Hluturinn sem var seldur í Íslandsbanka í júní hefur hækkað um 31 milljarð króna

Bréf í Íslands­banka hafa hækkað um 56 pró­sent frá útboði á hluta­bréfum bank­ans, sem lauk fyrir tveimur mán­uðum. Þúsundir hafa þegar selt hlut­ina sína og leyst út skjót­feng­inn gróða.

Íslandsbanki var skráður á markað í júní.
Íslands­banki var skráður á markað í júní. Mynd: Nasdaq Iceland

Í gær voru tveir mán­uðir liðnir frá því að hluta­fjár­út­boði Íslands­banka lauk, en bank­inn var skráður á markað viku síðar, eða 22. júní 2021. Í útboð­inu var 35 pró­sent hlutur í bank­anum seldur á 79 krónur á hlut. Heild­ar­sölu­and­virðið er 55,3 millj­arðar króna og rennur það að uppi­stöðu, eftir að búið er að draga frá kostnað vegna útboðs­ins, í rík­is­sjóð þar sem íslenska ríkið var eini eig­andi bank­ans fyrir útboðið. Áætlað mark­aðsvirði Íslands­banka miðað við þetta var 158 millj­arðar króna.

Níföld eft­ir­spurn var eftir bréf­unum, enda var það almennt mat grein­ing­ar­að­ila að þau væru und­ir­verð­lögð og gætu hækkað hratt þegar almenn við­skipti með þau myndu hefj­ast. Það reynd­ist rétt og nú tveimur mán­uðum eftir að hluta­fjár­út­boð­inu lauk hafa bréfin hækkað um 56 pró­sent.

20 keyptu rúmlega helming

Þegar fyrsti hlut­haf­alisti Íslands­banka eftir skrán­ingu var birtur kom í ljóst að þeir 20 fjár­festar – erlendir sjóðir, líf­eyr­is­sjóðir og aðrir fag­fjár­festar – sem keyptu mest í útboð­inu áttu sam­tals 18 pró­sent hlut í bank­anum. Það þýðir að hinir þátt­tak­end­urnir í útboð­inu, en þeir alls voru um 24 þús­und tals­ins, keyptu sam­an­lagt 17 pró­sent hlut.

[adspot]Lögð var áhersla á það að dreifa eign­ar­að­ild í því skrefi sem stigið var í söl­unni nú, og til marks um það var hægt að skrá sig fyrir hlut upp á 50 þús­und krónur, sem er lágt í flestum sam­an­burði. Auk þess var gefið út að allir sem skráðu sig fyrir því að kaupa fyrir eina milljón króna eða minna myndu ekki skerð­ast ef eft­ir­spurn yrði umfram fram­boð, að fjórum horn­steins­fjár­fest­unum und­an­skildum. Það leiddi til þess að hlut­hafar voru 24 þús­und eftir að útboð­inu lauk.

Þúsundir hafa þegar selt bréf

Bréfin hækk­uðu strax á fyrsta degi við­skipta um 20 pró­sent. Síðan þá hafa þau haldið áfram að hækka og ljóst að margir smærri fjár­festar hafa selt hluti sína til að leysa út skjót­feng­inn gróða. Tæpum mán­uði eftir að útboð­inu lauk hafði hlut­höfum í Íslands­banka fækkað um fjögur þús­und. Þá höfðu bréfin hækkað um 35 pró­sent sem þýddi að þeir sem keyptu fyrir eina milljón króna gátu selt bréfin sín með 350 þús­und króna hagn­aði.

Síðan þá hafa bréfin haldið áfram að hækka og nemur hækk­unin nú, líkt og áður sagði, um 56 pró­sentum.

Miðað við það er mark­aðsvirði Íslands­banka í dag um 246,5 millj­arðar króna, og hefur hækkað um 88,5 millj­arða króna á tveimur mán­uðum. Af þeirri virð­is­aukn­ingu hefur um 31 millj­arður króna lent hjá þeim sem keyptu 35 pró­sent hlut af íslenska rík­inu á 79 krónur á hlut um miðjan júní­mánuð.

Vill selja restina á næsta kjörtímabili

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur oft­sinnis lýst því yfir á kjör­tíma­bil­inu að hann vilji selja allt hlutafé í Íslands­banka og allt að helm­ing í hinum rík­is­bank­anum, Lands­bank­anum.

Í síð­ustu viku mærði hann, á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar sem hald­inn var á Suð­ur­nesjum, sölu rík­is­eigna á kjör­tíma­bil­inu, en þar átti hann sýni­lega við sölu á 35 pró­sent hlut í Íslands­banka í sumar.

Bjarni sagði að í sínum huga væri aug­ljós­lega hægt að treysta rík­is­fjár­málin á kom­andi kjör­tíma­bili með því að halda áfram á þeirri braut, og selja meira í bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár