Hver Norðmaður á 30 milljónir í norska olíusjóðnum

Norski olíu­sjóð­ur­inn óx um tæp tíu pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins. Sjóð­ur­inn á tæpt pró­sent af öllum hluta­bréfum heims og gæti gefið hverjum Norð­manni um 30 millj­ónir íslenskra króna.

Norðmenn sitja á töluvert mikið af auðæfum vegna norska olíusjóðsins.
Norðmenn sitja á tölu­vert mikið af auð­æfum vegna norska olíu­sjóðs­ins. Mynd: EPA

Ávöxtun norska olíu­sjóðs­ins nam 9,4 pró­sentum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og var hún aðal­lega drifin áfram af hækkun hluta­bréfa­verðs, sam­kvæmt nýlega birtum hálfs­árs­reikn­ingi sjóðs­ins. Heild­ar­virði hans nemur 166 billjónum íslenskra króna, sem jafn­gildir 30 millj­ónum króna á hvern íbúa Noregs.

Hluta­bréfa­eign sjóðs­ins skil­aði honum tölu­verðri ávöxtun á tíma­bil­inu, eða um 13,7 pró­sent. Þessi hækkun var aðal­lega vegna verð­hækk­ana á hluta­bréfum í banda­rískum fyr­ir­tækjum, sem námu 17 pró­sent, auk þess sem evr­ópsk fyr­ir­tæki hækk­uðu um 13,5 pró­sent í virði.

1,8 milljón á mann í tæknirisunum

Nær helm­ingur hluta­bréfa­eigna sjóðs­ins er í banda­rískum fyr­ir­tækjum. Hlut­deildin er stærst í Apple, Microsoft, Alphabet (áður Google), Amazon og Facebook, en þessi fyr­ir­tæki eru gjarnan kölluð Tæknirisarnir (e. Big Tech).

Sam­an­lagt virði hlut­deild­ar­innar í þessum fyr­ir­tækjum nemur 9,79 billjónum króna, en það jafn­gildir 1,8 millj­ónum íslenskra króna á hvern Norðmann. Meira en helm­ingur þess­arar upp­hæðar er bund­inn í Apple eða Microsoft.

Tæpt prósent af öllum hlutabréfum heimsins

Samkvæmt vef­síð­unni Statista nam heild­ar­virði allra hluta­bréfa á 20 stærstu kaup­höllum heims­ins 110 billjónum Banda­ríkja­dala síð­ast­lið­inn júní. Ef gert er ráð fyrir að lang­flest hluta­bréf séu skráð á þessum mörk­uðum má áætla að hluta­bréfa­eign norska olíu­sjóðs­ins nemi tæpu pró­senti af öllum hluta­bréfum í heimi.

Til sam­an­burðar nemur sam­an­lagt mark­aðsvirði allra félaga á aðal­mark­aði Kaup­hall­ar­innar 2.242 millj­örðum króna, en það jafn­gildir um 0,02 billjónum Banda­ríkja­dala. Norski olíu­sjóð­ur­inn er því rúm­lega 50 sinnum verð­mæt­ari heldur en öll fyr­ir­tæki í Kaup­höll­inni á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hlutabréf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár