­hjálms­sonar engan sama­stað.“

Lesið leiðar­ann í heild sinni hér.

4. Ástæða þess að það er óvenjulegt þegar ríkur maður velur að greiða skatta á Íslandi

„Þess vegna er það svo óvenju­legt þegar maður eins og Haraldur Þor­leifs­son ákveður í tíu sek­úndna sím­tali við eig­in­konu sína að borga alla skatt­anna sína til sam­fé­lags­ins sem hann telur sig skulda fyrir menntun, heil­brigð­is­þjón­ustu og annan stuðn­ing.

Skatt­arnir fara nefni­lega í að reka það sam­fé­lag og gefa fólki eins og Haraldi, sem raun­veru­lega skap­aði verð­mæti en færði ekki bara pen­inga frá A til Tortóla, tæki­færi.[adspot]

Við værum á mun betri stað ef fleiri nálg­uð­ust veru­leik­ann á sama hátt og hann.“

Lesið leiðar­ann í heild sinni hér.

3. Fullnaðarsigur skattsvikara

„Á meðan að við búum við allar þær gloppur sem til­greindar hafa verið hér, og þá sögu sem við eigum, þá ætti öllu skyn­sömu fólki að vera ljóst að það þurfi að styrkja eft­ir­lits­stofn­anir, ekki veikja þær. Til­gang­ur­inn er að stuðla að jafn­ræði og auka traust almenn­ings á kerfum sam­fé­lags­ins. [...] Það er sann­ar­lega ekki ómerki­legur til­gangur. Þótt það sé rétt að fæstir séu óheið­ar­legir, þá liggur fyrir að sumir eru það. Og það er barna­legt að halda öðru fram.“

Lesið leiðar­ann í heild sinni hér.

2. Ritstjóri sem elskar forseta sem elskar múg sem elskar grunnstoðir lýðræðis

Dag­inn eftir að Trump stýrði með upp­lognum ásök­unum – sem stafa af sjúk­legri sjálf­hverfu og særðu stolti en algjöru skeyt­ing­ar­leysi fyrir frelsi og lýð­ræði – endar leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins skrif dags­ins á eft­ir­far­andi orð­um: „Sko hann.““

Lesið leiðar­ann í heild sinni hér.

1. Klefamenning sem hyllir og verndar ofbeldismenn

„Guðni Bergsson er ekki vanda­málið þótt hann hafi unnið hjá því í nokkur ár. Vanda­málið er ömur­leg klefa­menn­ing sem hyllir ofbeld­is­menn, lítur niður á konur og upp­hefur eitr­aða karl­mennsku. Hún hefur við­geng­ist í ára­tugi og á henni ber Guðni Bergsson ekki einn ábyrgð. Forysta íslenskrar knatt­spyrnu­hreyf­ingar í heild á stóra hlut­deild í henni.“

Lesið leiðar­ann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár