Bæði Samherji og Init ofarlega á listum yfir „framúrskarandi fyrirtæki“ ársins

Alls eru 878 fyr­ir­tæki á lista CreditInfo yfir Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki árið 2021. Sum þeirra sem skipa efstu sætin á listum hafa verið til umfjöll­unar und­an­farin miss­eri fyrir hátt­erni sem erfitt er að tengja við það að skara fram úr.

Samherji hf. er á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki og raunar einnig Samherji Ísland ehf. og fleiri dótturfélög Samherja. Hins vegar er Samherji Holding ehf. ekki á lista, líklega þar sem félagið hefur ekki enn skilað ársreikningi fyrir árið 2019.
Samherji hf. er á lista yfir fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki og raunar einnig Samherji Ísland ehf. og fleiri dótt­ur­fé­lög Samherja. Hins vegar er Samherji Holding ehf. ekki á lista, lík­lega þar sem félagið hefur ekki enn skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2019.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji hf. og hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Init ehf. eru hvort um sig ofar­lega á lista CreditInfo yfir fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki, sem kynntur er í dag. Í flokki stórra fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja er Samherji í 4. sæti á lista á meðan að Init er í 4. sæti í flokki lít­illa fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja.

Vera þess­ara tveggja félaga við topp­inn á listum yfir fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki kann að koma ein­hverjum spánskt fyrir sjónir, enda hafa bæði Samherji og Init verið til umfjöll­unar á umliðnum miss­erum fyrir hluti sem afar erfitt er að tengja við orðið fram­úr­skar­andi.

Samherji og stjórn­endur þess félags eru til rann­sóknar hjá yfir­völdum hér­lendis vegna meintra mútu­greiðslna í rekstri félags­ins í Namibíu og sömu­leiðis eru skatta­mál félags­ins til rann­sóknar.[links]

Í vor var einnig opin­berað að Samherji rak áróð­urs­stríð gegn blaða­mönnum og ákveðnum fjöl­miðlum sem fjallað hafa um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins. Það var gert með vit­und og vilja æðstu yfir­manna fyr­ir­tæk­is­ins.

Fyrr á árinu sagði frétta­skýr­ing­ar­þátt­ur­inn Kveikur frá mörg­hund­ruð millj­óna króna við­skiptum Init, sem hafði árum saman haldið utan um tölvu­kerfi fyrir helstu líf­eyr­is­sjóði lands­ins, við starfs­menn og hlut­hafa félags­ins. Fram kom í umfjöllun Kveiks að svo virt­ist sem eig­endur Init hefðu reynt að fela raun­veru­legan hagnað sinn af vinnu við tölvu­kerfi líf­eyr­is­sjóð­anna fyrir eig­endum og not­endum kerf­is­ins.

Í úttekt sem Reikni­stofa líf­eyr­is­sjóða (RL) lét end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið Ernst & Young vinna vegna máls­ins kom fram að fyr­ir­tækið hefði brotið á samn­ingum sínum við RL og að ekki feng­ist séð að eðli­legur rekstr­ar­til­gangur hefði að öllu leyti legið að baki greiðslum frá Init til félaga í eigu hlut­hafa og starfs­manna. Í gær til­kynnti RL að líf­eyr­is­sjóðir hygg­ist taka yfir rekstur á hug­bún­að­ar­kerf­inu úr höndum Init, vegna brota félags­ins á samn­ingi þess við RL.

Hvað þarf til að vera „framúrskarandi“ hjá CreditInfo?

Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki er vottun sem félagið CreditInfo býður íslenskum fyr­ir­tækjum upp á að kaupa, meðal ann­ars til þess að „nýta hana í mark­aðs­efni og ásýnd fyr­ir­tæk­is­ins.“ „Þannig sjá bæði við­skipta­vinir, starfs­fólk og sam­starfs­að­ilar að þú ert með heil­brigða starf­semi í hraustum rekstri,“ segir á vef CreditInfo – og fyrir neðan er hnappur sem á stendur „Já takk kaupa vottun“.

[adspot]

Ef fyr­ir­tæki kaupir vottun, sem kostar 99.000 kr. án vsk. fær félagið, að því gefnu að það upp­fylli ákveðin skil­yrði, við­ur­kenn­ing­ar­skjal, bæði í ramma og á raf­rænu formi, og leyfi til að nota merki Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja í kynn­ing­ar­efni.

„Til þess að telj­ast fram­úr­skar­andi þurfa fyr­ir­tæki að upp­fylla ströng skil­yrði. Aðeins afreks­fólk atvinnu­lífs­ins stenst þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja og þær gefa vís­bend­ingar um að þau séu lík­legri til að ná árangri og stand­ast álag en önnur,“ segir í kynn­ing­ar­efni á vef CreditInfo. Þar fyrir neðan eru skil­yrðin þulin upp:

  • Fyr­ir­tækið er í láns­hæf­is­flokki 1-3
  • Árs­reikn­ingi skal skilað á réttum tíma lögum sam­kvæmt
  • Hefur skilað árs­reikn­ingi til RSK síð­ustu þrjú ár
  • Fyr­ir­tækið er virkt sam­kvæmt skil­grein­ingu Creditinfo
  • Rekstr­ar­tekjur að lág­marki 50 millj­ónir króna síð­ustu þrjú ár
  • Fram­kvæmd­ar­stjóri skráður í fyr­ir­tækja­skrá RSK
  • Rekstr­ar­hagn­aður (EBIT) jákvæður síð­ustu þrjú ár
  • Ársnið­ur­staða jákvæð síð­ustu þrjú ár
  • Eig­in­fjár­hlut­fall a.m.k. 20% síð­ustu þrjú ár
  • Eignir að minnsta kosti 100 millj­ónir króna síð­ustu þrjú ár

Alls eru 878 fyr­ir­tæki á lista CreditInfo yfir fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki í ár. Í fyrra voru þau 842 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár