Segist „fullur efasemda um harðari aðgerðir“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að honum sýn­ist „enn og aftur“ ekki horft til heild­ar­hags­muna við ákvörð­un­ar­töku varð­andi sótt­varna­að­gerðir. Leiðin áfram sé að „treysta fólki til að taka ábyrgð á sjálfu sér“.

Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokks hér til vinstri.
Vil­hjálmur Árnason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks hér til vinstri. Mynd: Bára Huld Beck

Vil­hjálmur Árnason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks lýsti yfir efa­semdum um hertar aðgerðir til að stemma stigu við útbreiðslu kór­ónu­veirunnar í gær­kvöldi, en rík­is­stjórnin mun í dag funda um nýjar til­lögur Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis til heil­brigð­is­ráð­herra, sem meðal ann­ars fela í sér að ein­ungis 20 manns megi koma saman og að skólar opni ekki á ný fyrr en þann 10. jan­úar, sam­kvæmt því sem fram kom í fjöl­miðlum í gær, en minn­is­blað Þórólfs hefur ekki verið gert opin­bert.

Vil­hjálmur, sem er þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis, gagn­rýnir í færslu sinni að þingið hafi enga aðkomu að ákvörð­un­ar­töku frekar en áður og seg­ist „fullur efa­semda um harð­ari aðgerðir.“ Í sam­tali við RÚV í morgun sagði Vil­hjálmur að það væri „rík skoðun innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins“ að meira þyrfti til að rök­styðja svona harðar tak­mark­anir.

„Á þeim tæpum tveimur árum sem við höfum glímt við far­ald­ur­inn höfum við farið úr því að vera óbólu­sett þjóð yfir í eina bólu­sett­ustu þjóð jarð­ar­innar. Tak­mark­an­irnar eru þó hér um bil þær sömu og er sá eft­ir­tekt­ar­verði árangur sem við höfum náð á sviði bólu­setn­inga þar með hafður að engu,“ skrifar þing­mað­ur­inn.

Hann segir að þann mikla fjölda virkra smita í sam­fé­lag­inu í dag skuli „lesa í því ljósi“ að mikil aðsókn hafi verið í hrað­próf und­an­farið og vísar þar til frétta um að fimm pró­sent þjóð­ar­innar hafi farið í hrað­próf síð­asta föstu­dag.

„Af þeim liggja ell­efu á sjúkra­húsi, sem er umtals­vert minna en helstu sér­fræð­ingar, þ.m.t. sótt­varn­ar­læknir, spáðu fyrir um fyrir skömmu,“ skrifar Vil­hjálmur og bætir við að það sé „rík­is­stjórn­ar­innar og okkar þjóð­kjör­inna full­trúa að horfa til heild­ar­hags­muna við alla ákvörð­un­ar­töku. Enn og aftur sýn­ist mér að það sé ekki gert nú.“

[adspot]

Vil­hjálmur segir að lista­fólk, veit­inga- og gisti­geirar horfi nú fram á algjört tekju­hrun, hópar sem „hafa lagt sig fram um að lifa með veirunni og hlýtt boðum yfir­valda um breyttar upp­still­ingar, aflögn stand­andi hlað­borða, nei­kvæð hrað­próf fyrir aðgang að við­burðum“ og fleira og að heims­far­ald­ur­inn hafi „áhrif á heilsu fólks sem sjaldnar er talað um.“

Þar á hann við and­leg veik­indi, kvíða, þung­lyndi og frestun á að fólk leiti sér nauð­syn­legrar heil­brigð­is­þjón­ustu. „Fólk flosnar upp úr námi, mik­il­væg þekk­ing glat­ast á vinnu­stöðum og áfram mætti telja,“ segir þing­mað­ur­inn og bætir við að fólk „hræð­ist ekki lengur veik­indin af völdum covid, heldur sótt­varn­ar­yf­ir­völd og þeirra aðgerðir.“

Þing­mað­ur­inn segir að áhrifin á yngstu kyn­slóð­ina eigi eftir að koma í ljós. Leiðin áfram, segir Vil­hjálmur, er að „treysta fólki til að taka ábyrgð á sjálfu sér“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár