Telur „enn harðari aðgerðir“ koma til greina og segir stjórnvöld þurfa að vera tilbúin

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að stjórn­völd þurfi að vera reiðu­búin að grípa enn frekar í hand­brems­una ef þær hertu aðgerðir sem hafa verið boð­aðar í dag skili ekki árangri. Fyrstu teikn um árangur ættu að sjást á um 7-10 dögum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir telur koma til greina að setja á enn harð­ari aðgerðir en þær sem hann lagði til í minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra í gær. Á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag var ákveðið að hertar aðgerðir, sem fela meðal ann­ars í sér að ein­ungis 50 manns megi vera í sama rými í stað 500 áður, taki gildi á mið­nætti og verði í gildi til og með 8. des­em­ber.

En sótt­varna­læknir telur koma til greina að setja á meiri tak­mark­anir en boð­aðar eru, „í stuttan tíma til að ná fjölda smita eins hratt niður og mögu­legt er“ og segir að með því „yrði mögu­legt að aflétta fljótt í kjöl­farið.“[links]

Í minn­is­blaði sínu segir hann einnig að stjórn­völd þurfi að vera „til­búin til að grípa til hertra aðgerða ef við­un­andi árangur sést ekki af þeim aðgerðum“ sem boð­aðar voru í dag – og að stefnt skuli að því að sjö daga með­al­tal greindra smita verði um 50. Sótt­varna­læknir segir að búast megi við að „um 7-10 daga taki að sjá fyrstu merki um árangur af aðgerðum.“

Aukinn fjöldi smita byrjaður að valda alvarlegri röskun í heilbrigðiskerfinu

Sótt­varna­læknir segir í minn­is­blaði sínu að með þeim vax­andi fjölda smita sem greinst hefur að und­an­förnu hafi skap­ast mikið álag á heil­brigð­is­kerfið og „alla inn­viði sem vinna að því að hefta útbreiðslu COVID-19.“

„Land­spít­al­inn er nú kom­inn á hættu­stig sem þýðir að veru­leg breyt­ing hefur orðið á starf­semi göngu­deilda spít­al­ans og veru­leg röskun á ýmissi þjón­ustu. Í reglu­legu eft­ir­liti land­læknis með stöðu stofn­ana innan heil­brigð­is­kerf­is­ins kemur fram að á Land­spít­ala stig­ast mönnun á rauðu sem þýðir að mik­ill skortur er á starfs­fólki og vinnu­á­lag óásætt­an­legt þrátt fyrir að leitað hafi verið til bak­varða­sveitar,“ segir í minn­is­blað­inu, en þar segir einnig að starf­semi Sjúkra­húss­ins á Akureyri hafi raskast vegna þeirra sjúk­linga sem þarf hafa þurft að leggj­ast inn með COVID-19.

[adspot]

Hið sama segir Þórólfur að segja meiri um margar aðrar heil­brigð­is­stofn­anir og lýsir hann því einnig að starf­semi rakn­ingateymis sótt­varna­læknis og almanna­varna­deildar sé í „upp­námi vegna mik­ils fjölda smita,“ auk þess sem far­sótt­ar­hús séu að fyll­ast og álag á Lækna­vakt­ina og heilsu­gæsl­una vegna COVID-tengdra verk­efna sé að aukast.

„Því má full­yrða að sú aukn­ing sem orðið hefur und­an­farið á grein­ingum COVID-19 sé farin að valda alvar­legri röskun á starf­semi heil­brigð­is­kerf­is­ins og á öllu eft­ir­liti með covid smit­uðum ein­stak­lingum. Því tel ég brýnt að gripið verði til sam­fé­lags­legra aðgerða sem fyrst til að komið verði í veg fyrir enn alvar­legra ástand í heil­brigð­is­kerf­inu og þjóð­fé­lag­inu öllu. Einnig vil ég benda á að með útbreiddu smiti í sam­fé­lag­inu þá mun skap­ast sú hætta að veik­indi í fyr­ir­tækum og atvinnu­rekstri mun valda veru­legri röskun á allri þeirra starf­semi,“ segir í minn­is­blaði Þórólfs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár