52 þúsund íbúðir í eigu einstaklinga eða lögaðila sem eiga fleiri en eina íbúð

Hlutfall þeirra íbúða sem eru í eigu aðila sem eiga fleiri en eina íbúð hefur hald­ist nokkuð stöðugt síð­ustu ár. Um 13 pró­sent leigj­enda einka­rek­inna leigu­fé­laga eða á almenna mark­aðnum greiða yfir 70 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu.

Allir þurfa þak yfir höfuðið. Fjölmennir hópar lágtekjufólks greiða mjög hátt hlutfall launa sinna í leigu og eiga litla möguleika á að eignast húsnæði að óbreyttu.
Allir þurfa þak yfir höf­uðið. Fjöl­mennir hópar lág­tekju­fólks greiða mjög hátt hlut­fall launa sinna í leigu og eiga litla mögu­leika á að eign­ast hús­næði að óbreyttu. Mynd: Pexels

Árið 2006 voru 28,5 pró­sent allra íbúða á land­inu í eigu annað hvort ein­stak­linga eða lög­að­ila sem áttu fleiri en eina íbúð. Það hlut­fall hækk­aði umtals­vert næstu árin á eftir og var orðið 31,7 pró­sent árið 2008.

Síðustu ár hefur það hald­ist nokkuð stöðugt í kringum 34 til 35 pró­sent og var í lok síð­asta mán­aðar 35,1 pró­sent. Um er að ræða full­búnar íbúðir en þær voru, sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár 148.425 um liðin mán­aða­mót. Því eru alls 52.079 íbúðir í eigu ein­stak­linga eða lög­að­ila sem eiga fleiri en eina íbúð.

Þetta má lesa úr upp­lýs­ingum um eign­ar­hald íbúða sem Þjóðskrá hóf að birta í síð­asta mán­uði.

Íbúðir sem eru í eigu ein­stak­linga sem eiga fleiri en eina íbúð, og þar af leið­andi eignir umfram þá sem þeir búa í, eru nú 30.713. Þeim hefur fjölgað um 9.031 frá árinu 2006, eða 41 pró­sent. Ef horft er lengra aftur, til árs­ins 2000, hefur þeim fjölgað um 13.838, eða 82 pró­sent.

Til sam­an­burðar hefur þeim ein­stak­lingum sem eiga eina íbúð fjölgað um tólf pró­sent frá árinu 2006 og um tæp­lega 22 pró­sent frá alda­mótum.

Íbúðir sem eru í eigu lög­að­ila sem eiga fleiri en eina íbúð, til að mynda leigu­fé­laga, eru nú 21.366 tals­ins. Árið 2006 voru þær 12.503 og því hefur þeim fjölgað um 71 pró­sent á 15 árum. Frá ald­ar­mótum hefur þeim fjölgað um 12.213, eða 133 pró­sent.

Greiðslubyrði sem teljast má íþyngjandi

Í árlegri könnun Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) á íslenska leigu­mark­aðnum, sem fram­kvæmd var frá júní til sept­em­ber 2021 og nær til ein­stak­linga 18 ára og eldri sem eru á leigu­mark­aði á land­inu öllu, kom fram að hlut­fall ráð­stöf­un­ar­tekna allra leigj­enda sem fer í leigu sé nú 45 pró­sent. Það var 40 pró­sent 2019. Samkvæmt HMS gefur það hlut­fall til kynna mjög mikla greiðslu­byrði að með­al­tali sem telj­ast megi íþyngj­andi. Í umfjöllun um könn­un­ina er þó tekið fram að aukn­ing­una á hlut­fall­inu megi að hluta til skýra með því að tekju- og eigna­meiri leigj­endur náðu að kom­ast af leigu­mark­aði og yfir í eigið hús­næði á tíma­bil­inu.

[adspot]Í sömu könnun kom fram að leigj­endur hjá einka­reknum leigu­fé­lögum og ein­stak­lingum á almennum mark­aði voru með næst­hæsta hlut­fall þeirra sem greiddu 70 pró­sent eða meira af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu, eða 13 pró­sent. Einungis leigj­endur á stúd­enta­görðum, að uppi­stöðu náms­menn með lágar tekjur, voru með hærra hlut­fall þeirra sem greiddu svo stóran hluta ráð­stöf­un­ar­tekna í leigu, eða 15 pró­sent.

Hlutfall þeirra sem greiddi helm­ing eða meira af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu var hins vegar lang­hæst hjá einka­reknum leigu­fé­lög­unum, sam­tals 44 pró­sent. Til sam­an­burðar var það hlut­fall 26 pró­sent hjá óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum og 23 pró­sent hjá þeim sem leigðu af ætt­ingjum eða vinum.

Kalla eftir stórátaki í húsnæðismálum

Í umsögn sinni um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp kallar Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) eftir stór­átaki í hús­næð­is­málum og lýsir yfir veru­legum von­brigðum með litla umfjöllun og skort á aðgerðum til að bregð­ast við stöð­unni á hús­næð­is­mark­aðnum. Þar segir að íslenskur leigu­mark­aður sé óskipu­lagður og hlut­fall óhagn­að­ar­drif­ins hús­næðis lítið, leigj­endur njóti tak­mark­aðrar verndar og hafa veika samn­ing­stöðu. Í yfir­lýs­ingu stjórn­valda til stuðn­ings kjara­samn­ingum 2019 hafi verið boð­aðar umbóta­að­gerðir á leigu­mark­aði sem ekki hafi verið fylgt eftir.

ASÍ segir frum­varpið geria ein­ungis ráð fyrir 2,9 pró­sent aukn­ingu í hús­næð­is­stuðn­ing og að ekki séu gerðar breyt­ingar á fyr­ir­liggj­andi for­sendu um fjár­mögnun upp­bygg­ingu óhagn­að­ar­drif­inna leigu­í­búða, þrátt fyrir að allir stjórn­mála­flokkar hafi verið sam­mála fyrir kosn­ingar um þörf­ina á auknum fram­lögum til almenna íbúða­kerf­is­ins. „Fyrirséð er að leigu­mark­aður verði fyrir áhrifum hækk­unar hús­næð­is­verðs, auk­ins hag­vaxtar, fjölg­unar ferða­manna og auknum búferla­flutn­ingum. Leigu­verð hækk­aði þannig umfram verð­lag á árunum 2011- 2019, og umfram vísi­tölu launa.

Samkvæmt tölum frá OECD sem vitnað er í í umsögn ASÍ eru um 43 pró­sent af leigj­endum í neðsta tekju­fimmt­ungi að glíma við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár