Hætta talin á upplausn í Bosníu og Hersegóvínu

Bosníu-Serbar hafa fyr­ir­ætl­anir um að draga sig út úr lyk­il­stofn­unum Bosníu og Her­segóvínu, hernum, skatt­inum og dóms­vald­inu, og stofna sínar eigin. Við­kvæmur frið­ur­inn sem náð­ist fram með Dayton-sam­komu­lag­inu er tal­inn í hættu vegna þessa.

Milorad Dodik leiðtogi Bosníu-Serba.
Milorad Dodik leið­togi Bosníu-Serba. Mynd: EPA

Blikur eru á lofti í Bosníu og Her­segóvínu, sam­kvæmt nýlegri skýrslu æðsta sendi­full­trúa Sam­ein­uðu þjóð­anna í land­inu, Christian Schmidt. Hann segir ríkið í reynd standa frammi fyrir mestu til­vistarógn sinni frá lokum hins blóð­uga borg­ara­stríðs sem stóð frá 1992-1995 og að án við­bragða alþjóða­sam­fé­lags­ins sé mögu­leiki á því að Dayton-frið­ar­sam­komu­lagið trosni upp – og þar með stoðir hins sam­ein­aða ríkis.

Ástæðan fyrir þessum áhyggjum Schmidts eru nýlegar gjörðir og yfir­lýs­ingar æðstu ráða­manna Serba innan bosn­íska rík­is­ins. Fyrr í haust lýsti Milorad Dodik, sem er for­seti serbneska þjóð­ar­brots­ins í hinu þrí­skipta for­seta­emb­ætti Bosníu, því yfir að ætlan Serba væri að kljúfa sig frá sam­eig­in­legum stofn­unum rík­is­ins – skatt­inum, æðsta dóm­stólnum og hernum – og stofna sínar eigin.[box]

Í skýrslu Schmidts til örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna undir lok októ­ber­ber­mán­aðar segir að stofn­anir Bosníu og Her­segóvínu hafi í reynd verið „lamaðar“ alveg frá því í júlí á þessu ári vegna fyr­ir­ætl­ana Serba um að hætta þátt­töku í ákvarð­ana­töku innan þeirra.

Það segir Schmidt að virð­ist hafa verið svar við ákvörðun fyr­ir­renn­ara hans í starfi, Valentin Inzko, um að gera afneitun á þjóð­ar­morðum og stríð­glæpum og upp­hafn­ingu stríðs­glæpa­manna sak­næma í land­inu.

Þá ákvörðun kall­aði Dodik „síð­asta naglann í lík­kistu Bosníu og Her­segóvínu“ og hefur síðan þá við­haft ýmsa til­burði sem benda til þess að af hálfu Serba sé stefnan sett á upp­lausn Bosníu og Her­segóvínu.

Schmidt segir í skýrsl­unni að mögu­leiki á átökum sé fyrir hendi ef fram haldi sem horfir og ein­dregin varn­að­ar­orð hans og þróun mála í Bosníu að und­an­förnu hafa vakið ugg víða.

[adspot]

Dodik segir þó í nýju við­tali við Reuters að hann sé „ekki til­bú­inn að fórna friði í land­inu undir nokkrum kring­um­stæðum“ og að aðskiln­aður serbneska lýð­veld­is­ins frá sam­eig­in­legum lyk­il­stofn­unum rík­is­ins geti orðið frið­sam­legur.

„Óábyrgt og óásættanlegt“

Ekki eru allir jafn sann­færðir um það. Þýski utan­rík­is­ráð­herr­ann Heiko Maas sagði í gær við bosn­ískan vef­miðil að Þýska­land myndi hætta fjár­hags­legum stuðn­ingi við Bosníu og Her­segóvínu, ef ekki yrði fallið frá „óábyrgum og óásætt­an­legum“ áformum sem stuðl­uðu að eyði­legg­ingu bosn­íska rík­is­ins, sam­kvæmt end­ur­sögn Reuters.

Ráð­herr­ann sagði sömu­leiðis að þýsk stjórn­völd fylgd­ust náið með gangi mála í Bosníu og Her­segóvínu, ásamt öðrum ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins, Banda­ríkja­mönnum og Bretum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár