Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir lækna fá „útrás fyrir hégóma í sviðsljósi fjölmiðla“

Óli Björn Kárason segir að til þess að magna upp ótta almenn­ings vegna kór­ónu­veiru sé grafið skipu­lega undan trausti á heil­brigð­is­kerfið. Það að vera frjáls borg­ari sé „aðeins óljós minn­ing“.

Óli Björn Kárason.
Óli Björn Kárason. Mynd: Bára Huld Beck

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir að gagn­rýnin umræðu um aðgerðir stjórn­valda vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins eigi erfitt upp­dráttar. Frelsið verði fyrsta fórn­ar­lamb ótt­ans og um leið hverfi umburð­ar­lyndi gagn­vart ólíkum skoð­unum. „Leikir sem lærðir veigra sér við að spyrna við fótum og spyrja alvar­legra en nauð­syn­legra spurn­inga þar sem óskað er eftir rök­stuðn­ingi fyrir hvers vegna frelsi ein­stak­linga er tak­markað og hvort of langt sé gengið. Þeim er mætt af full­kominni hörku og á stundum með sví­virð­ingum. Þar ganga því miður læknar, sem fá útrás fyrir hégóma í sviðs­ljósi fjöl­miðla, hart fram.“

Þetta kemur fram í grein sem hann birti í Morg­un­blað­inu í dag. Þar segir Óli Björn enn fremur að til þess að magna ótta almenn­ings sé grafið skipu­lega undan trausti á heil­brigð­is­kerfið. Það sé þó .þrátt fyrir allt er eitt það besta í heimi, þar sem fram- úrskar­andi starfs­fólk vinnur afrek á hverjum degi, sem hvorki fjöl­miðlar né sam­fé­lags­miðlar hafa áhuga á.“

Metfjöldi dag eftir dag

Met­fjöldi kóronu­veirusmita greind­ist í gær, sam­tals 215. Aldrei hafa fleiri greinst á einum degi frá því far­ald­ur­inn hófst hér­lendis og nýgengi smita er nú hærra en nokkru sinni, eða 552. 21 liggja inni á spít­ala með veiruna, þar af fimm á gjör­gæslu. Alls eru 1.773 ein­stak­lingar í ein­angrun vegna smita og 2.636 eru í sótt­kví.

[adspot]Vegna þeirrar bylgju sem nú ríður yfir hefur verið gripið til hertra sótt­varn­ar­að­gerða sem fela í sér ýmsar tak­mark­anir. Í síð­ustu viku til­kynnti Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra, sem situr í rík­is­stjórn með flokki Óla Björns, að frá og með mið­nætti síð­asta föstu­dag mættu ein­ungis 50 manns megi vera í sama rým­inu. Allt að 500 manns mega þó koma saman í hverju sótt­varn­ar­hólfi á við­burðum þar sem kraf­ist er hrað­prófa.

Veit­inga­hús og barir þurfa að loka dyrum sínum kl. 22 og koma öllum gestum út fyrir kl. 23 á kvöldin og fjöldi gesta í sund­laugum og lík­ams­rækt­ar­stöðum verður tak­mark­aður við 75 pró­sent af leyfi­legum fjölda sam­kvæmt starfs­leyfi.

Margháttuð gagnrýni

Þegar gagn­rýni fór að heyr­ast á þessar aðgerðir, meðal ann­ars frá þeim sem verða af tekjum vegna þeirra, stigu ýmsir læknar fram og bentu á að verja þyrfti Land­spít­al­ann frá við­bót­ar­á­lagi með aðgerð­unum. Á meðal þeirra var Þórir Bergsson, sér­náms­læknir í bráða­lækn­ingum á Land­spít­al­anum. Hann sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook síð­ast­lið­inn föstu­dag að „Spít­al­inn var smekk­pakk­aður fyrir þessa bylgju og við vorum komnir í 30-40 manns á BMT [bráða­mót­töku] sem biðu eftir inn­lögn á hverjum degi [...] Spít­al­inn sem­sagt með rúma­nýt­ingu vel yfir 100%. Ástandið á gjör­gæsl­unni er almennt sveiflu­kennd­ara og oft­ast bæri­legt, en það þarf lítið til að vagga þeim báti.“

Annar læknir sem stigið hefur fram í umræð­unni und­an­farna daga er Tómas Guð­bjarts­son, yfir­læknir á skurðsviði LSH og pró­fessor við lækna­deild HÍ. Í grein sem hann birti á Vísi fyrir sex dögum síðan sagði hann að sumar af lykil­deildum Land­spít­al­ans væru að sökkva í sæ. „Það eru engar ýkjur að flagg­skip ís­lenska heil­brigðis­kerf­is­ins er komið með net í skrúf­una – og virð­ist reka að klett­óttri strönd,“ skrif­aði Tómas. og benti á að nær dag­lega heyrð­ust neyðar­óp frá bráða­mót­töku spít­al­ans. Auk þess væru báðar gjör­gæslu­deildir spít­al­ans fullar upp í rjáfur svo vikum skiptir. Sú staða hafi leitt til þess að ekki væri hægt að fram­kvæma neinar opnar hjarta­að­gerðir í rúm­lega tvær vikur á einu hjarta­skurð­deild lands­ins. Heppni hafi ráðið því að eng­inn sjúk­lingur hafi „komið brátt inn og þurft á lífs­bjarg­andi að­gerð að halda á þessum tíma. Það er ó­venju­legt og getur breyst strax í dag.“

Læknir segir framgöngu ráðherra skrýtna

Í annarri grein eftir Tómas, sem birt­ist á Vísi í dag, segir að það verði telj­ast „skrýtið að ráð­herrar skuli stíga fram undir for­merkjum ein­stak­lings­frelsis og afnema tak­mark­anir sem eru nauð­syn­legar og settar á með mannúð og hags­muni heild­ar­innar að leið­ar­ljósi.“

Land­spít­al­inn sé enn og aftur kom­inn á hættu­stig, gjör­gæslu­deildir fullar upp í rjáfur og staðan víða mjög þung.

Á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær ræddu ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks um að harð­ari sótt­varn­ar­að­gerðir yrðu látnar ganga yfir þá sem kjósa að þiggja ekki bólu­setn­ingu við kór­ónu­veirunni.

í Frétta­blað­inu var svo greint frá því að til standi að aka stræt­is­vagni um götur borg­ar­innar sem bjóði fólki inn til að þiggja bólu­setn­ingu. Búið er að greina hverjir hafi ekki þegið bólu­setn­ingu og að stræt­is­vagn­inn verðu komið fyrir í námunda við þá hópa.

Að vera frjáls borgari „aðeins óljós minning“

Óli Björn segir í grein sinni í Morg­un­blað­inu í dag að flest séum við fús til að færa fórnir og sætta okkur við að búa við skert athafna­frelsi í ákveð­inn tíma til að vinna bug á hættu­legri veiru, ekki vegna þess að stjórn­völd þvingi okkur til þess heldur vegna borg­ara­legrar skyldu sem fylgir því að búa í frjálsu sam­fé­lagi. „Það versta sem frjáls ein­stak­lingur gerir er að hlýða athuga­semda­laust og án gagn­rýni fyr­ir­mælum stjórn­valda sem með einum eða öðrum hætti tak­marka borg­ar­leg rétt­indi, jafn­vel þótt fyr­ir­mælin séu til að verja almanna­heill. Án aðhalds og gagn­rýni verður til rík­is­stjórn reglu­gerða og til­skip­ana.“

Hann seg­ist við­ur­kenna nauð­syn þess að stjórn­völd geti gripið til aðgerða í sótt­vörnum til að verja almenn­ing á hættu­tímum. „Um leið verðum við að gera ákveðnar kröfur til stjórn­valda og heil­brigð­is­yf­ir­valda: Að þau við­mið sem stuðst er við séu skýr, öllum ljós og taki mið af breyttum aðstæðum (s.s. bólu­setn­ingu) og betri þekk­ingu. Að gætt sé sam­kvæmni í yfir­lýs­ingum og upp­lýs­ingum. Að yfir­völd heil­brigð­is­mála nýti svig­rúm til að auka við­náms­þrótt mik­il­væg­ustu stofn­ana. Að hægt sé treysta því að aldrei sé gengið lengra en þörf er á – að með­al­hófið ráði alltaf för, að stjórn­völd virði grunn­rétt­indi borg­ar­anna og starfi innan þeirra vald­marka sem þeim eru mörkuð. Að ekki sé kynt undir ótta til að rétt­læta skerð­ingu á borg­ara­legum rétt­indum. Að mál­efna­legum athuga­semdum og gagn­rýni sé ekki mætt af hroka þeirra sem telja sig umboðs­menn valds­ins og þekk­ing­ar­innar.“

Óli Björn segir að stjórn­völd hafi upp­fyllt þessar kröfur illa á síð­ustu tutt­ugu mán­uðum. „Lík­leg­ast er ekki við aðra að sakast en okkur sjálf, sem hlýðum til­skip­unum gagn­rýn­is­laust. Og þess vegna á frelsið í vök að verj­ast. Að vera frjáls borg­ari verður aðeins óljós minn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár