Stjórn KSÍ öll búin að segja af sér

Ákveðið var á stjórn­ar­fundi í dag að flýta aðal­þingi KSÍ og halda það innan fjög­urra vikna. Öll stjórn sam­bands­ins hefur sagt af sér.

Stjórn Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) sam­þykkti á fundi sínum í dag að boða með fjög­urra vikna fyr­ir­vara til auka­þings í sam­ræmi við 13. grein laga KSÍ. Stjórn, vara­full­trúar og lands­hluta­full­trúar ákváðu á sama tíma að segja af sér og munu skila umboði sínu í síð­asta lagi þegar til auka­þingis kemur. Ásgeir Ásgeirs­son stjórn­ar­maður til­kynnti fyrr í kvöld að hann segi sig frá trún­að­ar­störfum fyrir KSÍ sam­stundis. Í pistli sem hann rit­aði á Facebook sagði Ásgeir að „drullan hafi dunið yfir“ hann án þess að hann hefði gert nokkuð af sér. „Ég get ekki boðið mér og minni fjöl­skyldu uppá þann við­bjóð sem hefur verið sagt um okkur í stjórn KSÍ.“

Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, ætlar að gegna starfi sínu áfram en skorað hafði verið á hana að segja einnig af sér. Hún stað­festi það í tíu­fréttum RÚV í kvöld.

„Þessi nið­ur­staða er í sam­ræmi við áskor­anir Íslensks Topp­fót­bolta, óskir full­trúa félaga sem sent hafa áskorun um auka­þing og þrýst­ing frá sam­fé­lag­inu. Stjórnin hefur fundað með for­seta ÍSÍ um fram­gang máls­ins og um það hvernig best verður haldið um starf­semi KSÍ fram að auka­þingi svo starf­semin hald­ist órofin. Fundað verður með full­trúum UEFA og FIFA um stöðu máls­ins og fyr­ir­huguð stjórn­ar­skipti þannig að ekki þurfi að koma til afskipta knatt­spyrnu­sam­band­anna að starf­semi sam­bands­ins.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá KSÍ. Þar segir einnig að vinna fag­hóps um end­ur­skoðun við­bragða við kyn­ferð­is­brotum og ofbeldi innan hreyf­ing­ar­innar og hvernig staðið var og verður að stuðn­ingi við þolendur verði áfram í for­gangi.

[adspot]Í gær var til­kynnt að Guðni Bergsson, for­maður KSÍ, myndi segja af sér í kjöl­far mik­illar umræðu eftir að frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni lands­liðs­manna í knatt­spyrnu komu upp á yfir­borðið. Þjarmað var að KSÍ í kjöl­farið en sam­bandið neit­aði ítrekað að slík mál hefðu „komið á þeirra borð“. Guðni sagði sjálfur við Frétta­blaðið að þau hefðu ekki fengið neinar til­kynn­ingar né ábend­ingar um slíkt inn á þeirra borð síðan hann tók við for­mennsku en hins vegar væru þau með­vituð um frá­sagnir á sam­fé­lags­miðlum.

Ung kona steig hins vegar fram í við­tali við RÚV á föstu­dags­kvöldið og greindi frá því að hún hefði orðið fyrir ofbeldi og grófri kyn­ferð­is­legri áreitni af hálfu lands­liðs­manns í knatt­spyrnu árið 2017. Hún sagði einnig frá sam­skiptum við KSÍ á sínum tíma og furð­aði sig á að for­maður KSÍ full­yrti að engin til­kynn­ing hefði borist sam­band­inu um kyn­ferð­is­brot leik­manna. Konan sagði að lög­maður á vegum KSÍ hefði boðið henni þagn­ar­skyldu­samn­ing sem hún hafn­aði.

KSÍ neit­aði síðar um kvöldið að umræddur lög­maður hefði verið á þeirra vegum en hún stóð föst á sínu.

Tilkynntu í gær að þau ætluðu að sitja áfram

Stjórn KSÍ til­kynnti hins vegar í gær að hún og lyk­il­starfs­menn myndu sitja áfram. Vinna myndi hefj­ast með utan­að­kom­andi fag­að­ilum um að end­ur­skoða öll við­brögð við kyn­ferð­is­brotum og ofbeldi innan KSÍ og hvernig staðið var og verður að stuðn­ingi við þolendur. Faghópur yrði settur á lagg­irnar og stjórn KSÍ hét því í yfir­lýs­ingu að taka á þessum málum af alvöru og festu og fylgja ráð­legg­ingum fag­hóps­ins.

[links]Stjórnin hefur fundað und­an­farna daga um þær alvar­legu ásak­anir sem beinst hafa að sam­band­inu að und­an­förnu um þöggun kyn­ferð­is­brota. „Við lítum málið afar alvar­legum augum,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Þar sagði enn fremur að allir stjórn­ar­menn hefðu íhugað stöðu sína en ákveðið að sitja áfram. Vara­for­menn KSÍ myndu taka við verk­efnum sem höfðu verið á hendi Guðna, en þau eru Gísli Gíslason og Borg­hildur Sig­urð­ar­dóttir.

Ákvörðun stjórn­ar­innar var illa tekið og aðild­ar­fé­lög KSÍ skor­uðu á stjórn­ina og fram­kvæmda­stjór­ann Klöru Bjartmarz að segja af sér. Þá kröfð­ust stórir styrkt­ar­að­ilar sam­bands­ins skýr­inga á stöðu mála auk þess sem mikil sam­fé­lags­legur þrýst­ingur skap­að­ist á að gripið yrði til frek­ari aðgerða. Það leiddi til þess að stjórnin sagði öll af sér í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfélagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár