Keahótel-keðjan tapaði hálfum milljarði og fékk hátt lán með ríkisábyrgð

Í lok síð­asta árs breytti rík­is­bank­inn Lands­bank­inn skuldum Keahótel-sam­stæð­unnar í nýtt hlutafé og eign­að­ist 65 pró­sent hlut í henni. Fyrri hlut­hafar lögðu fram 250 millj­ónir í nýtt hlutafé og eiga nú 35 pró­sent.

Hótel Borg er ein helsta eign Keahótela.
Hótel Borg er ein helsta eign Kea­hót­ela. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Keahótel, ein af stærri hót­el­keðjum lands­ins, tap­aði 497,3 millj­ónum króna í fyrra. Rekstr­ar­tekjur sam­stæð­unnar lækk­uðu um 80 pró­sent milli áranna 2019 og 2020 og skuldir þess juk­ust um næstum 600 millj­ónir króna upp í 1,4 millj­arða króna. Þar munar mest um 520 milljón króna lán sem Keahótel tók hjá við­skipta­banka sínum, að hluta til með rík­is­á­byrgð í sam­ræmi við aðgerðir sem stjórn­völd heim­il­uðu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Slík lán eru háð til­greindum skil­yrðum og voru ein­ungis veitt til fyr­ir­tækja sem höfðu orðið fyrir veru­legu tekju­falli vegna far­ald­urs­ins.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Keahótel ehf. fyrir árið 2020 sem birtur var í síð­ustu viku.

Sam­stæðan rekur sam­tals níu hótel ásamt til­heyr­andi veit­inga­rekstri víðs­vegar um landið. Félagið rekur hót­elin Apótek, Borg, Skugga, Storm, Sand, Reykja­vík Lights í Reykja­vík, Hótel Gíg að Mývatni, Kea á Akureyri og Hótel Kötlu í Vík í Mýrdal.

Ríkisbanki breytti skuldum í nýtt hlutafé

Í des­em­ber í fyrra var greint frá því að Lands­bank­inn, helsti lán­veit­andi þeirra fjár­festa sem átt höfðu Keahótel-sam­stæð­una, hefði breytt skuldum þeirra í nýtt hlutafé. Eftir breyt­ing­una á bank­inn 35 pró­sent hlut í sam­stæð­unni í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Hömlur ehf.

[adspot]Þeir sem áttu Keahótel áður komu á móti með nýtt hlutafé, alls á þriðja hund­rað millj­ónir króna, inn í rekst­ur­inn og halda fyrir vikið tæp­lega tveimur þriðja hluta í keðj­unni. Um er að ræða banda­ríska fast­eigna­fé­lagið JL Properties, banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Pt Capital Advisors og Erki­hvönn ehf., skráð í eigu Krist­jáns M. Grét­ars­sonar, Fannars Ólafs­sonar, Andra Gunn­ars­sonar og Þórðar H. Kol­beins­sonar. Allir í hlut­hafa­hópnum tóku þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni. Inn­borgað nýtt hlutafé í Keahótel á síð­asta ári nam 250 millj­ónum króna.

Sá 65 pró­sent eign­ar­hlutur er inni í nýju félagi, Prime Hotels ehf. Það var stofnað var í lok nóv­em­ber 2020.

Keypt og selt

Áður hafði eini hlut­haf­inn í Keahótel verið félagið K acquisition ehf. Það félag var stofnað utan um við­skipti með Keahótel árið 2017.

Hluti Erki­hvann­ar­hóps­ins hafði raunar komið að hót­el­keðj­unni mun fyrr, eða árinu 2012, þegar stærstu bit­arnir innan hennar voru keyptir. Síðar, sam­kvæmt umfjöllun Stund­ar­innar frá árinu 2019, seldu þeir hluta­bréf sín í Keahótel tví­vegis, fyrst til fjár­fest­inga­fé­lags­ins Horns, sem var óbeint í eigu líf­eyr­is­sjóða og stýrt af sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Lands­bank­ans, fyrir rúm­lega 1,7 millj­arð króna. Í síð­ara skiptið til K acquisition, þegar banda­rísku fjár­fest­arnir komu inn í það. Þá nam hagn­aður ann­ars eign­ar­halds­fé­lags í þeirra eigu, Trölla­hvannar ehf., vegna við­skipt­anna um 1,8 millj­örðum króna. Því félagi var í kjöl­farið slitið og allar eigur þess, nálægt tveimur millj­örðum króna, greiddir út til fjór­menn­ing­anna sem áttu Trölla­hvönn. Í bæði skiptin end­ur­fjár­festu fjór­menn­ing­arnir í Keahótel í gegnum ný eign­ar­halds­fé­lög.

K acquisiton hagn­að­ist vel á nokk­urra ára tíma­bili eftir að kaupin gengu í gegn. Sam­an­lagður hagn­aður áranna 2017 og 2018 var 642,7 millj­ónir króna.

Lýst gjaldþrota og ekkert fékkst upp í milljarða kröfur

Algjör við­snún­ingur varð á árinu 2019 þegar K acquisition tap­aði 963 millj­ónum króna, aðal­lega vegna þess að við­skipta­vild var færð niður um 887 millj­ónir króna. Virði eign­ar­hlutar félags­ins í Keahótes lækk­aði um 1,8 millj­arða króna á því ári, fór úr tæp­lega 6,4 millj­örðum króna í tæp­lega 4,6 millj­arða króna.

[adspot]K acquisition var svo lýst gjald­þrota í jan­úar 2021, skömmu eftir að sam­komu­lag hafði náðst við Lands­bank­ann um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu Kea­hót­els, sem fól í sér til­færslu á eign­ar­hlut hlut­hafa í K acquisition yfir á nýja kenni­tölu í eigu sömu aðila. Skiptum á búinu lauk í maí síð­ast­liðnum án þess að nokkuð feng­ist upp í 3,8 millj­arða króna lýstar kröfur.

Prima Hotels, félagið sem tók við eign­ar­hlut K acquisition í Kea­hót­els ásamt Lands­bank­anum, hefur ekki skilað árs­reikn­ingi vegna síð­asta árs.

Nýttu sér öll möguleg úrræði stjórnvalda

Í árs­reikn­ingi Kea­hót­els kemur fram að stjórn­endur sam­stæð­unnar hafi unnið að aðgerðum til að koma til móts við áhrif kór­ónu­veirunnar og meðal ann­ars nýtt sér úrræði stjórn­valda á hluta­bóta­leið, frest­uðum skatt­greiðslum, frestun greiðslna á gistin­átta­skatti og stuðn­ing vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­frest. Einnig hafi sam­stæð­unni borist upp­sagna- og tekju­falls­styrkur.

Engu að síður hafi ekki verið kom­ist hjá upp­sögnum starfs­manna vegna mik­ils sam­dráttar og tíma­bund­innar lok­unar hót­ela.

Þá voru gerðir samn­ingar við leigu­sala um eft­ir­gjöf á leigu og samn­inga við birga um meðal ann­ars greiðslu­dreif­ingu skulda, eft­ir­gjöf skulda, afslátt skulda og frestun á þjón­ustu vegna lok­aðra hót­ela. Stjórn Kea­hót­els telur að með þeim aðgerðum sem gripið var til á síð­asta ári liggi ekki vafi á rekstr­ar­hæfi félaga í sam­stæð­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár